Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 4
4 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR FASTEIGNIR Ingunn Wernersdóttir fjárfestir er að breyta Þingholtstræti 29a aftur í fjölskyldu- hús. „Það er verið að endurnýja húsið og gera það í eins upprunalegri mynd og hægt er,“ segir Ingunn. Hið glæsilega einbýlishús Þingholtstræti 29a var byggt árið 1916 af þýska kaupmannin- um Obenhaupt. Ólafur Johnsen stórkaupmað- ur átti húsið næst. Starfsbróðir hans Árni Jónsson eignaðist síðar húsið en seldi það árið 1952 til Reykjavíkurborgar sem rak þar aðalbókasafn sitt til ársins 2000. Þá keypti Guðjón Már Guðjónsson í OZ húsið. Hann seldi það norska listmálaranum Odd Nerdrum tveimur árum síðar. Ingunn keypti húsið síðan af Oddi í fyrra og er þar með orðinn sjöundi eigandi þess. Ingunn segir miklar breytingar hafa verið gerðar á innviðum hússins í gegnum árin. Fyrst og fremst hafi Borgarbókasafnið lagað húsakynnin að starfsemi sinni. „Húsið var byggt sem fjölskylduhús og ég ætla að breyta því í þannig horf og gera það íbúðarhæft,“ segir Ingunn. Reiknað er með að endurnýjun hússins taki um tvö ár. Ingunn segist hafa sér til fulltingis verktaka, arkitekt og verkfræðing sem hafi mikla reynslu af því að gera upp gömul hús. „Húsið er því miður afar illa farið. Til dæmis eru þakrennur ónýtar og það lekur með þakinu. Það hefur skemmt út frá sér því lekanum var ekki sinnt. Eins þarf að endurnýja og lagfæra alla glugga. Hér eru voldugir og virðulegir gluggar sem voru með bæði innri og ytri gluggahlerum en einhver hefur tekið sig til og hent nánast öllum innri hlerunum. Það er líka búið að henda mörgum gömlum hurðum og ofnum. Þetta þarf að endurgera sem er auðvitað heilmikið verkefni en á endanum verður þetta mjög skemmtilegt,“ segir Ingunn. Framkvæmdir innanhúss eru þegar hafnar. Ingunn segir mörg lög af illa förnu parketi hafa komið í ljós, hvert öðru verra. „Þannig að nú verður að finna eitthvert gamaldags parket,“ segir hún. Aðspurð kveðst Ingunn enn ekki hafa ákveðið hvort hún flytji sjálf inn í Þingholts- stræti 29a: „Ég er ekki alveg ákveðin en þetta verður að minnsta kosti hús fyrir fjölskyldu.“ gar@frettabladid.is Blæs nýju lífi í glæsivillu Húsið á Þingholtsstræti 29a verður endurnýjað í upprunalegri mynd. Fjárfestirinn Ingunn Wernersdóttir segist ætla að gera húsið að fjölskylduhúsi á ný. Ingunn kveðst þó ekki hafa ákveðið hvort hún búi þar sjálf. VILLA FRIDA Hús Ingunnar Wernersdóttur hefur verið kallað ýmsum nöfnun í gegnum tíðina. Esjuberg er þekktasta heiti þess en fyrsti eigandinn nefndi það Villa Frida eftir eiginkonu sinni. Ingunn er að hugsa um að taka það nafn upp aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA INGUNN WERNERSDÓTTIR NÝTT ELDHÚS Í þessum tignarlega sal á fyrstu hæð verður eldhús. BÓKALYFTAN Margir muna eftir lyftunni sem flutti bækur á milli hæða. Hún verður fjarlægð. STIGINN Voldugur stigi liggur milli hæða. VERÖNDIN Rúmgott er á veröndinni. ALÞINGI Miðað er við að sveitarfé- lögin taki yfir málefni fatlaðra í ársbyrjun 2011. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra upplýsti það á Alþingi í gær í svari við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur, Sjálfstæðis- flokki. Rósa grennslaðist einnig fyrir um hug ráðherra til fjöl- breytni í rekstrarformum sambýla fatlaðra og sagðist Jóhanna hlynnt athugun á slíku. Árni Þór Sigurðsson, VG, varaði við að þingið fjallaði um breytt rekstrarform enda sveitarfélag- anna að ákveða eftir að málaflokk- urinn verður kominn á þeirra forræði. - bþs Flutningur verkefna frá ríkinu: Sveitarfélögin fá fatlaða 2011 BÚFJÁRHALD Tilraun sem gerð var til að ná sex kindum niður úr Ólafsvíkurenni í gær tókst ekki. Þær voru komnar nokkuð neðar- lega í fjallið, en tóku strikið upp á syllurnar aftur þegar þær urðu varar við mannaferðir. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá eru kindurnar búnar að vera í Enninu síðan í haust. Þær hafa ekki náðst niður þrátt fyrir tilraunir til þess. Upphaflega voru þær sjö en eru nú sex, þar sem ein er talin hafa runnið í hálku og hrapað til bana. Bæði er um að ræða fullorðnar kindur og lömb. „Það er ein kindin sem ræður ferðinni og er eldstygg. Hún virð- ist ráða alveg yfir hinum og þær fara á eftir henni,“ segir Margrét Þorláksdóttir, annar eigenda kind- anna. „Hún ætlar bara ekki niður hvað sem á gengur.“ Að sögn Margrétar fór hinn eig- andi kindanna upp í Ennið við annan mann upp úr hádeginu í gærdag því þeir sáu að kindurnar voru komnar neðarlega í fjallið. Þótti því lag að reyna að ná þeim. Mennirnir voru með hund með sér en það dugði ekki til. Þeir urðu frá að hverfa vegna hálku ofar í fjall- inu. „Það verður reynt aftur,“ segir Margrét og bætir við að vonandi viðri vel til þess að hægt verði að ná kindunum niður. - jss Tilraun til að ná kindunum sex niður úr Ólafsvíkurenni mistókst: Tóku strikið upp í syllur á ný KINDURNAR Í ÓLAFSVÍKURENNI Eru ekki á því að láta ná sér. LÖGREGLUMÁL „Þau skiptu sér í hópa og áttu eitthvað sökótt við hvert annað,“ segir Viðar Jökull Björnsson, rekstrarstjóri Kringlunnar, um ólæti unglinga í Kringlunni í gær. Hann segir daginn hafa byrjað vel með því að yngri börn hafi sungið fyrir verslunareigendur. Upp úr hádegi hafi margir unglingar komið í Kringluna og hluti þeirra látið ófriðlega. Hafi öryggisverðir brugðist við og komið þeim út úr húsi. „Þessi dagur er vinsæll hvað varðar aðsókn í húsið en svona ólæti höfum við ekki séð í nokkur ár,“ segir Viðar. Hann segir bæði öryggisverði og lögregluþjóna, sem kallaðir voru til, þekkja hvernig eigi að takast á við svona aðstæður og því hafi allt verið undir fullkominni stjórn. - ovd Skrílslæti unglinga: Slagsmál í Kringlunni STJÓRNMÁL Grétar Mar Jónsson, Frjálslynda flokknum, furðar sig á að prestar þjóðkirkjunnar hafi ekki tjáð sig um álit Mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna um íslenska fiskveiðistjórn- unarkerfið. „Mannrétt- indabrot eru staðfest. Það kemur fram berum orðum að ekki megi mismuna Jóni og séra Jóni,“ segir Grétar Mar. Hann bendir á að prestar séu duglegir við að fjalla um mannrétt- indabrot í fjarlægum löndum. Þeim mun háværari sé þögn þeirra nú þegar íslensk stjórnvöld eru uppvís að mannréttindabrotum. - bþs Grétar Mar Jónsson: Undrast þögn þjóðkirkjunnar GRÉTAR MAR JÓNSSON                   ! # $ %    &      &   '    # ( ! %'  ) # $  *+,  -. /+,  -. 0+,  -. 1+, 2+,3 -. 04+,  -. 05+,  -. *+,3 -. /+,  -. 6+,  -. /+,  -. 7+,  -. 06+,  02+,  44+,  -.             ! " # $%  & '!!  &( )   & &(      *' &( " +      & ,&( ) ( ) &&  &&( ((   $- )  ! . ) & (  )((  /&    !  *$-  )),&" *( )!    ( &( (    &( &( & 0 " 1 *'   2  & )&& &  &  ,   - !    & &( &(   ) , !       !" 89 9 8:" 9  ;        9  # +"   && . *2         0< 0< 0< 45 01 06 05 41 01 0< 0<    4    GENGIÐ 06.02.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 126,9569 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 65,83 66,15 128,9 129,52 96,13 96,67 12,897 12,973 11,932 12,002 10,168 10,228 0,6175 0,6211 103,98 104,6 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.