Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 12
7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
KÍNA, AP Blaðamaður frá Hong
Kong hefur verið látinn laus úr
fangelsi í Kína þar sem hann hafði
verið látinn dúsa í nærri þrjú ár,
sakaður um njósnir.
Ching Cheong, fréttaritari
Singapore-blaðsins The Straits
Times í Hong Kong, neitaði að tjá
sig við blaðamenn eftir heimkom-
una úr fangelsisvistinni í
Guangzhou í Suður-Kína.
Í ágúst 2006 var Ching dæmdur
í fimm ára fangelsi fyrir njósnir í
þágu Taívans. Að Ching skyldi lát-
inn laus nú er gjarnan sett í sam-
hengi við viðleitni Kínastjórnar til
að bæta ímynd landsins erlendis
vegna Ólympíuleikanna í Peking í
sumar. - aa
Blaðamaður frá Hong Kong:
Laus úr kínversku fangelsi
FRJÁLS Þessa mynd birti fjölskylda
Chings þar sem hann sést ásamt systur
sinni í Hong Kong. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR WWW.N1.IS
N1 býður úrval af legum og tengdum vörum
fyrir iðnað, bifreiðar og sjávarútveg. Hafðu
samband við fagmenn okkar í síma 440 1233.
LEGUR
Legur · Leguhús · Reimar · Tannhjól · Reimskífur
Pakkdósir · Sérverkfæri · Legufeiti
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
ÍTALÍA, AP Giorgio Napolitano, for-
seti Ítalíu, sá sig nauðbeygðan til
að rjúfa þing í gær og boða til
kosninga, aðeins tveimur árum
eftir að stjórn Romanos Prodis tók
við völdum.
Eftir að stjórn Prodis missti
meirihlutann í síðustu viku hefur
Napolitano lagt mikla áherslu að
fá formenn flokkanna til að mynda
bráðabirðgastjórn sem sæti þang-
að til kosningareglum stjórnar-
skrárinnar hefði verið breytt.
Hann fékk Franco Marini, forseta
þingsins, til að ræða við formenn-
ina, en þær tilraunir mistókust og
því var ekki annað til ráða en að
boða kosningar.
Núverandi kosningafyrirkomu-
lag var samþykkt á síðustu mán-
uðum stjórnar Silvios Berluscon-
is, leiðtoga stjórnarandstöðunnar,
sem hefur lagt áherslu á að gengið
verði strax til kosninga. Það var
einkum andstaða hans við breyt-
ingar á kosningafyrirkomulaginu
sem varð til þess að myndun
bráðabirgðarstjórnar tókst ekki.
Kosningafyrirkomulagið þykir
ýta undir óstöðugleika með því að
auka vægi lítilla flokka þannig að
erfitt er að mynda starfhæfan
meirihluta í öldungadeild þings-
ins. Stjórn Prodis féll einmitt
vegna þess hve meirihluti hennar
stóð tæpt í öldungadeildinni.
Hægriflokkabandalag Berl-
usconis nýtur nú meira fylgis en
miðju- og vinstriflokkarnir sem
stóðu að naumum stjórnarmeiri-
hluta Prodis. Mótframbjóðandi
hans verður væntanlega Walter
Ventroni, sem er borgarstjóri í
Róm og er jafnframt leiðtogi Lýð-
ræðisflokksins, sem nýlega var
stofnaður með sameiningu tveggja
vinstri- og miðjuflokka.
Veltroni, sem er rúmlega fimm-
tugur, þykir eiga möguleika á að ná
miklu fylgi með nýja flokkinn sinn,
en almennt er þó talið að Berl-
u sconi, sem er 71 árs, fari létt með
að sigra í kosiningunum.
Prodi, sem er 68 ára, situr áfram
sem forsætisráðherra þangað til
kosningar hafa verið haldnar og ný
stjórn mynduð. Hann staðfesti í
gær að hann muni ekki bjóða sig
fram til þings aftur.
- gb/aa
Ítalir kjósa
þing í apríl
Ítalíuforseti rauf þing í gær og boðaði til kosninga
13. og 14. apríl næstkomandi. Ekki tókst að mynda
bráðabirgðastjórn til að breyta stjórnarskránni.
FÆR SITT FRAM Silvio Berlusconi væntir þess að komast aftur til valda þegar kosið
hefur verið á ný. Móðir hans dó á sunnudag, 97 ára að aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÆREYJAR Frumvarp um
lögleiðingu staðfestrar
samvistar eða um ætt-
leiðingarrétt samkyn-
hneigðra verður ekki
lagt fram á nýhöfnu
fjögurra ára kjörtíma-
bili færeyska Lög-
þingsins.
Yrði tilraun gerð til
þess áliti Miðflokkur-
inn, einn stjórnar-
flokkanna þriggja í
nýju landstjórninni,
það vera brot á stjórn-
arsáttmálanum og til-
efni stjórnarslita. Þetta
hefur fréttavefur fær-
eyska útvarpsins eftir
Jenis av Rana, formanni
Miðflokksins.
„Við sömdum um það
frá fyrsta fundi að þessi
mál yrðu látin liggja í
fjögur ár. Það verða
engar breytingar,“ segir
Jenis av Rana.
- aa
Stjórnmál í Færeyjum:
Staðfest samvist ekki á dagskrá
JENIS AV RANA