Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 26
26 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 907
5.102 -2,48% Velta: 8.191 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 8,02 -1,60% ... Bakkavör 45,15
-4,75% ... Eimskipafélagið 31,25 -0,48% ... Exista 12,43 -4,61% ... FL
Group 9,75 -2,99% ... Glitnir 18,30 -3,43% ... Icelandair 26,50 -1,85%
... Kaupþing 723,00 -1,63% ... Landsbankinn 29,00 -2,85% ... Marel
99,30 -0,40% ... SPRON 5,92 -1,33% ... Straumur-Burðarás 13,00
-1,89% ... Teymi 5,37 -1,83% ... Össur 92,50 -1,70%
MESTA HÆKKUN MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR 4,75%
EXISTA 4,61%
GLITNIR 3,43%
MARKAÐSPUNKTAR
Heildarvelta með skuldabréf nam 683
milljörðum króna í janúar og hefur
aldrei verið meiri í einum mánuði.
Viðskipti með íbúðabréf námu ríflega
helmingi viðskiptanna.
Stefnt er að skráningu Skipta, móðurfé-
lags Símans, í Kauphöll Íslands í mars,
að því er Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Skipta, segir. Upphaflega átti að skrá
félagið á markað fyrir áramót, en því
fékkst frestað vegna tilboðs Skipta í sló-
venska símafélagið, Telekom Slovenija.
Volvo hagnaðist minna á fjórða
ársfjórðungi 2007 en búist var við.
Greiningardeild Glitnis segir hagnað
hafa numið 5.509 milljónum sænskra
króna fyrir skatta, þegar búist var við
6.176 milljónum. Tekjur voru samt
umfram væntingar, 84,6 milljarðar
sænskra króna.
„Þetta var mjög góður árangur.
Við stefnum nú að betra ári,“ segir
Matthías Imsland, forstjóri Ice-
land Express, en farþegum flug-
félagsins fjölgaði um tuttugu pró-
sent í fyrra miðað við árið á undan.
Ætla má að þetta jafngildi því að
um 450 þúsund manns hafi flogið
með vélum félagsins á síðasta ári.
Þetta er jafnframt besta rekstrar-
ár Iceland Express.
Flugfélagið flaug til fimmtán
áfangastaða í Evrópu á síðasta ári,
auk þess að fljúga beint frá Akur-
eyri og Egilsstöðum til Kaup-
mannahafnar síðasta sumar.
Stefnt er að því að auka sætafram-
boð á nokkrum áætlunarleiðum á
þessu ári; þar á meðal til London
og Kaupmannahafnar.
Matthías segir að auk þess að
fjölga ferðum og bæta sætanýt-
inguna hafi markaðssetning
félagsins verið að skila sér. „Félag-
ið er að festast verulega í sessi
sem fyrsti valkostur hjá mörg-
um,“ segir hann. - jab/jsk
Besta ár Iceland Express
ICELAND EXPRESS-FLUGVÉLAR Far-
þegum hjá Express fjölgaði um tuttugu
prósent milli ára í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Vegna vangaveltna í leiðara Mark-
aðarins í gær um upplýsingagjöf á
markaði áréttar Exista að fá félög hafi
gefið jafn ítarlegar upplýsingar um
eigin stöðu og það hafi
gert í síðustu viku þegar
farið var yfir uppgjör
félagsins, sem og stöðu
eiginfjár og lausafjár-
stöðu í janúarlok.
Hlutdeildaraðferð er
beitt á tvær eignir Existu,
Kaupþing og Sampo,
sem eru langtímaeignir
í kjarnastarfsemi félagsins, fjármála-
þjónustu. „Hlutdeildaraðferð er ekki
mat á virði eigna, eins og stendur
í leiðara, heldur er tekin hlutdeild
í hagnaði viðkomandi félags. Þessi
aðferð endurspeglar því mun betur
undirliggjandi rekstur langtímaeigna
en verðþróun hlutabréfa. Markmið
hlutdeildaraðferðar er ekki síst að
draga úr markaðssveiflum, hvort sem
þær eru upp á við eins og á fyrri
parti 2007 eða niður á við eins og
á síðari helmingi ársins,“
segir í áréttingu félagsins.
Exista hefur lagt sérstaka
áherslu á að draga fram
mismun á bókfærðu virði
og markaðsvirði hlutdeild-
arfélaga í reikningum, sem
og afkomutilkynningu og
uppgjörsfundum félagsins.
Loks bendir félagið á að
engar óskráðar eignir hafi verið færð-
ar upp á fjórða ársfjórðungi. Í Vegvísi
Landsbankans fyrir helgi, sem vitnað
er til í leiðara, eru slíkar uppfærslur
nefndar sem möguleg skýring á ólíkri
niðurstöðu greiningardeildarinnar og
Existu hvað varðar eiginfjárhlutfall í
janúarlok.
Árétting um upplýsingagjöf
Verulega hefur dregið úr
veltu á fasteignamarkaði.
Formaður Félags fasteigna-
sala segir næstum útilokað
að fá íbúðalán hjá bönkum.
Aðeins er lánað fyrir íbúð á
dag. Greiningardeild Kaup-
þings gerir ráð fyrir stýri-
vaxtalækkun í mánuðinum.
„Bankarnir eru nánast lokaðir
fyrir lánum til íbúðakaupa,“ segir
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður
Félags fasteignasala.
Hún bendir á að bankarnir hafi
dregið úr lánshlutfalli sínu, en ekki
er langt síðan þeir lánuðu fyrir öllu
kaupverðinu. „Það er erfitt fyrir
fólk að komast inn. Það hefur þurft
að brúa bilið með yfirdráttarlánum
og allir vita hvað þau kosta.“
Verulega hefur hægst um á fast-
eignamarkaðnum. Samkvæmt
nýjum tölum frá Fasteignamati
fækkaði kaupsamningum um
næstum 40 prósent í síðasta mán-
uði, samanborið við janúar í fyrra.
Þá dróst velta saman um hátt í
þriðjung milli janúar í ár og janúar
í fyrra.
Þá varð einnig töluverður sam-
dráttur í janúar miðað við mán-
uðinn á undan.
„Nú ríkir ákveðin óvissa, bæði
vegna kjarasamninga og kaup-
hallar. Það er ekkert óeðlilegt að
þetta endurspeglist á fasteigna-
markaðnum.“
Fram kemur í Hálffimmfrétt-
um Greiningardeildar Kaupþings
að lán bankanna í janúar hafi
jafnaði numið 28 milljónum á
dag, sem svari til einnar íbúðar.
Þegar mest var hafi lánin hins
vegar numið milljarði króna á
dag.
Greining Glitnis telur að haldi
þessi þróun á fasteignamarkaði
áfram heyri helsti drifkraftur
verðbólgunnar sögunni til. Grein-
ingardeild Kaupþings telur að
vaxtalækkunarferli Seðlabankans
hefjist við næstu vaxtaákvörðun,
14. febrúar. ingimar@frettabladid.is
Bankarnir nánast
lokaðir fyrir lánum
EIGNIR SKOÐAÐAR Dregið hefur úr fjölda kaupsamninga á fasteignamarkaði. For-
maður Félags fasteignasala segir að bankarnir séu svo gott sem hættir að lána.
Rannsóknarblaðamennska rædd
Blaðamaðurinn Agnes Bragadóttir sótti nýverið
heim nemendur á Bifröst og uppfræddi um laun-
helgar rannsóknarblaðamennskunnar. Að auki
voru þar fyrirspurnir og bar á góma forsíðufrétt
blaðsins þar sem slegið var upp eftir Enskilda-
bankanum sænska að Exista væri í verulegum
kröggum. Skýrðist daginn eftir að útreikningar
Enskilda voru rangir. Á Bifröst var höfundur frétta-
rinnar, sem birtist ómerkt, inntur skýringa á því
hvers vegna ekki hefði verið leitað
viðbragða strax hjá Existumönn-
um, sem þá hefðu væntanlega
strax getað bent á rangfærslurn-
ar. En það var víst ekki hægt af
ótta við að þeir lækju málinu
í Viðskiptablaðið, þar sem
Exista á hlut. Viðskipta-
blaðið fer raunar mun fyrr
í prentun en Mogginn, en
það var ekki rætt.
Rangindi rétt eftir höfð
Aukinheldur var að því spurt hvort ekki hefði
þótt tilefni til að birta leiðréttingu vegna
uppsláttarins frá greiningardeild SEB Enskilda,
en þess mun ekki hafa þótt þurfa. Enda var
hárrétt eftir bankanum haft í fréttinni. Þá sagði
Agnes líka ekkert búið að sýna fram á neinar
rangfærslur hjá Enskilda, einungis væri deilt um
reikningsaðferðir. Er það svo sem í takt við við-
brögð blaðsins vegna athugasemda við önnur
viðskiptaskrif. Staðið er við frétt
um bréfaskriftir Fjármálaeft-
irlitsins til Kaupþings vegna
NIBC, þrátt fyrir neitun FME
og þá væntanlega við frétt
um kaup araba á
tveggja prósenta
afsláttarhlutar í
Kaupþingi, sem
menn þar á bæ
kannast ekki við.
Peningaskápurinn ...
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.,
kt. 701086-1399, hefur birt Lýsingu vegna víxlaflokks
sem tekinn hefur verið til viðskipta hjá OMX Nordic
Exchange Iceland hf. (hér eftir OMX ICE) og gert
aðgengilega almenningi frá og með 7.2.2008.
Eftirfarandi víxlaflokkur hefur verið gefinn út:
Víxlaflokkur að fjárhæð kr. 5.000.000.000 var
gefinn út þann 1.12.2007 og tekinn til viðskipta
hjá OMX ICE þann 7.2.2008. Nafnsverðeiningar
5.000.000 ISK. Auðkenni flokksins í OMX ICE
er STRB 08 1201. Víxlarnir eru vaxtalaus
eingreiðslubréf sem skulu endurgreiðast
þann 1.12.2008.
Umsjónaraðili skráningarinnar í OMX ICE
er Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.
Lýsingu er hægt að nálgast á vefsetri OMX ICE:
www.omxgroup.com/nordicexchange. Einnig má
nálgast Lýsingu á skrifstofu Straums - Burðaráss
að Borgartúni 25 eða á vefsetri Bankans:
www.straumur.com.
Reykjavík, 7.2.2008.
Fjórir stærstu viðskiptabankarnir
standast allir reglulegt álagspróf
Fjármálaeftirlitsins (FME).
Í gær var birt niðurstaða slíks
prófs og segir Jónas Fr. Jónsson,
forstjóri FME, hana sýna að eigin-
fjárstaða bankanna sé sterk og
þeir geti staðið af sér veruleg
áföll. „Sterk eiginfjárstaða er sér-
lega mikilvæg í ljósi þess óróa
sem verið hefur á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum,“ segir hann.
Álagsprófið miðar við stöðu
mála hjá bönkunum í árslok 2007,
en þá endurspegla eiginfjárhlut-
föll þeirra þegar áhrif af óróa á
fjármálamörkuðum á seinni hluta
ársins.
Eftir að reiknuð höfðu verið inn
margvísleg áföll og gengisfall
krónu (eða annarra miðla en evru
í tilviki Straums) nam lækkun á
eiginfjárhlutfalli bankanna frá 0,6
til 2,5 prósentustiga. - óká
Bankarnir standast álagspróf
Hlutabréfamarkaðir víða um heim
skriðu til baka eftir fall á þriðju-
dag. Úrvalsvísitalan tók hins
vegar dýfu en hún hefur ekki
hækkað síðan á þriðjudag í síðustu
viku þegar hún rauk upp um 2,57
prósent. Vísitalan hefur nú fallið
um rúm 19,2 prósent frá áramót-
um. Á sama tíma hækkaði sam-
norræna OMXN-40 vísitalan um
rúm 0,3 prósent í gær.
Takturinn var sem fyrr sleginn í
Bandaríkjunum í fyrradag eftir
birtingu ISM-vísitölunnar, sem
mælir gang viðskipta, nýjar pant-
anir, innflutning og stöðu starfs-
mannahalds í þjónustugeiranum.
Vísitalan féll úr 54,4 stigum í jan-
úar í 41,9 stig nú en greiningar-
deild Glitnis benti á í gær að við-
líka lækkun hafi ekki sést í sjö ár,
eða frá því hryðjuverkaárásir voru
gerðar í Bandaríkjunum árið 2001.
Við þetta féll Dow Jones-vísitalan
um 2,93 prósent og Nasdaq-vísital-
an um rúm þrjú prósent í gær.
Fjárfestar vestanhafs og austan
telja nú meiri líkur en meiri á að
samdráttarskeið vofi yfir Banda-
ríkjunum. Rætist verstu spár
getur það leitt til minni innflutn-
ings frá helstu viðskiptalöndum
Bandaríkjanna, ekki síst frá Asíu.
Í kjölfarið féllu markaðir í álf-
unni. - jab
Vísitölurnar skríða til baka eftir fall
ÞRÓUN Á MÖRKUÐUM Í GÆR
Vísitölur Breyting
Dow Jones (Bandar.)* +0,60%
Nasdaq (-)* +0,71%
Nikkei (Nikkei) -4,70%
FTSE (Bretland) +0,13%
C20 (Danmörk) -0,11%
OMX30 (Svíþjóð) +0,66%
OMXI15 (Ísland) -2,48%
OMXN40 (Norðurlönd) +0,58%
* Um sexleytið í gær.
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
samþykkt kaup Byrs á rekstri
Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna
hf. (VSP). Jafnframt fær Byr heim-
ild til að fara með ráðandi hlut í
Rekstrarfélagi sparisjóðanna.
Í tilkynningu kemur fram að
kaupin séu liður í aukinni þjónustu
við viðskiptavini sparisjóðsins, en
til þessa hefur Byr boðið viðskipta-
vinum verðbréfaþjónustu í gegn-
um dóttur- og hlutdeildarfélög sín.
„Engar breytingar eru fyrirhug-
aðar á þeirri þjónustu sem við-
skiptavinum VSP hefur fram til
þessa verið veitt. Sú starfsemi VSP
sem Byr hefur fest kaup á, þ.e.
eignastýring og verðbréfamiðlun,
verður nú hluti af heildarstarfsemi
Byrs,“ segir í tilkynningunni. - óká
Byr má kaupa
VSP segir FME