Fréttablaðið - 01.02.2008, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 01.02.2008, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 1. febrúar 2008 15 ALÞINGI Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðarráð- herra, lofaði heimamönnum á Bíldudal beinum opinberum fjárframlögum í aðdraganda síðustu kosninga. Áttu peningarnir að renna til uppbygg- ingar fiskvinnslufyrirtækis í bænum. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra upplýsti um þetta á Alþingi í gær með þeim orðum að heimamenn hefðu sagt honum það. Jón Bjarnason, þingmaður VG, spurði ráðherr- ann hvernig hann hygðist standa við fyrirheit stjórnvalda um beinan stuðning við að koma aftur á fiskvinnslu á staðnum. Össur svaraði því til að hann hefði heyrt á máli heimamanna að fyrir kosningar hefði forveri hans lofað beinum fjárframlögum til fiskvinnslu auk byggðakvóta frá sjávarútvegsráðherra. Ekki fyndist stafkrókur í iðnaðarráðuneytinu um að loforð um fjárframlög hefðu verið gefin og ekki væru lagaheimildir fyrir slíku. Sjávarútvegsráð- herra hefði á hinn bóginn úthlutað Bílddælingum byggðakvóta. Össur, Jón og fleiri þingmenn lýstu djúpstæðum áhyggjum af atvinnuástandinu á Bíldudal þar sem mikil fólksfækkun hefur orðið á umliðnum árum vegna fækkunar atvinnutækifæra. - bþs Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, sagður hafa lofað Bílddælingum peningum: Fengu kvóta en ekki krónur LEIKSKÓLAR Almennt gjald fyrir barn í átta tíma vistun með mat á leikskóla er langhæst í Norðurþingi og næsthæst í Fjarðabyggð og á Ísafirði ef marka má samanburð við nokkur stærstu sveitarfélögin í landinu og sömuleiðis samanburð sveitarfélaga með 2.500-7.500 íbúa. Það eru Mosfellsbær, Árborg, Akranes, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað, Seltjarnarnes, Ísafjarðarbær, Skagafjörður, Vestmannaeyjar, Borgarbyggð, Norðurþing og Grindavík. Leikskólavistun kostar rúmar 31.750 krónur í Norðurþingi og 31.400 í Fjarðabyggð. Leik- skólavist er þar með dýrari en sambærileg þjónusta á Ísafirði. Ódýrust er leikskólavistun- in í Skagafirði. Þar kostar hún tæpar 22.700 krónur og er um leið ódýrari en leikskólavistun í stóru sveitarfélagi á borð við Mosfellsbæ. „Það er ljóst að leikskólagjöld eru verulega íþyngjandi útgjöld fyrir foreldra í Norðurþingi og ekki liður í að gera Norðurþing að því fjölskylduvæna umhverfi sem það ætti að vera,“ segir Guðmundur Vilhjálmsson, faðir leikskóladrengs á Húsavík. Bergur Ágústsson bæjarstjóri bendir á að börn séu tekin inn á leikskóla frá eins árs aldri og því sé boðið upp á aðra þjónustu en annars staðar. Í Norðurþingi búi 3.000 manns í nokkrum þéttbýlis kjörnum. Ef allir væru í einum kjarna væri leikskólinn bara einn. „Það hefur heilmikið að segja í sambandi við kostnaðinn. Við erum meðvituð um þetta og teljum okkur veita mjög góða þjónustu. En við erum í hærri kantinum, það er alveg rétt,“ segir hann. - ghs Átta tíma leikskóli með mat er einna dýrastur í Norðurþingi: Íþyngjandi að mati foreldris VERULEGA ÍÞYNGJANDI Guðmundur Vilhjálmsson með syni sína, Friðrik Aðalgeir og Loga Vilhjálm. MYND/ÚR EINKASAFNI SPÁNN, AP Spánverji sem höfðaði skaðabótamál gegn foreldrum drengs sem hann keyrði á með þeim afleiðingum að drengurinn lést hefur hætt við málsóknina að því er foreldrarnir greindu frá í gær. Ástæðan er þrýstingur frá fjölmiðlum að sögn lögfræðings mannsins. Dómari úrskurðaði á sínum tíma að maðurinn bæri ekki ábyrgð á dauða drengsins þar sem dimmt hefði verið og drengurinn án endurskinsmerkja þegar hann hjólaði í veg fyrir bílinn. Vildi maðurinn nú fá bætt það tjón sem varð á bíl hans er hann ók á drenginn. - sdg Keyrði á dreng sem lést: Bótamáli gegn foreldrum hætt RÚSSLAND, AP Hatursglæpum fjölgar í Rússlandi og æ fleiri slíkar árásir enda með dauðsfalli. Á sama tíma gerast stjórnvöld oft sek um að nýta sér útlendinga- fjandsamlegar hneigðir meðal kjósenda í pólitískum tilgangi. Þetta fullyrða rússnesk mannrétt- indasamtök í nýrri skýrslu. Sextíu og sjö manns voru drepnir og 550 slasaðir í ofbeldi sem rakið er til útlendingahaturs. Það er 13 prósenta aukning frá árinu á undan, samkvæmt nýjustu ársskýrslu SOVA- skrifstofunnar í Moskvu, sem heldur skrá yfir hatursglæpi í Rússlandi. - aa Ofbeldi í Rússlandi: Fleiri drepnir í hatursárásum LEIKSKÓLAGJÖLD Sveitarfélag Íbúafjöldi Verð* Mosfellsbær 7.501 23.810 Árborg 7.280 25.749 Akranes 5.955 28.432 Fjarðabyggð 5.705 31.400 Fljótsdalshérað 4.644 26.265 Seltjarnarnes 4.467 27.295 Ísafjörður 4.098 30.448 Skagafjörður 4.078 22.667 Vestmannaeyjar 4.075 26.580 Borgarbyggð 3.713 28.248 Norðurþing 3.023 31.753 Grindavík 2.697 27.839 *Verð á 8 tíma leikskólavistun með fullu fæði JÓN BJARNASONJÓN SIGURÐS- SON ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi Das Auto. KOLEFNIS- JAFNAÐUR Í EITT ÁR EYÐIR AÐEINS FRÁ 5.0 l/100 KM ALVÖRU 6 ÞREPA SJÁLF- SKIPTING Golf Trendline kostar aðeins frá 2.098.000 kr. Eða 24.740 kr. á mánuði miðað við bílasamning SP til 84 mánaða og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 7,06%. Aukabúnaður á mynd: Álfelgur og samlitur. Komdu og prófaðu betur búinn Golf með nýrri sex þrepa sjálfskiptingu GOLF GTI BÍLL ÁRSINS 2008 Car&driver DÚXAÐI Á EURO NCAP PRÓFINU FÉKK GULLNA STÝRIÐ SVEIGJAN- LEGIR SÖLUMENN Sex þrepa sjálfskiptingin í Golf er ein af þeim tækninýjungum sem færa honum forskot á aðra bíla. Í Golf tvinnast saman hágæðahönnun, framúrskarandi aksturseiginleikar og nýstárleg tækni. Kraftalegur afturhluti og sportlegar línur í bílnum gefa fyrirheit sem aksturseiginleikarnir standa fyllilega undir. Álfelgur, sam litur, armpúð i á milli framsæta og rafstýrð sóllú ga. Bættu við Sp ortpakka fyri r 290.000 kr. . UTANRÍKISMÁL Utanríkisráðuneytið og Alþjóðastofnun Háskóla Íslands hafa gert með sér samning um samstarf á sviði fræðslu og rannsóknarstarfa í alþjóðamálum. Segir í tilkynningu að með þessu sé ráðuneytið að styrkja og hvetja til fræðistarfa um alþjóða- og utanríkismál. - ovd Samstarf ráðuneytis og HÍ: Hvetja til fræðistarfa FRÁ UNDIRRITUN SAMNINGSINS Utanríkisráðherra og rektor Háskóla Íslands undirrita samstarfssamninginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.