Fréttablaðið - 08.02.2008, Page 26
[ ]
Heimsendingafyrirtækið Just-Eat nýtur vaxandi
vinsælda meðal Íslendinga og hefur nú 4.000
veitingahús á sínum snærum í Evrópu.
„Just-Eat varð upphaflega til í Danmörku þar sem
það hefur verið starfrækt í sjö ár, en stofnandi þess
fékk hugmyndina þegar hann fór til Óslóar í
vinnuferð og fann enga heimsendingu matar á
netinu. Hann sá sér því leik á borði, bretti upp
ermar og kom með þessa frábæru lausn sem Just-
Eat er, en að jafnaði opnar Just-Eat í þremur nýjum
löndum á ári, nú síðast í Svíþjóð í vikunni,“ segir
Þröstur Már Sveinsson, framkvæmdastjóri Just-Eat
á Íslandi.
„Við lentum á fyrirlestri stofnanda Just-Eat þegar
við bjuggum í Danmörku og stukkum á hann því við
höfðum trú á að þetta gæti virkað vel hér heima. Það
hefur gengið eftir og nú afgreiðum við um 12
þúsund máltíðir á mánuði, með 15 prósenta aukn-
ingu á milli mánaða,“ segir Þröstur sem lítið sem
ekkert hefur auglýst, en einstaklingar jafnt sem
fyrirtæki hafa tekið ástfóstri við Just-Eat.is.
„Orðsporið hefur borist mann frá manni og við
ekki þurft að auglýsa. Fyrir fyrirtæki er ákaflega
þægilegt að geta gengið frá pöntun að morgni,
gengið frá greiðslu á netinu og fengið mat sendan til
starfsfólks án frekari eftirmála. Okkar markmið var
að ná inn 60 íslenskum veitingastöðum, sem
jafngildir 60 prósenta hlutdeild á markaðnum. Það
virðist ætla að ganga eftir á þessu ári, því nú eru 42
veitingastaðir á Just-Eat.is og fimmtán til viðbótar í
viðræðum,“ segir Þröstur, og úrval veitingahúsa er
fjölbreytt.
„Hér voru mörg veitingahús sem vildu senda heim
en réðu ekki við það smæðar sinnar vegna. Við
buðum þeim að sjá um heimsendingar, ásamt því að
fá til liðs við okkur stóru heimsendingakeðjurnar. Þá
var eins og smellt væri fingri og pantanir hrúguðust
inn, enda kærkomið að geta pantað heim fjölbreytt-
ari mat en áður,“ segir Þröstur sem staðfestir að
pitsa tróni enn á toppi íslenskra heimsendinga.
„Pitsa er sívinsæl, en nú býðst allt úrvalið, hvort
sem það er kjúklingur, fiskur, steikur eða fjölþjóð-
legur matur eins og grískur, indverskur, mexíkóskur
eða kínverskur. Við finnum mikla aukningu í pöntun
á hvers kyns heilsufæði, en pantanir sveiflast mikið
eftir árstímum, vikudögum og tíma dags,“ segir
Þröstur.
„Þetta er afskaplega öruggt kerfi og einfalt í
notkun. Pantanir eru gerðar á heimasíðunni www.
just-eat.is og þegar fólk hefur slegið inn póstnúmer
sitt birtist listi veitingahúsa sem senda heim í það
póstnúmer, en matseðlar birtast þegar valið er
annaðhvort sótt eða heimsent. Pöntun fer svo beint á
viðkomandi veitingahús og vaktmenn frá okkur
fylgja pöntunum eftir og sjá til þess að veitingahús
eldi ekki máltíð fyrr en sendill er farinn frá okkur.
Þannig tryggjum við að matur sé aldrei orðinn
kaldur eða staðinn þegar hann berst þeim sem
pantaði.“ thordis@frettabladid.is
Já, borðaðu bara!
Þröstur Már Sveinsson, framkvæmdastjóri Just-Eat.is, sem
býður landsmönnum að panta heimsendan mat frá úrvali
íslenskra veitingastaða í gegnum netið. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Kjúklingur er góður í pottrétti með kókosmjólk, rauðu karríi og
grænmeti. Látið kjúklinginn malla lengi. Rétturinn er jafnvel betri
upphitaður daginn eftir.
Lamb í leirpotti
Lambakjöt fyrir fjóra - skorið í bita
2 msk. olía og út í hana skal hræra
salti og pipar og eftirfarandi kryddi:
1 tsk. saffran
2 tsk. engifer
1 tsk. kúmen
1 tsk. paprikukrydd
Nokkur hvítlauksrif
2 stórir laukar
8 gulrætur
3 stórar bökunarkartöflur
Ferskt kóríander
Grænmetissoð
Aðferð:
Fyrst skal velta kjötbitunum upp úr
kryddolíublöndunni ásamt lauk og
hvítlauk og blanda vel. Setjið síðan
í góðan leirpott. Hellið dálitlu græn-
metissoði yfir og síðan gulrótum og
kartöflum. Strá svo ferskum kór-
íander yfir allt saman, setja lokið
á og leirpottinn inn í 200 gráða
heitan ofn í klukkutíma. Má bæta
við grænmetissoði og kryddi eftir
smekk.
Uppskrift Sifjar
Hækkaðu þig upp um einn
5 12345
papinos.is
9
20% afsláttur af öllu
í Hafnarfi rði
Besti
afþreyingar-
vefurinn
2007
Samtök vefiðnaðarins völdu visir.is
besta afþreyingarvefinn fyrir árið 2007.
Sjá vef Samtaka vefiðnaðarins – svef.is
...ég sá það á visir.is
Auglýsingasími
– Mest lesið