Fréttablaðið - 01.02.2008, Blaðsíða 38
1. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● kópavogur
Garðar Gíslason segir marga félags-
menn í Gusti hafa áhyggjur af fyrirhug-
uðum flutningum upp að Vatnsenda.
Hann ætlar sér þó að fylgja félaginu og
vonar að sem flestir Gustarar geri slíkt
hið sama.
„Það er yndislegt að vera hérna í Glað-
heimum. Nálægðin við aðra er mikil og fé-
lagsandinn alveg einstakur. Menn þekkj-
ast, bjóða góðan daginn, spjalla og ríða
út saman,“ segir Garðar Gíslason félags-
fræðingur. Hann hefur verið með hesthús í
Glaðheimum í mörg ár og deilir húsinu með
börnum sínum, leikurunum Gísla Erni og
Rakel, og Björgvini Þórissyni dýralækni.
„Hesthúsið okkar er eins og félagsheimili.
Þar höldum við upp á afmæli og þorrablót
og eldum skötuna þar. Á slíkum stundum
er mikil stemning og þá koma nágrannarn-
ir í heimsókn. Það hefur komið fyrir að ég
hef verið í Glaðheimum á gamlárskvöld og
helst vildi ég halda upp á jólin þar líka.“
Garðar segir félagsmenn í Gusti hafa
áhyggjur af fyrirhuguðum flutningum að
Kjóavöllum við Vatnsenda og að ekki séu
allir sannfærðir um að nýja svæðið verði
tilbúið á fyrirhuguðum tíma. „Það skapað-
ist mikil óvissa í kringum flutningana sem
gerði það að verkum að einhverjir fóru
strax að reyna að tryggja sig og keyptu í
öðrum félögum og aðrir eru að íhuga slíkt
hið sama. Þessar breytingar munu því
sundra félaginu og eins og málið lítur út í
dag þá mun taka tíma að byggja upp sterka
félagsheild aftur,“ segir Garðar og heldur
áfram. „En auðvitað er líka hópur af fólki
sem trúir á að þetta muni ganga upp og er
fullur bjartsýni, og ég er einn af þeim. Ég
stefni að því að flytja upp að Kjóavöllum,
fyrst og fremst vegna þess að ég vonast
til að sem flestir félagsmenn í Gusti komi
þangað líka. Þó að þetta sé tímabundið áfall
þá mun okkur vonandi takast að byggja
upp góðan félagsanda aftur. Þarna munum
við hitta fyrir alveg prýðisfólk í hinum
félögunum og svo verður styttra í Heið-
mörkina sem við hlökkum til að komast í,“
segir Garðar sem sér greinilega bæði kosti
og galla við breytingarnar. „Það er auð-
vitað söknuður eftir gamla svæðinu því
þetta svæði liggur hærra uppi og er snjó-
þyngra. Einnig höfum við þungar áhyggj-
ur af byggðinni sem er nú þegar í kring-
um þessi hesthúsasvæði, en við teljum of
mikið áreiti á þessu svæði,“ segir Garðar
að lokum. - mth
Vill helst halda jólin í hesthúsinu
Garðar ásamt nokkrum félögum úr Gusti, þeim Rögnu Emilsdóttur, Ásgeiri Ásgeirssyni og Helga Kristjánssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON