Fréttablaðið - 07.02.2008, Page 15
FIMMTUDAGUR 7. febrúar 2008 15
LÖGREGLUMÁL Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins var
kallað að veitingahúsi Nings
við Suðurlandsbraut um
klukkan níu í gærmorgun.
Svo virðist sem kviknað hafi í
út frá rafmagni í hitaskáp
sem notaður er til að halda
mat heitum. „Það var
eiginlega enginn eldur þegar
við komum á staðinn heldur
bara reykur,“ segir Óli
Ragnar Gunnarsson, vakt-
stjóri hjá slökkviliðinu.
Hárrétt viðbrögð starfs-
fólks voru að taka skápinn úr
sambandi en brunaviðvörun-
arkerfi gerði slökkviliði
viðvart sem og öðru fólki í
húsinu. Vel gekk að rýma
húsið en slökkvilið leyfði fólki
þó fljótlega að fara aftur inn.
Engum varð meint af. - ovd
Slökkvilið reykræsti veitingastaðinn Nings við Suðurlandsbraut:
Kviknaði í út frá rafmagni
SLÖKKVILIÐSMENN AÐ STÖRFUM FJölmennt lið var kallað á vettvang en fljótlega var
stærstum hluta þess snúið frá. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DÓMSMÁL Íslenskur karlmaður
hefur verið dæmdur í Hæstarétti í
áframhaldandi gæsluvarðhald til
29. febrúar vegna stórfelldra
þjófnaðarmála. Er talið að hann
hafi slegið eign sinni á muni að
verðmæti rúmlega fjórar milljónir
króna.
Maðurinn hefur verið ákærður
fyrir fjögur brot. Hann á að baki
talsverðan sakaferil og hefur
hlotið sex dóma. Á síðasta ári var
hann dæmdur í 28 mánaða fangelsi
fyrir fjölda þjófnaðarbrota. Hann
áfrýjaði til Hæstaréttar. Maðurinn
er fíkniefnaneytandi, samkvæmt
rannsókn lögreglu, og fjármagnar
fíkn sína með afbrotum. - jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Stal fyrir rúmar
fjórar milljónir
SAMGÖNGUR „Bærinn gerir ekkert og við keyrum þær
bara í hvert skipti. Ég vil ekki sjá að þær fari yfir
Reykjanesbrautina til að taka rútu,“ segir Drífa
Gunnlaugsdóttir, íbúi í Vogum á Vatnsleysuströnd og
móðir stúlku sem æfir fimleika í Hafnarfirði.
Greint var frá því hér í blaðinu í nóvember að tíu ára
fimleikastúlkur í Vogum töldu sig sviknar um rútuferð-
ir SBK og komust ekki í þær lengur, nema með því að
setja sig í hættu við að fara yfir Reykjanesbrautina.
Mæður í Vogum fengu fund með Róberti Ragnarssyni
bæjarstjóra og báðu hann að koma til móts við þær.
„Bæjarstjórinn hefur afsakað sig með því að hann
niðurgreiði matinn í skólanum og því standi ekkert
eftir í svona mál,“ segir Drífa.
Fimleikafélag stúlknanna, Björk í Hafnarfirði, sé
eini aðili málsins sem hafi brugðist við vandræðum
stúlknanna, meðal annars með því að ræða hvort
breyta megi stundatöflum. - kóþ
Fimleikastúlkurnar þurfa enn að fara í einkabíl eða yfir Reykjanesbrautina:
Stúlkur í Vogum fá enga rútu
ANNA KRISTÍN OG KOLBRÚN Stúlkunum hafði verið gefið
vilyrði fyrir rútuferðum úr Vogum, sem breyttust með tilkomu
Keilis. Þeim var boðið að taka rútuna hinum megin Reykja-
nesbrautar í staðinn. Þar er hvorki gangbraut né göngustígur.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
BANDARÍKIN, AP Fellibylur reið
yfir miðríki Bandaríkjanna
síðastliðinn þriðjudag. 26 manns
fórust og eignatjón var mikið.
Fellibylurinn gekk yfir Tenn-
essee, Arkansas, Kentucky og
Mississippi-fylki og var einn af
mörgum sem gekk yfir svæðið.
Yfirvöld í Arkansas gengu hús
úr húsi í gær í leit að fleiri
fórnarlömbum.
Norðaustur af Nashville varð
mikil sprenging í gasstöð af
völdum eldsvoða. Manntjón varð
en þó er ekki vitað hversu
margir fórust.
Yfirvöld telja líklegt að upptök
eldsins megi rekja til fellibyls-
ins.
Forsetaframbjóðendur
landsins gerðu hlé á kosninga-
baráttu sinni til að minnast
fórnarlambanna. - kka
Fellibylur Í Bandaríkjunum:
Mikið mann-
tjón í fárviðri
DANMÖRK Nýtt bandalag, flokkurinn
sem stofnaður var í fyrravor að
frumkvæði sýrlensk-ættaða
þingmannsins Nasers Khader, er í
upplausn. Tveir af
fimm þingmönnum
flokksins hafa nú
yfirgefið hann og
fleiri menn sem
gegna trúnaðarstöð-
um innan hans eru að
íhuga sinn gang.
Þrýst hefur verið á
Khader sjálfan að
segja af sér formennskunni, að því
er greint er frá á Politiken.dk.
Fyrst sagði Gitte Seeberg skilið
við þingflokkinn í janúar og á
mánudag ákvað Malou Aamund að
ganga í þingflokk Venstre. Það var
stjórnarliðinu mikið fagnaðarefni
þar sem nú hafa stjórnarflokkarnir
aftur tryggan þingmeirihluta. - aa
Flokkur Khaders í vanda:
Nýtt bandalag
að leysast upp
NASER KHADER
DANMÖRK, AP Áhöfn á dráttarbát í
eigu dönsku útgerðarinnar Svitzer
var tekin í gíslingu af sjóræn-
ingjum úti fyrir strönd Sómalíu á
föstudag. Áhöfnin er heil á húfi og
hefur aðgang að mat og vatni að
því er kom fram í tilkynningu frá
útgerðinni í gær.
Fjórir Rússar, einn Breti og einn
Íri voru um borð í Svitzer
Korsakov þegar sjóræningjarnir
gerðu áhlaup. Útgerðin neitar að
tjá sig um samningaviðræður við
sjóræningjana.
Sjórán eru að færast í aukana
við strendur Sómalíu. Í fyrra
voru yfir tuttugu skip rænd á
þessu svæði. - sdg
Sjórán við strendur Sómalíu:
Rændu áhöfn
á dönsku skipi
Das Auto.
ALVÖRU 6
ÞREPA SJÁLF-
SKIPTING
DÚXAÐI Á
EURO NCAP
PRÓFINU
HLAUT
GULLNA
STÝRIÐ
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
KOLEFNIS-
JAFNAÐUR
Í EITT ÁR
EYÐIR
AÐEINS FRÁ
5.0 l/100 KM
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Golf Trendline kostar aðeins frá
2.098.000 kr.
Komdu og prófaðu betur búinn Golf á frábæru verði.
Það er höfuðatriði að vera á öruggum bíl í umferðinni og fáir standa Golf framar í þeim efnum,
enda fékk hann hæstu einkunn á Euro NCAP prófinu. Í Golf tvinnast saman hágæðahönnun, framúr-
skarandi aksturseiginleikar og nýstárleg tækni. Kraftalegur afturhluti og sportlegar línur í bílnum
gefa fyrirheit sem aksturseiginleikarnir standa fyllilega undir.
GOLF GTI®
BÍLL ÁRSINS
2008 Car&driver
Álfelgur, samlit
ur, armpúði á m
illi
framsæta og ra
fstýrð sóllúga.
Bættu við Spor
tpakka fyrir
290.000 kr.
Eða 24.740 kr. á mánuði miðað við bílasamning til 84 mánaða
og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 7,06%.
Aukabúnaður á mynd: Álfelgur og samlitur.