Fréttablaðið - 07.02.2008, Page 50

Fréttablaðið - 07.02.2008, Page 50
38 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingarsendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. GYLFI Þ. GÍSLASON RÁÐHERRA FÆDDIST 7. FEBRÚAR ÁRIÐ 1917. „Á Íslandi hefur gerst saga lítillar þjóðar, einu þjóðar í Vestur-Evrópu sem man til upphafs síns.“ Gylfi Þorsteinsson Gíslason hagfræðingur var þingmað- ur Alþýðuflokks og ráðherra menntamála um árabil, síðar prófessor við H.Í. Hann andað- ist 18. ágúst 2004. Hin kínverska Dong Qing Gua er í sím- anum þegar blaðamann ber að í Heilsu- drekanum en hellir samt umsvifa- laust kínversku tei í bolla og býður. Þýður fuglasöngur berst að eyrum og við augum blasa kínverskir listmun- ir af ýmsum stærðum og gerðum en eftir litla stund er símtalinu lokið. „Þó klukkan sé bara ellefu fyrir hádegi hér er gamlárskvöld gengið í garð heima í Kína. Þess vegna eru vinir mínir og ættingjar byrjaðir að hringja,“ segir Dong Qing brosandi og kveðst fá ótrú- lega góða strauma úr austrinu gegnum símann. Það er ár rottunnar sem er að hefj- ast. „Ég vil frekar nota orðið mús,“ segir Dong Qing og fullyrðir að gott ár sé í vændum. Ár endurnýjunar og frjórra hugmynda. Hún tekur vel í að lýsa hefðbundnum kínverskum ára- mótum og segja frá sínum hætti við að halda upp á þau. Eftir að hafa komið okkur vel fyrir á dýnu inni í leikfim- isalnum með tebollana hefjum við spjallið. „Kínversk áramót eru virkileg stór- hátíð. Meira að segja íslensku jólin blikna algerlega í samanburðinum,“ segir Dong Qing stolt. „Það er tveggja vikna frí í skólum og flestum fyrir- tækjum því allir eru að fagna nýja árinu og njóta þess að fara í heimsókn- ir og vera saman. Bisnesslífið lamast og þegar ég hef pantað vörur frá Kína undanfarna daga segja kaupsýslu- mennirnir: „Við afgreiðum þetta eftir tvær til þrjár vikur, þegar nýárið er búið.““ Hún segir íslenska áramóta- skaupið líka fátæklegt miðað við það kínverska sem standi í fjóra tíma. „Í kínverska skaupinu er bara boðið upp á úrvalslistamenn, bestu leikara lands- ins, bestu söngvara og bestu dansara,“ lýsir hún en hvað skyldi vera á borð- um? „Á gamlárskvöld er mest borðað Dim Sum. Það er réttur sem er búinn til úr kringlóttum hveitikökum með kjöti og grænmeti á og er síðan pakk- að saman.“ Hún segir sprengjugleði Kínverja líka mikla á gamlárskvöld og kemur það varla á óvart þar sem Kínverjar fundu upp flugeldinn. „Það er allt klikkað, heyrist ekki mannsins mál,“ segir hún hlæjandi. Dong Qing hefur búið á Íslandi í rúm sextán ár og hún getur ekki slakað á í hálfan mánuð eins og land- ar hennar heima. Af því að áramótin ber upp á miðja viku ætlar hún að vera með opið hús í Gallerí Kína í Ár- múlanum um helgina. „Ég mun fræða fólk um hvað sem er í sambandi við Kína, menn- ingu, list og tungumál. Hvernig best er að stilla hlutum upp samkvæmt hinni kínversku Feng Shui-speki, til dæmis. Þar verður líka kínverskur læknir sem mun veita hollráð um heilsuna og orku- flæðið, taka púls á gestum og gefa góð ráð um val á tei. „Temenningin í Kína er mörg þúsund ára gömul og við notum mat og drykk mikið til lækn- inga. Mér finnst svo gaman að miðla fróð- leik um Kína og leyfa Íslend- ingum að kynnast kínversku andrúms- lofti,“ segir þessi lífskúnstner að lokum. gun@frettabladid.is DONG QING GUA: HELDUR UPP Á KÍNVERSKU ÁRAMÓTIN Ég vil frekar nota orðið mús DONG QING. Hún fullyrðir að gott ár sé í vændum, ár endurnýjunar og frjórra hugmynda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON MERKISATBURÐIR 1900 Verkamannaflokkurinn er stofnaður í Bretlandi. 1914 Charlie Chaplin birtist í fyrsta sinn sem litli flæk- ingurinn. 1940 Walt Disney gefur út teiknimyndina um Gosa. 1942 Húsmæðraskóli Reykja- víkur tekur til starfa undir stjórn Huldu Á. Stefáns- dóttur. 1962 Bandaríkin banna allan inn- og útflutning frá Kúbu. 1971 Konur fá kosningarétt í Sviss. 1992 Evrópusambandið er stofnað. Bróðir okkar, mágur og frændi, Helgi Þorvaldsson Gamla-Hrauni, Eyrarbakka, lést föstudaginn 1. febrúar. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 14.00. Aðstandendur. Faðir okkar og tengdafaðir Haukur Hafstað verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardag- inn 9. febrúar kl. 14.00. Jarðsett verður að Reynisstað. Þórólfur H. Hafstað Þuríður Jóhannsdóttir Ingibjörg H. Hafstað Sigurður Sigfússon Ásdís H. Hafstað Sveinn Klausen Steinunn H. Hafstað Eiríkur Brynjólfsson Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Ólöf Þórarinsdóttir til heimilis að Brúnavegi 5, 104 Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 1. febrúar, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnað- arins föstudaginn 8. febrúar kl. 15.00. Ólafur Hafþór Guðjónsson Níels Ólafsson Björg Ólafsdóttir Magnús Magnússon Daníel Ólafsson Guðjón Hafþór Ólafsson Þuríður Edda Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og systir mín, Jóhanna Elín Árnadóttir Furugrund 30, Kópavogi, lést mánudaginn 4. febrúar á Líknardeild Landakots. Einar Jónsson Bjarni Bergmann Sveinsson Úndína Bergmann Sveinsdóttir Ásmundur Bergmann Sveinsson Árni Bergmann Sveinsson Rúnar Bergmann Sveinsson Jón Þór Bergmann Sveinsson Róslind Bergmann Bordal Sigrún Friðgeirsdóttir Haukur Örn Björnsson Úndína Árnadóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristínar Jensdóttur Þór Guðrún Þór Jónas Þór Anna Bára Árnadóttir Ólöf Helga Þór Björn Marteinsson Arnaldur Þór Jónasson Jóhanna Jóhannesdóttir Katrín Sif Þór Elsa María Þór Magnús Eyjólfsson Gunnar Sveinn Magnússon Inga Hrönn Kristjánsdóttir og barnabarnabörn. Hinn 7. febrúar árið 2003 samþykkti stjórn Lands- virkjunar að heimila for- stjóra fyrirtækisins, Friðriki Sophussyni, að undirrita og afhenda ítalska verk- takafyrirtækinu Impreg- ilo veitingabréf fyrir gerð Kárahnjúkastíflu og að- veituganga virkjunarinnar. Þetta þýddi að fyrirtækið gat farið að undirbúa hinar viðamiklu framkvæmdir við Jökulsá á Fjöllum. Heildarupphæð samn- ingsins hljóðaði upp á 38 milljarða króna, án virðisaukaskatts og var sú upphæð svipuð til- boði Impregilo, að teknu tilliti til breytinga, aukaverka og aðlögunar ýmissa atriða, bæði til lækkunar og hækk- unar. Meðal þess sem bætt var inn í af hálfu Landsvirkj- unar var ákvæði sem átti að tryggja enn betur en út- boðsgögnin að farið yrði í öllu að íslenskum kjara- samningum og vinnulöggjöf. Auk þess var samið um að Impregilo ynni sem aukaverk heil- boraðan hluta veituganga fyrir Jökulsá í Fljóts- dal yfir í aðveitugöngin, samtals um tíu kíló- metra af fjórtán. Þeir samningar voru upp á rúma 3,5 milljarða. ÞETTA GERÐIST 7. FEBRÚAR 2003 Samið við Impregilo STARFSMENN IMPREGILO. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Ósk Norðfjörð Óskarsdóttir frá Hrísey, Dvergabakka 34, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 7. febrúar kl. 15. Pétur Geir Helgason Óskar Geir Pétursson Jóhanna Jónsdóttir Rúnar Þór Pétursson Guðmunda J.N. Pétursdóttir Hinrik H. Friðbertsson Heimir Már Pétursson Jean François Ósk Norðfjörð Þrastardóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.