Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 2
2 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR BORGARMÁL Í skýrslu sem stýrihóp- urinn um málefni REI kynnir fyrir borgarráði í dag segir að fjölmörg mistök hafi átt sér stað í samninga- og ákvarðanatökuferli um samein- ingu REI og Geysis Green Energy. Ennfremur segir að sú staðreynd að endurskoða þurfi marga þætti málsins sé áfellisdómur yfir allri stjórnsýslu málsins. Stýrihópurinn gerir það að til- lögu sinni að REI verði alfarið í eigu Orkuveitunnar og hafi það hlutverk að sinna þróunar- og fjár- festingaverkefnum erlendis. Stýrihópurinn segir að aðkoma FL-Goup hafi verið mikil og jafn- vel ráðandi í málinu. Þá hafi ekki verið ljóst hver gætti hagsmuna Orkuveitu Reykjavíkur við samn- ingsgerðina. Auk þess er það gagnrýnt að umboð og valdsmörk stjórnenda REI hafi verið óljós. Til dæmis hafi hluthafasamkomulagið í REI við innkomu Bjarna Ármannssonar verið undirritað af hálfu Orkuveit- unnar af starfandi forstjóra félags- ins án þess að fyrir lægi umboð til þess frá stjórninni. Einnig er gagn- rýnt að Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, hafi farið utan með tiltekin fyrirheit án þess að þau hefðu verið kynnt fyrir stjórnum GGE og REI. Í skýrslunni segir orðrétt: „Þjón- ustusamningur til 20 ára milli OR og REI, sem telja má að feli í sér einkavæðingu á allri starfsemi OR utan Íslands, er stefnubreyting sem kjörnir fulltrúar í þeim þrem- ur sveitarfélögum sem eiga Orku- veitu Reykjavíkur hefðu átt að fá tækifæri til að ræða og taka afstöðu til. Jafnframt hefði að mati stýrihópsins verið eðlilegt að kjörnir fulltrúar eigenda tækju afstöðu til þess hvort kaupa ætti hlutafé fyrir 14 milljarða króna í hlutafélagi sem tæki þátt í áhætturekstri á erlendum vettvangi.“ Stýrihópurinn er einnig sam- mála um að í ferlinu hafi orðið trúnaðarbrestur milli æðstu stjórn- enda REI og OR annars vegar og síðan ákveðinna borgarfulltrúa hins vegar. Gísli Marteinn Baldursson, sem sæti á í stýrihópnum, vildi ekki tjá sig um skýrsluna þegar Fréttablað- ið leitaði til hans í gær. „Ég harma það að einhver skyldi leka þessari skýrslu til fjölmiðla í stað þess að leyfa okkur að vinna þetta í friði og kynna svo fyrir borgarráði,“ segir Óskar Bergsson sem einnig sat í stýrihópnum. jse@frettabladid.is lambakjöt í gúllassósu0,5 ltr. Egils gos fylgir með 749 kr. Réttur dagsins VEITUMÁL Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á föstudag tilboð Klæðningar ehf. í lagningu svokallaðrar Hellisheiðaræðar. Tilboð Klæðningar upp á 1.111.111.111 krónur er um 85 prósent af kostnaðaráætlun Orkuveitunnar. Lægra tilboð barst frá félaginu Urð og grjót ehf. en það stóðst ekki skilmála sem settir voru um styrkleika vertaka að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar. Áætlað er að Hellisheiðaræð skili heitu vatni til höfuðborgar- svæðisins á seinni hluta árs 2009. - gar Tóku tilboði í Hellisheiðaræð: Klæðning bauð 1.111.111.111 kr. HELLISHEIÐARVIRKJUN Skilar vatni seinni hluta næsta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Grétar, ertu samansaumaður? „Já í orðsins fyllstu merkingu – allan hringinn.“ Grétar Mar Jónsson alþingismaður er að jafna sig eftir umfangsmikla lýtaaðgerð, sem skildi eftir fleiri sauma en hann hefur tölu á. MENNTAMÁL Júlíus Vífill Ingvars- son, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, sagði á kennararáðstefnu sem haldin var á Nordica hóteli í gær að borgin hygðist greiða framlag til kennara vegna aukins álags sem þeir hafa mátt þola síðustu misserin. Hann segir í samtali við Fréttablaðið að frekari útfærsla verði að öllum líkindum kynnt á borgarráðsfundi í dag. „Mér fannst rétt að segja frá þessu svo þeir vissu að við hefðum skilning á aðstæðum þeirra. Að við værum í raun þakklát fyrir að þeir skuli hafa tekið á sig aukaálag til að sinna ýmsum verkefnum, sem hafa jafnvel hafa verið fyrir utan venjulegan vinnutíma. Kennarar hafa stigið ölduna í því ástandi sem verið hefur þar sem mann- ekla hefur verið.“ - jse Menntaráð Reykjavíkur: Kennarar fá álagsgreiðslu JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON Formaður menntasviðs Reykjavíkurborgar færði kennurum gleðitíðindi á fjölmennri kennararáðstefnu á Nordica hóteli í gær. HEILBRIGÐISMÁL Tveimur miltis- brandssýktum kúahræjum, sem voru grafin upp í Garðabæ í nóv- ember, hefur ekki enn verið farg- að. Um áramótin veitti umhverfis- ráðuneytið undanþágu til að farga hræjunum en þau eru enn geymd í læstum gámi. Grafa kom niður á hræin við framkvæmdir á byggingarlóð í Hraunsholti í Garðabæ, og var yfirdýralækni gert viðvart. Eitur- efnakafarar slökkviliðsins voru síðar fengnir til að fjarlægja þau, og var þeim komið fyrir í vatns- þéttum skipagámi. Í ljós kom að hræin voru af kúm sem drápust úr miltisbrandi árið 1941. Miltisbrandur er í flokki alvarlegustu smitsjúkdóma sam- kvæmt lögum um dýrasjúkdóma. Upphaflega átti að farga hræjunum í Sorpbrennslu Suður- nesja, en hún hafði ekki leyfi til að farga úrgangi af þessu tagi. Þá sendi matvælastofnun erindi til Umhverfisstofnunar, sem sótti um undanþágu til förgunar hjá umhverfisráðuneytinu. Sú undan- þága var veitt Sorpsamlagi Þing- eyinga 2. janúar en ekkert hefur gerst í málinu síðan. „Ég hef ekki skoðað þetta mál síðustu daga, það þarf bara að rifja þetta upp,“ segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. - sþs Erfiðlega gengur að farga tveimur miltisbrandssýktum kúahræjum: Miltisbrandshræ enn í gámi MILTISBRANDUR Eiturefnakafari slökkviliðsins skolar skóflu gröfunnar sem kom niður á hræin í nóvember. Þó miltisbrandur sé í flokki alvarlegustu smitsjúkdóma í dýrum hefur hræjunum ekki enn verið fargað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VIÐSKIPTI Hagnaður hluthafa SPRON vegna ársins 2007 nemur 3.287 milljónum króna, samkvæmt uppgjöri sem birt var í gær. Hagnaður á hlut er 65,7 aurar. Arðsemi eigin fjár SPRON er 11,5 prósent á ársgrundvelli. Af grunnrekstri er arðsemin hins vegar 17,1 prósent, en þá hafa verið bakfærðir rekstrarliðir vegna fjárfestinga og leiðréttar vaxtatekjur sem nema kostnaði samstæðunnar af því að vera með hlutabréfa- og skuldabréfastöður. Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, segir afkomuna vel viðun- andi í ljósi mikilla lækkana á hlutabréfamörkuðum. - óká Hagnaður upp á 3,3 milljarða: Afkoma SPRON sögð viðunandi NEYTENDUR Verð á mat- og drykkjarvörum var 64 prósentum hærra hér en að jafnaði í ríkjum Evrópusambandins (ESB), árið 2006, að því er fram kemur í Hagtíðindum Hagstofunnar. Verðið er hvergi hærra en hér. Miðað er við verð á matarkörfu með ýmsum vörum. Þar á meðal mjólk, kjöti, eggjum og brauði. Það fer eftir gengi krónunnar hversu miklu munar á Íslandi og meðalverði í ESB. Fram kom í skýrslu norrænna samkeppnis - yfirvalda árið 2005 að innflutn- ingshömlur á búvörum væru helsta ástæða hás vöruverðs hérlendis. - ikh Alþjóðlegur samanburður: Hæsta verðið er hér á landi GRUNDARTANGI Ökumaður steypubíls BM Vallár missti stjórn á bílnum við álver Norðuráls á Grundartanga í gærkvöldi. Bíllinn skautaði í hálkunni yfir vegarkant í beygju og út í sjó. Bíllinn fór talsvert langa leið niður í flæðarmálið, yfir hliðið sem afmarkar álverssvæðið og nokkra metra út í sjóinn. Ökumanninum tókst að opna hurðina og sjónarvottar renndu fleka til hans og hjálpuðu honum í land. Hann leitaði síðan aðstoðar í álverinu. Steypubíllinn marar hálfur í kafi. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri BM Vallár, segir að bílstjórinn hafi sloppið ómeiddur og það sé fyrir mestu. Hann hafi verið að koma með steypu frá Akranesi í álverið. Lögregla var kölluð á staðinn og skýrsla tekin af manninum. Þorsteinn á von á því að bíllinn sé ónýtur en segir að það komi betur í ljós á morgun. „Það á eftir að kanna nákvæmlega hvernig þetta bar að og hvort ökumaðurinn hafi verið á of mikilli ferð eða ekki. Það verður farið yfir málið í dag og bílnum náð upp úr sjónum. Það er ekki til neins að hætta mönnum við það í myrkri,“ sagði Þorsteinn í gærkvöld. Éljagangur var á Grundartanga þegar slysið átti sér stað. - ghs Ökumaður steypubíls missti stjórn á bílnum á Grundartanga í gærkvöld: Rann alla leið út í sjó Í SJÓNUM Ökumaður steypubíls missti stjórn á honum og rann bíllinn alla leið út í sjó. Á myndinni má sjá förin eftir bílinn í snjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/MAGNÚS MAGNÚSSON Álagið á slökkvilið höfuðborgar- svæðisins var svo mikið í gær að litlu munaði að ársgamalt met yrði slegið í fjölda sjúkraflutninga. Flest útköll sem sjúkraflutningamenn á tólf tíma vakt hafa fengið er 78 en í gær fóru sjúkraflutningamenn í 73 útköll. „Þá var dælubíllinn kallaður níu sinnum út sem telst mjög mikið,“ segir Guð- mundur Guðjónsson, innivarðstjóri. SLÖKKVILIÐ 73 sjúkraflutningar í gær Skýrsla stýrihóps er harður áfellisdómur Skýrsla stýrihóps um málefni REI verða kynnt fyrir borgarráði í dag. Áfellisdóm- ur yfir stjórnsýslu málsins. Ekki ljóst hver gætti hagsmuna Orkuveitunnar. Borg- arfulltrúi Framsóknarflokksins harmar að skýrslan hafi komist til fjölmiðla. ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Í skýrslunni kemur fram að þjónustusamn- ing OR og REI hafi falið í sér einkavæðingu á allri starfsemi OR utan Íslands. SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.