Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 8
7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
!"
#
$
%
%
!
$
'
(
&
$
) *
+"
+
%
&
, !
%
%
*
$")
$
*
$
+
&
-
.
/
012
3 "%
/
(%
441
5111
/
,6
441
5101
/
777&'(&
8
(
9
3
:
&;
(
<
'
(
1
2
0
4
4
SAMKEPPNISMÁL „Ég hef gagnrýnt
það áður að markaðsráðandi aðil-
ar beiti undirverðlagningu til að
koma sér betur fyrir á markaði,“
segir Sturla Gunnar Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri Samkaupa.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
að að Samkeppniseftirlitið telji að
Bónus hafi misbeitt markaðsráð-
andi stöðu í verðstríði lágvöru-
verðsverslana árin 2005 og 6. Eft-
irlitið hefur ekki lokið málinu.
Hagar, móðurfélag Bónusversl-
ananna, hafa nýlega sent eftirlit-
inu röksemdir sínar og mótmæla
því að lög hafi verið brotin.
Verðstríðið hófst með því að
mjólkurlítrinn var seldur á sjö
krónur í verslunum Krónunnar.
Aðrir fylgdu í kjölfarið og innan
dags hafði verðið lækkað niður í
eina krónu á lítrann.
Sturla Gunnar er ósáttur við
framgöngu keppinauta á mat-
vörumarkaði. „Þeir hafa keypt
sér markaðshlutdeild fyrir millj-
arða.“ Þar vísar hann til þess að
keppinautar hafi komið sér fyrir
á stöðum úti á landi þar sem versl-
anir Samkaupa voru fyrir. „Við
höfum tapað tugum milljóna á
slíkum rekstri, og höfum þurft að
loka verslunum, eins og á Akra-
nesi.“
Haft var eftir Finni Árnasyni,
forstjóra Haga í blaðinu í gær, að
neytendur hefðu ekki skaðast af
lágu mjólkurverði.
„Ég veit ekki hvort neytendur
hagnast á svona löguðu til lengri
tíma litið ef þetta verður til þess
að draga úr samkeppninni,“ segir
Sturla Gunnar.
Sturla segir ábyrgð stjórnmála-
manna mikla í þessum efnum.
„Hvernig á að hafa samkeppni ef
aðili á markaðnum fær ekki að
reisa verslun í höfuðborginni?
Við höfum sótt um lóðir árum
saman. Ég hef rætt við marga
borgarstjóra og skrifað borgar-
fulltrúum og samt fáum við engin
svör.“ - ikh
Framkvæmdastjóri Samkaupa gagnrýnir keppinauta og borgarfulltrúa í Reykjavík:
Segir keppinauta hafa keypt
markaðshlutdeild fyrir milljarða
MJÓLK Í KÆLI Samkeppniseftirlitið telur að Bónus hafi misbeitt stöðu sinni með því
að selja mjólk á krónu fyrir um þremur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FRAMKVÆMDIR Bjóða þarf út
á ný það sem út af stendur
við tvöföldun Reykjanes-
brautar. Fyrirtækið Jarð-
vélar þurfti að segja sig frá
verkinu vegna fjárhagsörð-
ugleika.
Jón Rögnvaldsson vega-
málastjóri segir að kannað
hafi verið hvort gerlegt
væri að undirverktakar
Jarðvéla héldu verkinu
áfram á grundvelli samninga en
slíkt hafi ekki reynst mögulegt.
Því verði að efna til útboðs. „Það
er verið að vinna að undirbúningi
við að bjóða út það sem eftir er,“
segir Jón og vonast til að það verði
hægt nú í febrúarmán-
uði. Málið sé unnið af
eins miklum krafti og
unnt er.
Eftir eru framkvæmd-
ir fyrir um eða yfir 500
milljónir króna. Stærsti
einstaki liðurinn er lagn-
ing malbiks en einnig á
eftir að reisa tvær brýr.
Upphaflega voru
verklok áætluð 1. júlí í
sumar en nú er ljóst að þau drag-
ast fram á haustið. „Því miður
seinkar þessu um hverja vikuna
sem líður en við reynum eins og
hægt er að flýta ferlinu,“ segir
Jón Rögnvaldsson. - bþs
Vegamálastjóri vonast til að tvöföldun Reykjanesbrautar ljúki í haust:
Nýtt útboð nauðsynlegt
ALLT STOPP Upphaflega átti að ljúka tvö-
földun Reykjanesbrautar 1. júlí í sumar
en nú er ljóst að verklok dragast fram á
haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
JÓN
RÖGNVALDSSON