Fréttablaðið - 20.01.2008, Page 98
38 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég er alveg rosalega stolt af
stráknum mínum og ég horfi
alltaf á þættina hans. Hann
hefur náð afskaplega langt í
sínu fagi og ég var eiginlega allt-
af klár á því að honum myndi
takast það enda er hann mjög
fylginn sér.“
Sigríður Lúthersdóttir er móðir Egils Arnar
Egilssonar, Eagle Egilsson, sem var til-
nefndur annað árið í röð til ASC-fagverð-
launanna í Bandaríkjunum. Egill vinnur
við gerð þáttanna CSI: Miami.
„Um upphæðir vil ég ekki upplýsa en
bróðurparturinn rennur til Stefáns
Mána en Forlagið fær sín umboðs-
laun,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson
útgefandi hjá Forlaginu.
Við upphaf bókasýningarinnar í
Frankfurt síðastliðið haust tryggði
bókaforlagið þýska Ullstein sér
bókina Skipið eftir Stefán Mána á
undan öllum öðrum með forkaupstil-
boði á útgáfuréttinum. En að sögn
Jóhanns Páls voru það ekki bara
þýskir útgefendur sem hrifust af
bókinni, í Frakklandi var áhuginn
gífurlegur og að lokum varð að efna
til uppboðs um útgáfuréttinn. Eftir
sviptingar var það hið kunna forlag
Gallimard sem hreppti hnossið. Nú í
vikunni var svo gengið frá útgáfu-
samningi við sænska forlagið Albert
Bonnier, en áður hafði útgáfurisinn
Gyldendal keypt útgáfurétt í Dan-
mörku og forlagið Motto í Tékklandi.
„Það er ævinlega svo að þegar fleiri
útgefendur bítast um útgáfurétt bóka
og þær fara á uppboð þá leiðir það til
betri samnings og hærri fyrirfram-
greiðslna,“ segir Jóhann Páll spurður
nánar út í hvort þetta kapp útgefenda
ytra hljóti ekki að gefa væna fúlgu í
aðra hönd. Jóhann vill sem minnst um
það segja. Hann segir öllu skipta að
útgefandinn sé öflugur og fær um að
gefa viðkomandi bók út með faglegum
hætti. „Enginn franskur útgefandi
ætti að vera í betri aðstöðu en
Gallimard til þess enda virtasti
útgefandi í Frakklandi og áhugi þeirra
á Skipinu gríðarlegur. Það tryggir að
þeir muni halda bókinni vel fram og
leggja sig fram um kynninguna.“
Um hvort þessi velgengni Stefáns
Mána komi útgefandanum reynda á
óvart segist hann ekki geta sagt það.
„Þó að ég standi ávallt tveimur fótum
á jörðinni þegar kemur að útrás og
heimsfrægð enda engu að treysta í
því sambandi og það þarf að fara
saman góð bók, heppni og vönduð
kynning erlendis ef allt á að ganga
upp. Stefán Máni er að mínu viti fram-
úrskarandi höfundur og gríðarlega
öflugur þannig að ég hef metið það
svo frá upphafi að hann ætti mikla
möguleika á erlendum bókamarkaði
og það er sannarlega gaman að sjá að
sú trú var ekki út í bláinn.“
Stefán Máni er að leggja síðustu
hönd á nýja bók og skilar handriti í
mars. Jóhann Páll segir ekki tímabært
að upplýsa um efni hennar en segir
„Mánann“ ekki hafa slegið slöku við
síðan Skipið kom út. „Og mun sýna
það og sanna að hann er einhver kraft-
mesti höfundur þjóðarinnar í dag.“
jakob@frettabladid.is
JÓHANN PÁLL: EVRÓPSK STÓRFORLÖG KAUPA SKIPIÐ
Heimsfrægð blasir við Stefáni Mána
STEFÁN MÁNI Útgáfusamningar eru fyrirliggjandi við Ullstein, Gallimard,
Albert Bonnier, Gyldendal og Motto. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÓHANN PÁLL Máninn er gríðar-
lega öflugur og á mikla mögu-
leika á erlendum bókamarkaði.
„Kvikmyndahandrit og eftirherm-
ur… jájá, það er bara allt að
frétta,“ segir hinn snjalli söngvari
Karl Örvarsson – Kalli Örvars. En
hann hefur nú skrifað kvikmynda-
handrit sem kvikmyndaframleið-
endur hafa sýnt áhuga.
„Þessu laust niður í hausinn á
mér á sínum tíma. Ég vaknaði einn
morguninn skellihlæjandi vegna
bíómyndar sem ég var að horfa á í
draumi. Meira að horfa á fremur
en að taka þátt í. Konan spurði mig
hvers vegna ég væri hlæjandi og
ég sagði sem var: Nú, út af mynd-
inni sem ég var að horfa á.“
Kvikmyndin lifði skýr í kolli
Kalla og í fyrra, á þessum dimmu
drungalegu vetrarmánuðum, fékk
Kalli brjósklos. Gat ekki sinnt
vinnu en ákvað að taka sig til og
skrifa handritið upp.
„Svo meldaði ég mig við ein-
hverja mógúla. En þetta er allt í
þróun og bígerð – engar endanleg-
ar niðurstöður um hvert þetta fer
nákvæmlega. En viðbrögðin eru
mjög góð. Mönnum virðist full
alvara með að þetta geti orðið að
mynd í fullri lengd með tíð og
tíma.“
Handritið fjallar um íslenska
smákrimma en Kalli telur
kveikjuna að draumnum þá þegar
hann las um að einhver krimminn
hefði brotist inn en löggan ekki
þurft að hafa mikið fyrir því að
finna hinn seka – rakti förin í
snjónum beint heim til viðkom-
andi.
„Það er svo lágur standardinn á
íslenskum glæpamönnum. En
félagarnir tveir sem myndin fjall-
ar um fara í helgarferð til Bret-
lands þar sem þeir hitta alvöru
glæpamenn af gamla skólanum.
Þetta verður svo til þess að þeir
koma til Íslands og halda nám-
skeið fyrir íslenska krimma. Vilja
hækka standardinn. Hvað er það
sem við þurfum? Jú, gott kúbein.
Og svo framvegis. Svo eru töflu-
fundir í skemmu uppi á Höfða.
Sýnd gröf yfir árangur breskra
glæpamanna,“ segir Kalli og telur
sig þegar vera búinn að kjafta af
sér um of af þessari kvikmynd
sem hann dreymdi og íslenskir
bíóhúsagestir fá vonandi að líta
hið fyrsta. - jbg
Dreymdi heila bíómynd
KARL ÖRVARSSON Hefur skrifað kvik-
myndahandrit samkvæmt forskrift úr
draumalandinu.
Trommarinn Jóhann Bachmann,
sem oftar en ekki er kenndur við
Skítamóral, á von á barni með
kærustu sinni, Írisi Aðalsteins-
dóttur. Parið kynntist í Kaup-
mannahöfn á síðasta ári, en Hanni
dvaldist í Danmörku bróðurpart-
inn af síðasta ári, eftir að hann
fluttist þangað ásamt bróður
sínum, Haraldi Bachmann. Þegar
hann snéri heim var Íris með í
för.
„Þetta er fyrsta barnið okkar
saman, en við eigum bæði börn
fyrir. Það er auðvitað mikil
spenna og rosaleg hamingja með
þetta á heimilinu,“ segir Hanni
kátur. Hann á fyrir dótturina
Emblu Dögg, sem verður tíu ára í
sumar, en Íris á soninn Tristan
Breka, sem er að verða fimm ára.
„Það er ágætt að hafa þetta
svona, á fimm ára fresti,“ segir
Hanni og hlær við. Erfinginn er
væntanlegur í heiminn í júlí, en
Hanni segir þau Írisi ekki hafa
fengið að vita neitt um kyn ennþá.
Hanni hefur snúið aftur til
starfa í Rafkaupum, þar sem
hann hefur áður unnið, en til stóð
að hann færi í ljósahönnunarnám
í Danmörku. „Við frestuðum því
og komum heim í staðinn. En ég
vinn við að selja og hanna
lýsingar í hús. Við
erum með tvo
ljósahönnuði
hérna sem ég
er að læra af,“
útskýrir Hanni.
- sun
Hanni pabbi
í annað sinn
MIKIL
HAMINGJA
Hanni
Bachmann
og kærasta
hans, Íris
Aðalsteins-
dóttir, eiga
von á fyrsta
barni sínu
saman í sumar.
Opið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18
Allt á sinn stað ...
©
In
te
r I
KE
A
Sy
st
em
s B
.V
. 2
00
8
2.870,-
ANTONIUS geymslulausnir
B44xD54, H70 cm
... í þvottahúsinu
Hvað er að frétta? Ég er að æfa í Höllu og Kára
sem er nýtt íslenskt verk eftir Hávar Sigurjónsson
sem við ætlum að frumsýna í Hafnarfjarðarleik-
húsinu næsta laugardagskvöld.
Augnlitur: Mógrænn.
Starf: Leikkona.
Fjölskylduhagir: Góðir.
Hvaðan ertu? Borin og barnfædd í Þingholtunum.
Ertu hjátrúarfull? Já, svona í hófi held ég.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Forbrydelsen,
ekki séns að ég missi af einum þætti.
Uppáhaldsmatur: Franskur matur slær allt út, þeir
gera einföldustu máltíð að veislu.
Fallegasti staðurinn: Einu sinni fór ég til Capri.
Þar er fallegt.
iPod eða geislaspilari: Hvorugt, held fast í vinyl-
inn.
Hvað er skemmtilegast? Að leika á móti Erling
Jóhannessyni... hann drepur mig úr hlátri.
Hvað er leiðinlegast? Að rífast.
Helsti veikleiki: Hárið á mér er hlandgult á litinn
í augnablikinu.
Helsti kostur: Hvað hárið á mér vex hratt.
Helsta afrek: Dóttir mín.
Mestu vonbrigðin: Að hafa hætt í ballettinum...
var bara sex ára og vildi fá táskó strax.
Hver er draumurinn? Að fara til Suður-Frakklands
í sumar og sleikja sólina... dásemd.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Ég á miða á Ladda
í kvöld. Hann er snillingur!
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Hóflaus neysla
og einstaklingshyggja landans.
Hvað er mikilvægast? Að tapa ekki sjálfum sér.
HIN HLIÐIN VIGDÍS HREFNA PÁLSDÓTTIR LEIKKONA
Franskur matur slær allt út
5.10.77