Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 7. febrúar 2008 33 UMRÆÐAN Stúdentapólitík Stúdentapólitík í Háskóla Íslands hefur lengi legið undir ámæli fyrir að vera sandkassaleikur fyrir upp- rennandi landspólitíkusa og frama- potara. Röskva hefur forðast að dragast í þann leik af þeirri einföldu ástæðu að hagsmuna- mál stúdenta eru yfir slíkt hafin. Á vegum Stúdentaráðs fer fram mikil- væg vinna, yfir- leitt í sjálfboða- starfi, sem snertir daglegt líf allra nem- enda við Háskóla Íslands – og fleiri. Í skiptum fyrir vinnu sína fer Röskvufólk ekki fram á annað en að ná árangri í mál- efnum sínum. Hagsmuna- barátta stúdenta við HÍ er áber- andi í byggingum skólans þessa dagana. Ástæðan er árlegar kosn- ingar til Stúdentaráðs sem fara fram í dag og á morgun (6. og 7. febrúar). Röskva hefur farið með stjórn Stúdentaráðs undanfarið ár og er stolt af því sem áorkað hefur verið á þeim tíma. Í kosningabar- áttu okkar hefur áhersla verið lögð á að stúdentar nýti kosningaréttinn til að veita okkur umboð til áfram- haldandi góðra verka. Þar að auki höfum við lagt fram málefnaskrá með áherslum Röskvu á komandi kjörtímabili. Í aðdraganda kosninganna hefur borið á því að aðrar stúdentafylk- ingar við HÍ hafi gert lítið úr vinnu Stúdentaráðs. Best væri ef slíkt væri eingöngu yfirsjón viðkom- andi en þegar rangfærslum er ítrekað haldið fram, þrátt fyrir leiðréttingar, verður greinilegt að verið er að draga hagsmunabar- áttu stúdenta í sandkassann. Þegar andstæðingar Röskvu ljúga þar að auki vísvitandi um málefni Röskvu er auðvelt að sjá hvernig nemend- ur missa trú á starfi Stúdentaráðs. Árangur Stúdentaráðs undir stjórn Röskvu er greinilegur á kjörtímabilinu sem er að líða. Frítt í strætó, hærri og betri námslán, mun betri einkunnaskil og næstum tvöföldun á fjölda stúdentaíbúða er meðal þess sem Stúdentaráð undir stjórn Röskvu hefur komið í gegn með baráttu sinni fyrir hönd stúd- enta. Við vonum að stúdentar átti sig á að hagur þeirra hafi vænkast á undanförnu ári fyrir tilstuðlan vinnu Röskvu, þeir sjái í gegnum rangfærslur annarra fylkinga og kjósi á grundvelli staðreynda, ekki staðhæfinga. Höfundar eru frambjóðendur Röskvu til Stúdentaráðs. Sandkass- inn við Sæ- mundargötu AGNAR BURGESS BERGÞÓRA SNÆ- BJÖRNSDÓTTIR UMRÆÐAN Atvinnumál Tryggt verði að útlend-ingar á vinnumarkaði njóti sambærilegra rétt- inda og íslenskt launafólk og að allar ráðningar erlends verkafólks séu í samræmi við gildandi kjarasamninga.“ Þetta er meðal þess sem stendur í stefnu ríkisstjórnarinnar um aðlögun inn- flytjenda. Út af þessu hef ég, ásamt fleiri þingmönnum, flutt frumvarp um breytingu á lögum sem varða útlendinga og réttarstöðu þeirra um að atvinnuleyfi sé afhent einstakl- ingum en ekki fyrirtækjum. Nýlega kom fram í fjöl- miðlum að ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir að taka ekki nóg tillit til erlends fiskverkafólks í mótvægisaðgerðum sínum. Það er nógu erfitt þegar manni er sagt upp vegna samdráttar. Vandamálið með það að vera með tíma- bundið atvinnuleyfi er að sem stendur er útlending- ur með atvinnuleyfi bundinn af því að vinna aðeins á einum stað eða sækja aftur um atvinnuleyfi ef hann vill vinna annars staðar. Svona umsóknarferli er ósveigjanlegt og erfitt fyrir bæði umsækjendur og atvinnurekendur. En það þýðir líka að ef manni er sagt upp vegna sam- dráttar skiptir það engu máli ef hann ætlaði sér að vera áfram á Íslandi, ár eftir ár, þangað til hann mætti sækja um íslenskan ríkis- borgararétt (eins og marktækt hlut- fall ætlar að gera) eða ef hann ætl- aði að vera hér aðeins um skeið – ef maður hefur tímabundið atvinnu- leyfi er maður bundinn af því að vinna aðeins á einum stað. Án starfs þarf maður að fara á brott. Ég vil líka benda á að flestir landsmenn eiga ekki erfitt með að fá atvinnu- leysisbætur ef maður missir vinn- una. Maður sem er hér með tíma- bundið atvinnuleyfi á hins vegar ekki rétt á atvinnuleysisbótum. En jafnvel þótt svo væri þá getur það verið hindrun fyrir þann sem ætlar að sækja um ríkisborgararétt að hafa sótt um atvinnuleysisbætur – samkvæmt lögum um íslenskan rík- isborgararétt getur útlendingi verið hafnað ef hann hafði þegið fram- færslustyrk frá sveitarfélagi síð- astliðin þrjú ár fyrir umsókn. Ég tel ósanngjarnt að fara svona illa með fólk, og það er líka ekki gott fyrir Ísland að tapa duglegu fólki þegar hér sárvantar vinnufólk. Tímabundið atvinnuleyfi afhent einstaklingum myndi leysa þennan vanda. Það myndi líka hjálpa til við að veita atvinnurekendum nauðsyn- legt aðhald. Þeir sem fara illa með starfsfólk sitt eiga þá á hættu að missa það en hinir sem virða rétt- indi þess eiga auðveldara með að fá til sín gott starfsfólk. Þar fyrir utan mundi þetta fyrirkomulag gera atvinnumarkaðinn sveigjanlegri og þannig bæta efnahag þjóðarinnar. Því miður er ríkistjórnin ekki sam- mála sem stendur. Í frumvarpinu sem ríkisstjórnin hefur lagt fram er tímabundið atvinnuleyfi enn þá skilgreint sem leyfi veitt útlendingi til að starfa tímabundið á innlendum vinnu- markaði hjá tilteknum atvinnurek- anda. Mér finnst það löngu tíma- bært og þverpólitískt mál að atvinnuleyfi sé afhent einstakling- um, og er í samræmi við bæði stefnu ríkisstjórnarinnar um aðlögun inn- flytjenda og grunnréttindi íslensks verkafólks. Höfundur er varaþingmaður Vinstri grænna. Atvinnuréttindi fyrir alla eða suma PAUL NIKOLOV Besti afþreyingarvefurinn 2007 Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn sem hlýtur verðlaunin Afþreyingarvefur ársins 2007 er í senn fræðandi, áhugaverður, yfirgripsmikill og vinsæll en hefur um leið mikið afþreyingargildi. Vefurinn inniheldur allt sem góður afþreyingarvefur þarf að hafa, vel unninn texta, gott myndmál, útvarpsefni, sjónvarpsefni, sem og síaukna aðkomu notenda, sem er eitt af því sem skiptir sífellt meira máli hjá framsæknum vefjum í dag. Vefurinn verður að teljast inni í daglegum rúnti íslenskra netverja enda einn af fjölsóttustu vefjum landsins.“ Sjá vef Samtaka vefiðnaðarins – svef.is ...ég sá það á visir.is Samtök vefiðnaðarins völdu visir.is besta afþreyingarvefinn fyrir árið 2007.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.