Fréttablaðið - 01.02.2008, Blaðsíða 24
[ ]
Bolla, bolla, bolla!
Valentína Björnsdóttir hefur hollustuna að leiðarljósi við bollubaksturinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Davíð Freyr Jóhannsson bakar algjörar sælgætisbollur fyrir bolludaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lagt í bleyti
GÓÐ RÁÐ ÞEGAR ÞÚ KÆLIR OG
FRYSTIR NEFNIST HANDBÓK SEM
RÖNNING GEFUR ÚT OG FÆST
ÓKEYPIS Í VERSLUNUM FYRIR-
TÆKISINS.
Ráðleggingar og ábendingar í bók-
inni frá Rönning eru kryddaðar
skemmtilegum eldhúsbrellum og
skreyttar litríkum myndum. Af-
skornu grænmeti má til dæmis
halda stökku með því að leggja
það í bleyti. Kannski hljómar út í
hött að láta blaðlauk, sellerí, gras-
lauk og annað grænmeti á stilk í
vasa. En hugmyndin er ekki jafn
biluð og hún hljómar. Vatn hjálp-
ar grænmetinu að geyma vökva
og varðveitir þannig bæði safa og
bragð þar til þau eru skorin og til-
búin til matreiðslu. (Vasarnir eru
þá líka tilbúnir undir blóm ef gest-
irnir koma með þau.).
Pitsa er einfaldur og góður matur en þarf þó ekki að vera skyndibiti.
Hægt er að útbúa gómsætar pitsur úr gæðahráefni og er þetta þá orðin hin
fínasta veisla. Veldu uppáhaldshráefnið þitt og smelltu því á pitsubotn og
skolaðu herlegheitunum niður með góðu vínglasi eða öðrum drykk.
Bolludagur er án efa einn skemmtilegasti dagur ársins. Hvað er
skemmtilegra en að föndra bolluvönd og baka bollur? Flengja
síðan mömmu og pabba eldsnemma til að næla sér í sem flestar
bollur. Bjóða svo allri fjölskyldunni í veglegt bollukaffi, ýmist
með fagurlega skreyttum gúmmilaðibombum eða hollum bollum
úr spelti.
Fagurkerinn býður til borðs
Vatnsdeigsbollurnar úr smiðju Davíðs Freys Jóhannssonar hjá Mosfells-
bakaríi eru vægast sagt girnilegar.
Innihald:
175 g smjörlíki
310 g vatn
185 g hveiti
4 egg (50 g stykkið)
Hnífsoddur af hjarta-
salti sett í lokin.
Aðferð: Vatn og
smjörlíki sett í pott
og hitað að suðu. Pott-
urinn tekinn af hita og
hveitið sett út í. Hrært
vel með sleif þar til deigið
er kekkjalaust og losnar frá börmum pottsins.
Eggin sett saman við, eitt í einu, og hrært mjög vel á
milli. Deigið á að vera algjörlega slétt og kekkjalaust en
nógu þykkt til að halda lögun sinni. Sett með skeið eða sprautað úr
sprautupoka. Hafið gott bil á milli bollanna. Bakið við um það bil 200 C°
í um það bil 15-18 mín., mismunandi eftir ofnum.
Hollustan í fyrirrúmi
Valentína Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Móður náttúru, er sannköll-
uð bollustelpa sem galdrar fram dýrindis bollur úr spelti.
Innihald:
300 g heilhveiti
800 g fínmalað spelt
1 bréf þurrger
100 g hrásykur
1½ tsk. salt
2 egg
700 ml ylvolg mjólk
1 tsk. vanilludropar
Aðferð: Blandið saman þurr-
efnunum í hrærivélarskál, hrær-
ið vanilludropum og eggjum út í
volga mjólkina. Hellið mjólkurblöndunni rólega saman við þurrefnin á
meðan hnoðað er í hrærivélinni. Látið deigið hefast á hlýjum stað með
rakan klút yfir skálinni, í um það bil klukkustund.
Hnoðið deigið aftur í höndunum. Mótið litlar bollur og setjið á bökun-
arplötu sem er klædd með smjörpappír. Breiðið yfir rakt stykki og látið
hefast aftur í 20 mín. Bakið bollurnar við 200°C í um það bil 12 mín.
Látið bollurnar kólna á bökunargrind. Skerið þær í tvennt og setjið
sykurlausa sultu og rjóma á milli. Einnig er gott að nota sýrðan rjóma í
staðinn fyrir rjóma. Um það bil 25 til 30 bollur. rh@frettabladid.is
Þorrablótsnefndir & Veisluþjónustur athugið!
Hákarl til sölu sími: 892-8080
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Blandarinn sem allir eru
að tala um!
Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Hraðastillir
Lífstíðareign!
Verð kr. 53.974
Uppskriftarbók og DVD
diskur fylgir