Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 18
18 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
Í FAÐMI NÁGRANNA Barack Obama stillti sér upp fyrir myndatöku með nágrönn-
um sínum fyrir utan kjörstað í Shoesmith-grunnskólanum í Chicago þar sem hann
greiddi atkvæði í forkosningum demókrata á þriðjudaginn.
BROSMILDIR Í ÞOTUNNI John McCain spjallar við félaga sinn, öldungadeildarþing-
manninn Joe Lieberman, í kosningaþotu sinni á þriðjudaginn. Á bak við Lieberman
situr Charlie Christ, ríkisstjóri í Flórída. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ROMNEY Á KJÖR-
STAÐ Mitt Romney
og Ann eiginkona
hans greiddu
atkvæði í ráðhúsinu
í Belmont í Massa-
chusetts. Romney
hefur aðeins tryggt
sér 269 kjörmenn
hjá repúblikönum
en gæti endað sem
varaforsetaefni
McCains.
„Já, við getum það,“ kallaði
stuðningsfólk Barack Obama
þegar hann talaði til þeirra á
kosninganótt Þriðjudagsins
mikla. Viðhafnarsalurinn á
Fairmont-hótelinu í San
Francisco var þéttsetinn af
fólki í léttu skapi og það tók vel
undir þegar frambjóðandinn
talaði til þess af stóru tjaldi.
Auðvitað voru vonbrigði yfir
úrslitum í einstökum ríkjum,
eins og Kaliforníu. En Obama
blés baráttuanda í brjóst allra
þegar hann flutti bestu ræðu
allra frambjóðenda þetta
kvöldið.
Obama er líka flokkaður sem
Draumóramaðurinn hjá
demókrötum eða jafnvel
Draumaframbjóðandinn. Hann
talar um möguleika fólks,
drauma þess og vilja sinn til
þess að uppfylla óskir. Hann er
góður í því að slá á tilfinningar
fólks og nær til þess í ræðum
sínum. Hann sýndi það á
kosningavöku stuðnings-
manna sinna. „Já, þið
getið það,“ er endurtekn-
ingin í ræðum hans
sem kveikir vonar-
neista í brjóstum
margra. Það mátti sjá í
augum fólksins sem
nánast felldi tár um leið
og það fagnaði
forsetaefni
sínu.
Hillary
Clinton er
innanbúð-
armaður-
inn
sam-
kvæmt
flokkun sem Bill Whalen í
Hoover Institution í Stanford
setti fram á fundi okkar. Það á
bæði við um pólitískar áherslur
og skipulag framboðs hennar.
Hillary er nátengdari pólitíkinni
í Washington en Obama á ekki
eins langa sögu að baki. Hún
leggur líka áherslu á reynslu
sína til að takast á við erfið
málefni. Obama leggur áherslu
á að hann sé óháður hagsmuna-
hópunum sem telja sig geta
dregið upp seðlaveskið til að fá
einhverju framgengt.
Mark D. Hill, einn trúnaðar-
maður repúblikana í Kaliforníu,
sagði að líklega yrði auðveldara
að vinna Hillary en Obama í for-
setakosningunum í nóvember.
Um 42 prósentum kjósenda er
illa við Hillary og munu aldrei
kjósa hana. Það eru mun fleiri
en er illa við Obama. Hann
sagði að allir repúblikanar
myndu sameinast gegn Hillary
en Obama gæti náð til stuðn-
ingsmanna á jaðrinum. Obama
væri því hættulegri andstæð-
ingur.
Úrslit Þriðjudagsins mikla
benda ekki til að stuðn-
ingsmenn demókrata
ætli að láta Draumóra-
manninn taka sig á flug.
Meiri líkur eru á því að
innanbúðarmaðurinn í
flokki demókrata
muni sigra eins og í
Repúblikana-
flokknum.
Þótt fjöldi
fólks haldi
í vonina
eru fleiri
sem
kalla:
„Nei,
við
getum
það ekki.“
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
skrifar frá San Francisco
Draumóra-
maðurinn Obama
FORKOSNINGAR Í BANDARÍKUNUM
MÆÐGUR FAGNA Hillary Clinton
faðmar dóttur sína Chelsea á
kosningafundi í New York á
þriðjudaginn þar sem hún vann
yfirburðasigur.