Fréttablaðið - 07.02.2008, Síða 22
22 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Lyf eru um átta prósentum
dýrari í Danmörku en hér,
samkvæmt könnun SVÞ.
Fréttablaðið bar Ísland
saman við hin Norðurlönd-
in, og þar eru lyfin ódýrari.
Höfum yfirleitt borið okkur
saman við Danmörku, segir
formaður lyfsalahóps SVÞ.
Lyfjaverð er hærra á Íslandi en í
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, en
lægra en í Danmörku. Verðið var
kannað á þeim tuttugu lyfjum
sem apótekin selja mest af í
krónum talið.
Að meðaltali eru lyfin um átta
prósentum dýrari í Danmörku en
hér, 6,1 prósenti ódýrari í Noregi
og 5,5 prósentum ódýrari í Finn-
landi. Munurinn var minnstur á
Íslandi og Svíþjóð, en þar eru
lyfin 0,6 prósentum ódýrari.
Samanburðurinn á milli Íslands
og Danmerkur var gerður af lyf-
salahóp Samtaka verslunar og
þjónustu (SVÞ). Fréttatilkynning
barst frá þeim í gær þar sem
lyfjaverð er sagt 7,5 prósentum
lægra hér en í Danmörku. Það
jafngildir því að lyfin séu um
átta prósentum dýrari þar en
hér.
Í tilefni af tilkynningu SVÞ
kannaði Fréttablaðið verð á sömu
lyfjum í Noregi, Svíþjóð og Finn-
landi og bar saman við íslensku
verðin. Niðurstaðan var að þótt
lyfin séu ódýrari á Íslandi en í
Danmörku, eins og kemur fram í
tilkynningunni, þá eru þau dýr-
ari hér en í hinum löndunum.
Þessi fjögur lönd eru viðmiðun-
arlönd Íslands þegar kemur að
lyfjaverði samkvæmt reglugerð
um lyfjagreiðslunefnd.
Sé tekið meðaltal af verði þess-
ara lyfja í Danmörku, Svíþjóð,
Noregi og Finnlandi kemur í ljós
að verðið á Íslandi er einu pró-
senti hærra.
„Við vorum fyrst og fremst að
svara gagnrýni þar sem verið er
að bera saman verð í Danmörku
og hér,“ segir Þórbergur Egils-
son, formaður lyfsalahóps SVÞ,
aðspurður hvers vegna hópurinn
hafi ekki líka borið saman
íslensku verðin við þau sænsku,
norsku og finnsku. „Við höfum
undanfarin ár verið að bera okkur
saman við Dani.“
Tekið skal fram að íslensk
apótek mega ein veita afslátt af
opinberu verði, sem ákveðið er af
ríkinu í hverju landi, en í hinum
fjórum viðmiðunarlöndunum er
það bannað. Í einhverjum tilvik-
um gæti verðið því verið lægra
hér en kom fram í könnuninni.
salvar@frettabladid.is
Lyfin ódýrari í
Svíþjóð, Noregi
og Finnlandi
LYF Verðið var kannað á þeim tuttugu lyfjategundum sem apótekin selja mest af í
krónum talið. Þar á meðal eru krabbameinslyf, augndropar, þunglyndislyf og lyf sem
lækka blóðfitu. Að meðtaltali voru lyfin dýrust í Danmörku en ódýrust í Noregi.
Fólat er nauðsyn-
legt fyrir fólk á
öllum aldri en það
er sérstaklega mik-
ilvægt fyrir konur
á barneignaraldri.
Fólat er B-vítamín,
oft nefnt fólasín
eða fólinsýra, sem
gegnir fjölda mikilvægra hlutverka
í líkamanum. Rannsóknir hafa sýnt
fram á tengsl lítillar inntöku fólats
fyrir þungun og á fyrstu vikum
meðgöngu og hættu á alvarlegum
skaða í miðtaugakerfi fóstursins, svo
sem klofnum hrygg, heilaleysi og
vatnshöfði. Á Íslandi greinast árlega
um sex slík tilvik.
Dagleg inntaka fólats í töfluformi
í fjórar vikur fyrir þungun og á fyrstu
tólf vikum meðgöngu dregur úr líkum
á alvarlegum skaða í miðtaugakerfi
fósturs um meira en helming.
Þar sem þungun er ekki alltaf
skipulögð fyrirfram er öllum konum
sem geta orðið barnshafandi ráðlagt
að taka 400 míkrógramma (0,4
mg) fólattöflu daglega. Þeim
konum sem hyggja á
barneignir er ráðlagt að
taka fólattöflu daglega
í að minnsta kosti fjór-
ar vikur fyrir þungun
og halda því áfram að
minnsta kosti fyrstu
tólf vikur meðgöngu. Að
auki er þeim ráðlagt að
borða fólatríkt fæði sem
viðbót við fólattöflur.
Fólat er einkum að finna
í grænmeti, hnetum, baun-
um, sumum tegundum ávaxta og í
vítamínbættum matvörum, til dæmis
morgunkorni.
Ávextir: Jarðarber, kíví, appelsínur.
Grænmeti: Spínat, spergilkál, stein-
selja, spergill, rósakál, blómkál, kína-
kál, blaðsalat, blaðlaukur, graslaukur,
grænkál, rauð paprika, avókadó,
rauðkál, hvítkál.
Korn, fræ og hnetur:
Vítamínbætt morgunkorn,
múslí, haframjöl, gróf
brauð, hveitikím, hveitiklíð,
sesamfræ, hörfræ, hnetur,
möndlur, hnetusmjör.
Baunir: Kjúklingabaunir,
sojabaunir, nýrna-
baunir.
Barnshafandi
konur ættu að
forðast að borða lifur
og lifrarafurðir, jafnvel
þótt fólatrík sé, vegna
þess hversu mikið er af A-
vítamíni í lifur.
Frekari upplýsingar má fá í bæk-
lingnum Fólat – fyrir konur sem geta
orðið barnshafandi sem meðal ann-
ars er hægt að nálgast á heimasíðu
Lýðheilsustöðvar - www.lydheilsu-
stod.is. www.mni.is
MATUR & NÆRING ELVA GÍSLADÓTTIR NÆRINGARFRÆÐINGUR
Fólat - sérstaklega fyrir konur á barnseignaaldri
VERÐSAMANBURÐUR
Samanlagt verð þeirra tuttugu lyfja
sem Íslendingar kaupa mest af í
krónum talið:
* Samtök verslunar og þjónustu báru
saman verðin á Íslandi og í Danmörku.
Fréttablaðið bætti hinum löndunum við.
19
5,
13
4
22
4,
72
6
20
6,
66
0
20
7,
90
6
19
6,
55
8
kr
ón
ur
(+8%)
(-0,6%)(-6,1%) (-5,5%)
„Bestu kaupin eru án efa hús sem ég á í Frakk-
landi með fjölskyldunni. Húsið er um 150 ára
gamalt og við skiptum með okkur verkum við
að gera það upp. Aðrir í fjölskyldunni sjá um
að gera við húsið en ég sé um vínkjall-
arann,“ segir Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir.
Matthías segir að húsið hafi
hækkað mjög í verði þann áratug
sem liðinn er síðan það var keypt.
„Við keyptum það á afar heppi-
legum tíma. Húsið er staðsett við
svissnesku landamærin og um svipað
leyti voru settar reglur um að Sviss-
lendingar gætu keypt eignir í Frakklandi.
Svissneskir auðmenn nýttu sér þetta
í stórum stíl og verðið á húsum á
þessu svæði hefur hækkað hratt
á þessum tíma.“ Fjölskyldan
nýtir húsið í Frakklandi í hvert
sinn sem tækifæri gefst til, enda húsið fínt og
svæðið kjörið til þess að verja frítímanum, segir
Matthías.
„Það er líka skýrt í mínum huga hvað
voru verstu kaupin. Ég og nágranni
minn tókum okkur saman og keyptum
gervihnattamóttakara einn mikinn.
Hann var mjög dýr og uppsetningin
ekki síður því það þurfti her manns
til að setja hann upp. Við stóðum í
þeirri trú að með því að setja upp
móttakara þá hefðum við aðgang að
fjölda sjónvarpsrása gegnum
svokallaðar sjóræningjastöðv-
ar. Aðgangurinn dugði hins
vegar ekki nema í mánuð og
eftir það var gjörsamlega lokað
fyrir. Það held ég að hljóti að
vera versta fjárfesting sem ég
hef lagt í.“
NEYTANDINN: MATTHÍAS HALLDÓRSSON AÐSTOÐARLANDLÆKNIR
Hús með vínkjallara bestu kaupin ■ Að nota tannkrem og matarsóda
er besta húsráðið sem Dóra Guðrún
Pálsdóttir veit um.
„Ég nota tannkrem eða
matarsóda á allt sem
kemur upp á heima
hjá mér,“ segir Dóra
Guðrún Pálsdóttir, ritari
þingmanna á Alþingi.
„Matarsódi virkar á
alla lykt og tannkrem á alla bletti,“
segir Dóra og bætir við að flestöll slys
á heimili hennar séu því leyst með
þessum hætti. Grænsápan vinni svo
á restinni. „Fótboltatreyjurnar hans
Tómasar sonar míns fara í grænsápu-
þvott. Það er það eina sem virkar.“
Þessi góðu ráð segist Dóra hafa
lært smátt og smátt. „Eflaust er þetta
komið frá mömmu og ömmum. Lærir
maður ekki allt hjá mömmu?“
GÓÐ HÚSRÁÐ
AÐ HALDA ÖLLU HREINU
Útgjöldin
> Heildarvelta kreditkorta á Íslandi árið 2006.
HEIMILD:HAGSTOFA ÍSLANDS
203.062.000
41.960.000
Innanlands Erlendis
kr
ón
ur
www.si.is
Virkjum kraft kvenna í iðnaði
Samtök iðnaðarins bjóða til morgunverðarfundar um stöðu kvenna
í iðnaði í Gyllta salnum á Hótel Borg, þriðjudaginn 12. febrúar
kl. 8.00–10.30.
Dagskrá
8.00 Morgunverður í boði SI
8.30 Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarmaður í SI
Tengsl eru tækifæri
Yrsa Sigurðardóttir, tæknistjóri VIJV
Að starfa sem kona á virkjanasvæði
Gyða Margrét Pétursdóttir, félags- og kynjafræðingur
Hugsa út fyrir rammann og reka sig á veggi:
Konur í upplýsingatækniiðnaði
Auður Hallgrímsdóttir, fjármálastjóri Járnsmiðju Óðins
Konur eiga framtíð í iðnaði
Helga Braga Jónsdóttir, leikkona
9.45 Pallborðsumræður
Birna Pála Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Alcan,
Karen Kristjana Ernstsdóttir, verkfræðingur hjá Ístaki, og
Aðalheiður Héðinsdóttir, SI.
10.30 Fundarlok
Fundarstjóri og spyrill er Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi
Alcoa Fjarðaráls
Skráning á mottaka@si.is