Fréttablaðið - 07.02.2008, Page 14

Fréttablaðið - 07.02.2008, Page 14
14 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR NÝJA-SJÁLAND, AP Mikið vanskapað ungabarn frá Samóa-eyjum hefur fengið landvistarleyfi í Banda- ríkjunum til að komast í aðgerð. Þetta gerðist eftir að spítalar á Nýja-Sjálandi höfnuðu barninu um meðferð. Stúlkubarnið fæddist fyrir hálfu ári með engin augu, enga fingur og aðeins með hluta af heila. Nýsjálenska ríkisstjórnin neitaði barninu og foreldrum þess inngöngu inn í landið í desember síðastliðnum. Skurðlæknar á barnaspítala á Miami hafa boðist til þess að aðstoða stúlkuna foreldrunum að kostnaðarlausu. - kka Kraftaverkabarn: Barni neitað um læknisaðstoð Í BÚNINGI Verðbréfamiðlari við þýsku kauphöllina í Frankfurt er hér mættur í búningi í lögreglustíl. Hefð hefur skapast fyrir því að starfsmenn kaup- hallarinnar klæðist búningum í einn dag í tilefni kjötkveðjuhátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Árás á ráðuneyti Maður kastaði bensínsprengju að byggingu japanska utanríkisráðuneyt- isins í Tókíó í gær og reyndi því næst að svipta sig lífi með hnífi. Var hann fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans. Óljóst er af hverju hann kastaði sprengjunni á ráðuneyt- ið. Engar skemmdir urðu. JAPAN FRAKKLAND, AP Idriss Deby, forseti Tsjad, kom í gær fram opinberlega í fyrsta skipti frá því átök upp- reisnarmanna og stjórnarhers hóf- ust síðustu helgi. Sagði hann að tekist hefði að brjóta uppreisnina á bak aftur og að yfirvöld hefðu stjórn á öllu landinu. Varnarmálaráðherra Frakklands, Herve Morin, kom til Tsjad í gær. Koma Morins þykir til marks um sterkan stuðning Frakklands við ríkisstjórnina í Tsjad. Daginn áður sagði Nicolas Sarkozy Frakklands- forseti að Frakkar væru reiðubún- ir að hefja hernað gegn uppreisn- armönnum í Tsjad ef þörf krefur. Frakkar hafa nú þegar rúmlega þúsund manna herlið í Tsjad, sem er fyrrverandi nýlenda Frakka. Árið 2006 hjálpaði franski herinn Deby að bæla niður uppreisn. Hann komst sjálfur til valda í uppreisn snemma á síðasta áratug. Stjórn hans hefur þótt meðal þeirra spillt- ustu í heimi. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi á mánudag harðlega árásir uppreisnarsveitanna og gaf bæði Frökkum og öðrum ríkjum grænt ljós á að hjálpa stjórninni. Í gær og fyrradag héldu upp- reisnarmennirnir sig að mestu í útjaðri höfuðborgarinnar. Þúsund- ir manna hafa flúið átökin og meira en þúsund manns særst. - gb/sdg Forseti Tsjad lýsti í gær yfir að yfirvöld væru komin með stjórnina í landinu öllu: Uppreisnin brotin á bak aftur ÁRBORG „Þetta hefur gengið vel. Bæði starfsmenn sveitarfélagsins og verktakar hafa unnið langa vinnudaga og eiga hrós skilið,“ segir Guðmundur Elíasson, framkvæmdastjóri Framkvæmda- og veitusviðs Árborgar, um mikinn snjómokstur í sveitarfélaginu nú í vetur. Víða um land eiga starfs- menn sveitarfélaga fullt í fangi með að moka snjó af götum. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, segir að kostnaðurinn sé kominn hátt í fimmtíu milljónir króna en 6,2 milljónir voru áætlaðar í snjómokstur árið 2008. Hún segir erfitt að áætla kostnaðinn. „Þetta er verkefni sem verður að fara í hvað sem maður áætlar,“ segir Ragnheiður. „Dýrustu dagarnir núna hafa verið í kringum þrjár milljónir á dag,“ segir Guðmundur og bætir við að unnið sé á allt að fjórtán tækjum í einu þegar mest lætur. „Í svona tíð biðjum við fólk að sýna þolinmæði og tillitsemi því það er heilmikið mál að vera með svona stór tæki inni í bænum,“ segir Ragnheiður sem tekur undir orð Guðmundar um að vel hafi gengið að ryðja snó af götum bæjarins. „Þetta gerist ekki nema með samhentu átaki.“ - ovd Mjög mikil úrkoma í vetur hefur sett áætlanir margra sveitarfélaga úr skorðum: Kostnaður við mokstur hátt í 50 milljónir SNJÓMOKSTUR Á SELFOSSI Sveitarfélagið Árborg á fimm tæki til snjómoksturs og eru tvö þeirra höfð á Eyrarbakka og Stokkseyri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Birkir Jón spurull Birkir Jón Jónsson hefur lagt fram nokkrar fyrirspurnir á þingi. Hann spyr meðal annars hvort umhverfis- ráðherra ætli að beita sér fyrir eflingu Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnun- ar, hvenær búast megi við að lenging Akureyrarflugvallar verði boðin út, hver þróun kornræktar hafi verið síðasta áratug, hvað líði undirbúningi Vaðlaheiðarganga, hvort mennta- málaráðherra ætli að beita sér fyrir að námsbækur í framhaldsskólum verði ókeypis fyrir nemendur og hvað líði endurskoðun á framfærslugrunni LÍN. ALÞINGI HERVE MORIN VARNARMÁLARÁÐHERRA FRAKKLANDS OG IDRISS DEBY FORSETI TSJAD Hittust á fundi í N´Djamena, höfuðborg Tsjad, í gær. NORDICPHOTOS/AFP Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur Golf F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.