Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 64
52 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is U-21 árs karlalandslið Íslands í fótbolta beið lægri hlut gegn Kýpur, 2-0, í undankeppni Evrópumótsins 2009 á Pafiako- leikvanginum í Paphos á Kýpur. Ísland er sem stendur í þriðja sæti riðilsins með sex stig eftir sex leiki og hefði komist upp í annað sæti riðilsins með sigri gegn Kýpur. Þess í stað komust Kýpverjar upp að hlið Íslands með sex stig eftir sex leiki og hafa þeir tekið öll sín stig gegn Íslendingum. „Við töpuðum gegn Kýpur heima á Íslandi í fyrsta leik undankeppninnar í ágúst á síðasta ári og mér fannst við hafa vaxið með hverjum leik síðan þá og ég er því mjög vonsvikinn með að tapa aftur gegn Kýpur,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari U-21 liðsins og bætti við: „Við spiluðum 4-3-3 leikkerfið og sóttum stíft í fyrri hálfleik og sköpuðum okkur nóg af færum. Arnór Smárason átti gott skot sem fór í stöngina snemma leiks og eftir það komust bæði Arnór og Birkir Bjarnason, sem spilaði einn í framlínunni framan af, inn fyrir vörnina og einir á móti markverði Kýpur en náðu ekki að skora. Við vorum því töluvert betri í fyrri hálfleik en síðan í seinni hálf- leik fengum við á okkur réttmæta vítaspyrnu á 56. mínútu sem Kýpur skoraði úr. Strákarnir sofnuðu svo á verðinum eftir það og tveimur mínútum síðar var staðan orðin 2-0 þegar Kýpur skoraði eftir hornspyrnu,“ sagði Lúkas sem var ekki nógu ánægður með hugarfar sinna manna við mótlætið. „Við breyttum yfir í 4-4-2 leikkerfið og Hjálmar Þórar- insson kom þá í sóknina eftir að Kýpur skoraði seinna markið og við reyndum að sækja en náðum sem fyrr ekki að nýta færin. Þetta er sennilega í fyrsta skiptið sem ég er ekki ánægður með hugafarið hjá strákun- um og þeir voru að klikka á einföldum hlutum eins og stuttum sendingum. Mér fannst ákveðnir menn heldur ekki bregðast nógu vel við mótlætinu þegar við fáum þessi mörk á okkur og ég fór yfir þessi atriði í búningsklefanum strax eftir leik með strákunum. Það vantaði dugnaðinn, hlaupin og baráttuna sem höfðu verið aðalsmerki okkar fram að þessum leik.“ LÚKAS KOSTIC, LANDSLIÐSÞJÁLFARI U-21 LIÐS KARLA: ER AFAR ÓSÁTTUR MEÐ TAPIÐ GEGN KÝPUR Í GÆRDAG Það vantaði dugnaðinn, hlaupin og baráttuna "heilsteypt flott listarverk þar sem lögn leikstjórans er svo skýr að ekkert verður að vafamáli." "stúlkuna túlkar Þóra Karítas með mikilli nánd og styrk." "samspil leikaranna er frábært." "KK rammaði sýninguna inn, var límið, var ryþminn, var lagið sem menn dilluðu sér við." "vonandi að unnendur góðrar leiklistar láti ekki þessa sýningu framhjá sér fara" E.B. Fréttablaðið "fátt sem geislar jafnmikilli ástríðu á sviði núna" "Magnús Guðmundsson sýnir frábæran leik sem Martin." M.E. Morgunblaðið "Sveinn Ólafur Gunnarsson fer vel með hlutverk Eddies, hann er yfirmátar svalur og jafnframt ástríðufullur". "til hamingju!" Víðsjá. RÚV Tryggðu þér miða núna í síma 551 4700 eða á midi.is Silfurtunglið, Austurbæ. Síðustu sýningar: fim 7/2 kl 20 lau 9/2 kl 20 fös 15/2 kl 20 lau 16/2 kl 20 Ekki missa af Fool for Love! Gagnrýnendur eru á einu máli FÓTBOLTI Markamaskínan Olga Færseth hjá KR er enn óákveðin hvort hún ætli sér að halda áfram að spila í Landsbankadeildinni eða leggja skóna á hilluna frægu, en hún hefur ekki verið í leik- mannahópi í tveimur fyrstu leikjum Vesturbæjarliðsins í Reykjavíkurmótinu. „Það er í raun ekkert komið á hreint í þessum málum og ég er enn að velta þessu fyrir mér en mun taka ákvörðun á allra næstu dögum. Það er hins vegar alveg klárt að ég mun ekki leika fyrir annað lið en KR ef ég ætla að halda áfram,“ sagði Olga sem er langmarkahæsti leikmaður efstu deildar kvenna með 265 mörk og hefur 111 mörk í forskot á Ástu B. Gunnlaugsdóttur, fyrrum leik- mann Breiðabliks, og Helenu Ólafsdóttur, þjálfara sinn hjá KR og fyrrum leikmann KR, en Ásta og Helena skoruðu 154 mörk á sínum tíma. Olga, sem verður 33 ára á þessu ári, hóf að leika í efstu deild árið 1992 og hefur síðan þá leikið 202 leiki. Hún lék sextán leiki í Landsbankadeildinni síð- asta sumar og skoraði í þeim sex- tán mörk og hlaut bronsskóinn fyrir vikið. - óþ Olga Færseth íhugar framtíðina þessa dagana:: Áfram í KR eða hættir > Tækifæri til bikarhefnda Fimm leikir fara fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. Stórleikur kvöldsins er þegar Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára mætast í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Njarðvík sló KR á dögunum út í bikarnum og leita Vesturbæingar örugglega hefnda í kvöld alveg eins og Borgnesingar sem sækja Fjölnismenn heim í Grafarvoginn aðeins fjórum dögum eftir að Fjölnir sló Skallagrím út úr undanúrslitum Lýsingarbikarsins á þeirra eigin heimavelli. Aðrir leikir kvöldsins eru ÍR-Keflavík í Seljaskóla, Grindavík-Tindastóll í Röstinni í Grindavík og Snæfell-Hamar í Hólminum. FÓTBOLTI Ísland lauk þátttöku sinni á fjögurra þjóða æfingamóti á Möltu í gær með því að leggja Armeníu, 2-0, með mörkum frá Eyjapeyjunum Tryggva Guð- mundssyni og Gunnari Heiðari Þorvaldssyni. Liðið vann þar með einn leik á mótinu en tapaði tveim- ur – gegn Hvít-Rússum og Möltu. Þetta var fyrsti sigur landsliðs- ins undir stjórn Ólafs Jóhannes- sonar og einnig í fyrsta skipti sem liðið skorar mark undir hans stjórn. Ólafur hafði beðið í 315 mínútur eftir marki þegar Tryggvi skoraði og er þetta næstlengsta bið þjálfara frá upphafi eftir fyrsta markinu eins og sjá má á töflunni hér að neðan. „Þetta var frekar öruggur sigur hjá okkur. Armenarnir fengu eiginlega engin færi og við vorum talsvert betri aðilinn. Ég átti ekki von á Armenunum sterkari enda eru þeir ekkert betri en við. Þessi leikur var svipaður og leikurinn gegn Rússunum fyrir utan að við nýttum færin okkar núna sem er mjög jákvætt,“ sagði Ólafur kampakátur og augljóst að þungu fargi var af honum létt eftir frek- ar dræma byrjun í starfi. „Auðvitað er þetta mikill léttir og talsvert skemmtilegra að vinna leiki en tapa þeim. Strákarnir sýndu líka frábæran karakter eftir mjög lélegan leik gegn Möltu. Við vildum ekki tapa öllum leikj- unum hérna. Þetta mót er annars að skila því sem ég vildi og er mjög sáttur við að við höfum farið á þetta mót. Ég er búinn að kynn- ast mörgum mönnum, sjá hvernig þeir eru í hóp og nú verð ég að vinna úr þessu öllu í framhald- inu,“ sagði Ólafur en hann sagði innkomu ungu leikmannanna hafa verið sérstaklega ánægjulega. „Ég veit hvað flestir hinir geta en vildi kynnast þeim betur, sjá hvernig þeir virkuðu í hópnum og annað. Það er búinn að vera frá- bær andi í hópnum allan tímann og menn stóðu í lappirnar þrátt fyrir tap í fyrstu tveim leikjunum og komu grimmir í lokaleikinn. Við vissum að við gætum lagt öll þessi lið og ánægjulegt að enda mótið á sigri eftir allt saman,“ sagði Ólafur en landsliðið mætir næst Færeyingum í Kórnum í mars. henry@frettabladid.is Mikill léttir að ná loksins sigri Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann sinn fyrsta sigur og skoraði í fyrsta sinn undir stjórn Ólafs Jó- hannessonar er liðið lagði Armena á Möltu, 2-0. Á SKOTSKÓNUM Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrsta markið á landsliðsþjálfaraferli Ólafs Jóhannessonar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS Svona stillti Ólafur Jóhannesson lið- inu upp gegn Armeníu í gær: Markvörður: Kjartan Sturluson H. bakvörður: Birkir Már Sævarsson V. bakvörður: Hermann Hreiðarsson Miðvörður: Atli Sveinn Þórarinsson Miðvörður: Ragnar Sigurðsson Tengiliður: Bjarni Guðjónsson Tengiliður: Stefán Gíslason Tengiliður: Jónas Guðni Sævarsson H. kantur: Eyjólfur Héðinsson V. kantur: Tryggvi Guðmundsson Framherji: Gunnar H. Þorvaldsson LENGSTA BIÐ ÞJÁLFARA EFTIR FYRSTA MARKINU: Þessir landsliðsþjálfarar hafa þurft að bíða lengst eftir fyrsta markinu sem landsliðsþjálfarar: Júrí Ilitchev, 1978 375 mínútur Ólafur Jóhannesson, 2007-08 315 Tony Knapp, 1984 210 Duncan McDowell, 1972 205 Eyjólfur Gjafar Sverrisson, 2006 193
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.