Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Dr. Gunna Sá sem fann upp á spekinni um að ekki skuli dæma bókina eftir kápunni var augljóslega að þvaðra út um vitlausan enda. Eins og kápur segja til um innihald bóka kemur fólk upp um skoðanir sínar með útlitinu. Kápur og fólk leyna stund- um á sér en það er sjaldgæft. AUGLJÓSAST var þetta á upp- vaxtarárum mínum. Þá skiptist fólk í tvo mjög afgerandi flokka, komma og sjalla. Kommar og sjallar litu mjög ólíkt út. Kommarnir síð- skeggjaðir og síðhærðir í gæruúlp- um en sjallarnir vatnsgreiddir í svörtum jakkafötum, með lakkrís- bindi og oftar en ekki með horn- spangargleraugu í svartri umgjörð á nefinu. Heima hjá mér var þetta fólk kallað „smjörkúkar“ og enn þann dag er það fyrsta orðið sem mér dettur í hug þegar ég sé full- trúa þessa hóps. NÚ eru gamlir kommar og smjör- kúkar að reyna að semja um það hvort láglaunafólk eigi að fá 142.000, 145.000 eða 150.000 á mán- uði í staðinn fyrir þessar 125.000 sem það fær í dag. Þótt menn hafi lítillega breyst sér maður strax hver tilheyrir hvaða hópi. Það er annars merkilegt að fyrir fjórum mánuðum var allt hér í geðveikri uppsveiflu og útrásin í fullum blóma, en nú, þegar láglaunafólk vill fá örlítið stærri mylsnu af góð- æristertunni, er allt að fara til fjandans. Heppileg tilviljun. STJÓRNMÁLAÚTLITIÐ sést einnig á unga fólkinu í Háskólan- um. Maður þarf ekki að líta nema einu sinni yfir framboðslistana til að sjá hver tilheyrir Röskvu og hver tilheyrir Vöku. Reyndar er skemmtilegt að sjá að horn- spangargleraugun sem enginn sannur smjörkúkur gat verið án sjást nú líka stundum á vinstrafólki og heita þá nördagleraugu. UNDRUNIN og reiðin vegna valdaskiptanna í borginni um dag- inn voru ekki síst tengd útliti aðal- leikaranna. Við höfðum Dag, glæsi- legan ungan mann með vandað hár, sem slútti tignarlega fram á ennið, löðrandi í ilmandi hárvörum. Hann gæti leikið James Bond hvenær sem er. Í staðinn höfðu tveir glærir karlar, sem báðir gætu leikið vonda karlinn í Bond-mynd, ruðst fram á sviðið með frekju. Hollywood- mötuð undirmeðvitundin hvíslaði að borgarbúum: Vondu karlarnir unnu og James Bond var gerður útlægur. Eðlilega varð allt vitlaust. Nú er bara að sjá hvort höll vondu karlanna springi ekki í loft upp eins og í öllum alvöru Bond-myndum. Stjórnmálaútlitið Sorrí Páll Í Bakþönkum á þriðjudag varð mér á að eigna Páli Magnússyni útvarpsstjóra ummæli sem Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður lét falla í frétt um RÚV. Ummælin voru þessi: „Ég er þeirrar skoðunar að RÚV eigi ekki að vera á auglýsingamarkaði. Það eru til margar röksemdir fyrir tilvist ríkis fjölmiðils en þær eiga ekki við um tilvist hans á auglýsingamarkaði. Við megum ekki láta ríkisvaldið þrengja á einkaaðilum á þessum markaði frekar en öðrum.“ Ummæli Páls, sem átti að vísa til, eru að það væri „betra fyrir stofnunina sjálfa og hún væri betur í stakk búin til að uppfylla skyldur sínar ef hún væri ekki á auglýsingamarkaði“. Beðist er velvirðing- ar á þessu. - Karen D. Kjartansdóttir LEIÐRÉTTING Gríptu augnablikið og lifðu núna Nú hefur Vodafone stórlækkað verð á símtölum til og frá Evrópu. Öll lönd Evrópusambandsins og EES, auk Færeyja og Sviss, eru orðin eitt gjaldsvæði og nemur lækkunin um og yfir 50%! Fyrir þá sem eru mikið á ferð og flugi hentar vel að skrá sig í Vodafone Passport, en þá talar þú á sama mínútuverði og á Íslandi gegn vægu upphafsgjaldi. Kynntu þér málin á www.vodafone.is áður en þú skellir þér til Evrópu. Vodafone er einfaldlega rétti ferðafélaginn fyrir þig. Frábær ferðafélagi F í t o n / S Í A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.