Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Sara Marti Guðmundsdóttir hefur yndi af falleg- um fötum en sníður sér þó stakk eftir vexti og kaupir megnið af fötunum sínum erlendis.Leikkonan Sara Marti Guðmundsdóttir er hrifin af hvers konar mörkuðum og þar reynir hún að finna litla gimsteina. „Ég kaupi yfirleitt fötin í útlöndum ef frá eru taldir skór. Þar sem ég er ekki á neinum for- stjóralaunum reyni ég að forðast sérstak h arverslanir og fer f kf Sara en hún notar hann aðallega við kápur og frakka. Sara segist eiga troðfullan skáp af fötum og tímir engu að henda. „Sumt er löngu hætt að passa á mig en ég get ekki fyrir mitt litla líf hugsað mér að henda eða gefa flíkur sem ég keypti til dæmis í Hong Kon eða á öðrum eftirminnilegum töðÍ kvöld Gimsteinar leynast víða Sara keypti kragann, sem hún heldur að sé búinn til úr gardínu, á Portobello-markaðnum í London. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN BLÓMATÍMI LISTA Biedermeier-tímabilið gat af sér fjölda sér-stæðra húsgagna. HEIMILI 4 TÓLF SPORA MEÐFERÐ FATNAÐAR Klæðskerinn og kjólameistarinn Selma Ragnarsdóttir getur breytt gömlum frakka í tískujakka og saumað dýrindis kjóla úr gardínum. TÍSKA 2 Sími: 512 50007. febrúar 2008 — 37. tölublað — 8. árgangur ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 4 09 96 0 2/ 08 + Nánari upplýsingar www.icelandair.is * Innifalið í verði: Flug aðra leið og flugvallarskattar. TILB OÐ Verð frá 1 2.89 0 kr .* LÖGREGLUMÁL Hollendingur á fimmtugsaldri var tekinn við komuna hingað til lands í fyrra- kvöld. Hann reyndist vera með 1,2 kíló af kókaíni vandlega falið í ferðatösku sinni. Maðurinn var að koma frá Amsterdam þegar hann var stöðvaður af Tollgæslunni á Suðurnesjum við hefðbundið tolleftirlit. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist gæsluvarð- halds yfir honum í gær, sem Héraðsdómur Reykjaness féllst á. Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Málið er í rannsókn en verðmæti efnisins á götuna gæti verið hátt í fimmtíu milljónir króna Auk Hollendingsins sitja nú sex í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefna- smygls um Leifsstöð. Þar á meðal fjórir vegna hraðsendingar sem tollgæsla lagði hald á í nóvember. Í henni voru um fimm og hálft kíló af fíkniefnum sem komu hingað til lands frá Þýskalandi. - jss Hollendingur tekinn: Með rúmlega kíló af kókaíni falið í tösku LOGAR Í BRUNAGADDI Það var í nógu að snúast hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gær. Um miðjan dag kom upp eldur í byggingarkrana í Borgartúni og um svipað leyti kom tilkynning um eld í nýbyggingu við Hlíðarhjalla í Kópavogi. Þá kviknaði í nýbyggingu við Lambhagaveg í gærkvöldi. Engan sakaði í eldsvoðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN SARA MARTI GUÐMUNDSDÓTTIR Gimsteinar leynast víða Tíska Heimili Heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR Fleiri myndum stolið Seldar í leyfisleysi á iStockphoto FÓLK 58 REYKINGAR „Mér finnst fáránlegt að þingið sé með sitt eigið reyk- herbergi. Einhvern veginn finnst mér að löggjafarsamkoman verði að ganga á undan með góðu for- dæmi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Guðlaugur Þór segist hafa fengið mikil viðbrögð víða frá vegna reykingaaðstöðu þing- manna. Þó að heimilt sé gagnvart lögum, með undanþágum, að koma upp reykherbergi fyrir starfsfólk, er þetta herbergi heilbrigðisráð- herra þyrnir í augum. Meðan Reykjavík logaði í bók- staflegri merkingu, en reykinn lagði út af skemmtistöðum borg- arinnar þar sem gestir höfðu kveikt sér í sígarettum, var heil- brigðisráðherra staddur í Svíþjóð. Málið er nú á hans borði en spurð- ur að því hvort lögin megi ekki heita óskýr vísar Guðlaugur Þór í álit sérfræðings ráðuneytisins. Hann segir málið í góðum farvegi og telur viðurlög fyrir hendi þrátt fyrir álit lögmanns eigenda Bars- ins sem segir svo ekki vera. Guð- laugur segist, að óathuguðu máli, ekki gefa frumvarpi um rýmkun á tóbakslögum atkvæði sitt. - jbg / sjá síðu 58 Guðlaugur Þór Þórðarsson heilbrigðisráðherra telur tóbakslög duga vel: Ráðherra fordæmir reykherbergi FIMMTUDAGUR Vill frekar nota orðið mús Ár rottunnar er hafið. Dong Qing Gua fullyrðir að gott ár sé í vændum. Ár endurnýjunar og frjórra hugmynda. TÍMAMÓT 38 Sendir vinjettuhöfundi tóninn Sigurður A. Magnússon hefur ýmislegt við frá- sögn Ármanns Reynis- sonar um Indlandsför sína að athuga. FÓLK 48 Skakkar forsendur Helgi Áss Grétarsson segir að íslenska ríkinu hafi ekki tekist að leiðrétta þann ófullnægjandi skilning sem Mannréttindanefnd SÞ hafði um lagastaðreyndir kvótakerfisins. UMRÆÐAN 36 HVASST Þegar kemur fram á morguninn verður hvöss suðvestan átt víðast hvar með byljóttum vindi. Snjókoma eða slydda en rigning austan til. Styttir upp eystra eftir há- degi annars él. Hiti 0-4 stig sunnan og austan til annars vægt frost. VEÐUR 4     Biðin á enda Tryggvi Guðmundsson batt enda á markaþurrð landsliðsins undir stjórn Ólafs Jóhannesson- ar og landsliðið sigraði í fyrsta sinn undir hans stjórn í gær. ÍÞRÓTTIR 52 VEÐRIÐ Í DAG VIÐSKIPTI Nýstofnuðu Forlagi hefur verið gert að selja frá sér útgáfuréttinn að Íslenskri orðabók og heildarverkum Halldórs Laxness. Þetta er meðal 21 skilyrðis sem Samkeppnis- eftirlitið setti Forlaginu fyrir sameiningu JPV- útgáfu og flestra þeirra forlaga sem áður voru undir hatti Eddu-útgáfu. Þar á meðal eru Mál og menning og Vaka-Helgafell. Heimildir Fréttablaðsins herma að útgáfu- réttur orðabókarinnar geti numið hundrað milljónum króna og verk Laxness hlaupi á fleiri tugum milljóna. Mörður Árnason, ritstjóri Orðabókarinnar, segir að útgáfa Íslenskrar orðabókar sé nú í uppnámi. Hann óttist um framtíð hennar: „Þetta eru alvarleg tíðindi því ef raunverð er sett á þessa bók og útgáfuréttinn sé ég ekki að nokkurt annað forlag geti keypt hana. Það væri þá ríkið eitt. Þessi útgáfa krefst afar þolinmóðs fjármagns og það er kominn tími til að huga að næstu útgáfu. Íslensk orðabók þarf að vera í stöðugri endurskoðun. Ég er satt best að segja dauðhræddur við þetta.“ Mörður telur að menntamálaráðherra ætti að láta til sín taka og annaðhvort kaupa orðabókina til ríkisins eða styðja almenna bókaútgáfu til verksins. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis- eftirlitsins, vill ekki tjá sig sérstaklega um verkin sem á að selja enda sé salan trúnaðar- mál. Spurður um almennar faglegar kröfur til væntanlegra kaupenda bendir hann á að í úrskurðinum sé kveðið á um að kaupandi skuli hafa „fullnægjandi þekkingu á hinum selda rekstri“. Téð þekking er ekki nánar skilgreind en sá sem kemur til með að meta hvað teljist til hennar verður svokallaður „umsjónarmaður söluandlags“, skipaður af Samkeppniseftirlit- inu að fengnu áliti Forlagsins. Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri Forlagsins, vill heldur ekki tjá sig um sölu einstakra verka. Hann gleðjist fyrst og fremst yfir því að niðurstaða sé fengin: „Við höldum okkar striki.“ klemens@frettabladid.is Gert að selja orðabókina og réttinn að verkum Laxness Meðal skilyrða Samkeppniseftirlits fyrir sameiningu JPV og Máls og menningar er að fyrirtækið selji frá sér útgáfurétt að verkum Halldórs Laxness og Íslenskri orðabók. „Alvarleg tíðindi,“ segir ritstjóri orðabókarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.