Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 10
8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
BANDARÍKIN, AP Michael
Bloom berg, borgarstjóri í New
York, tók af skarið í gær og
sagðist ekki ætla að bjóða sig
fram utan flokka í forsetakosn-
ingunum í haust.
Hann ætlar samt að gera
tilraun til að hafa áhrif á kosn-
ingabaráttuna. Hann vill hafa
áhrif á það um hvað umræðurnar
snúast.
„Við erum að gera þá tilraun
núna,“ sagði hann. „Ég tel mér
skylt að reyna það.“
Bloomberg er 65 ára milljarða-
mæringur og notaði auðæfi sín
óspart í kosningabaráttuna um
borgarstjóraembættið í New York
árið 2001. - gb
Bloomberg ekki í framboð:
Vill samt hafa
áhrif á málefni
MICHAEL BLOOMBERG Borgarstjóri New
York ætlar að blanda sér í kosningabar-
áttuna án þess að bjóða sig fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Mörg hreindýr
Lögreglan á Höfn varar við óvenju
mörgum hreindýrum á vegum eystra.
Full ástæða sé til að fara varlega enda
hafi verið ekið á þó nokkur dýr það
sem af er vetri. Eru dýrin í stórum
hópum og mjög spök.
HORNAFJÖRÐUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
07
10
0
1/
08
Óþarfa gluggapóstur finnur sér leið inn á of mörg heimili í dag.
Á tímum rafrænna greiðslna og vefvæðingar ætti gluggapóstur
fyrir löngu að vera leifar gamals tíma, sóunar og óskynsemi.
Svo ekki sé minnst á umhverfisspjöllin.
Með því að fara inn á www.or.is/bodgreidslur getur þú lagt þitt af mörkum
til umhverfisverndar og borgað reikningana þína með boðgreiðslum.
Enginn pappír, enginn gluggapóstur, ekkert vesen.
Skiptu yfir í boðgreiðslur
• Ef allir viðskiptavinir OR skipta yfir í boðgreiðslur sparast 7068 kg
af pappír á ári eða 295 tré.
www.or.is
Fyrstu 100 sem skipta
yfir í boðgreiðslur
fá glaðning frá
Orkuveitu Reykjavíkur
Er þetta
ekki orðið
ágætt?
FANGELSISMÁL Afstaða, félag fanga,
hefur beðist afsökunar á harðorðri
gagnrýni sinni á fangelsis-
málayfirvöld, sem birt
voru í grein á heimasíðu
þeirra í byrjun vikunnar.
Titill þeirrar greinar
Afstöðu sem beðist er
afsökunar á er: „Fangar
þurfa að deila klefum með
öðrum“. Í henni var meðal
annars vísað í álit frá
stjórn Afstöðu en þar
sagði: „Úrræðaleysi Fang-
elsismálastofnunar helgast því af
þröngsýni og íhaldssamri stefnu
sem rekin er með gróðasjónarmið-
um að markmiði og langt frá því
markmiði sem stofnunin hefur lagt
fram.“
Í afsökunarbeiðninni sem nú
hefur verið birt á síðunni vegna
fyrrgreindra ummæla segir að
Afstaða vilji „koma á framfæri
afsökunarbeiðni til fangelsisyfir-
valda, og annarra sem hlut eiga að
máli, vegna þessa orðalags sem,
eftir á að hyggja, var afar óvar-
færnislegt og rangt. Stefna Fang-
elsismálastofnunar er að sjálfsögðu
á engan hátt rekin af gróðasjónar-
miðum, langt í frá, og
stefna Fangelsismálastofn-
unar er hvorki þröngsýn
og íhaldssöm“. Segir auk
þess á síðunni að þessi orð
hafi verið látin falla að
vanhugsuðu máli og vegna
ótta fanga á Litla-Hrauni
við þær aðstæður sem þar
eru komnar upp en vegna
gagngerra endurbóta í
fangelsinu á Akureyri var
nauðsynlegt að flytja þaðan fanga
og vista í fangelsinu í Kópavogi og
á Litla-Hrauni. Vegna þessara til-
færslna þurfa nokkrir fangar að
deila klefa með öðrum þar til í mars
en fagfólk valdi þá fanga saman.
„Ég fagna yfirlýsingunni. Það er
mikilvægt að fangelsisyfirvöld eigi
góð samskipti við forsvarsmenn
fanga. Við munum svo sannarlega
leggja okkar af mörkum til að
tryggja að svo verði,“ segir Páll
Winkel, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar, um afsökunarbeiðni
Afstöðu. - kdk
Fangar iðrast
Á heimasíðu félags fanga er beðist afsökunar á
harðorðri gagnrýni á fangelsismálayfirvöld og um-
mælum sem fangar segja hafa verið óvarfærnisleg.
FANGELSI Nokkrir fangar þurfa að deila klefa tímabundið.
PÁLL WINKEL