Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 32
„Ég var nýbyrjuð í hljómsveit sem
heitir The End en kærasti minn
er söngvari hljómsveitarinnar.
Siggi Zúmm á auglýsingastofunni
Pipar heyrði af því að Barði væri
að leita að söngkonu til að flytja
í lag í forkeppni Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva og
benti honum á mig. Eftir að Barði
var búinn að heyra lög með mér
var haft samband við mig og ég
var spurð að því hvort ég væri
til í að syngja lag Barða í keppn-
inni,“ segir Rebekka Kolbeins-
dóttir söngkona. Hún sló heldur
betur í gegn í flutningnum á lagi
Barða Jóhannssonar Ho ho ho we
say hey hey hey í Laugardagslög-
unum en á morgun ræðst endan-
lega hvort lagið kemst áfram í
forkeppni söngvakeppninnar.
Rebekka er systir Ívars Arnar
Kolbeinssonar, söngvara Dr. Mist-
er & Mr. Handsome, og fetar því
í fótspor bróður síns sem hefur
að vísu ekki lagt í forkeppni Euro-
vision enn sem komið er. „Ég var
ekki lengi að hugsa mig um og
fílaði strax lagið þegar ég heyrði
það í fyrsta skipti. Þetta gerð-
ist allt afar fljótt en daginn eftir
símtalið frá Barða var ég komin í
stúdíó enda einungis fjórir dagar
í keppnina og því var allt sett á
fullt,“ bætir Rebekka við. Þau sem
flytja lagið hlutu mikið lof fyrir
hressilegan flutning enda ekki
amalegt að hafa sjálfan Gilzen-
egger olíu borinn á hliðarlínunni.
„Hópurinn er æðislegur og með
okkur hefur tekist mikil vinátta.
Það hefur verið frábært að vinna
með Barða og við náum rosalega
vel saman,“ segir Rebekka en
hópurinn æfir stíft og þétt þessa
dagana.
Rebekka er ættuð frá Hvolsvelli
en er uppalin að mestu í Hafnar-
firðinum. Tónlistin hefur alla tíð
gegnt stóru hlutverki í lífi hennar
og var mikilvægur hluti af upp-
eldi hennar. Hún lærði um tíma
söng hjá Guðmundu Elíasdóttur
sópransöngkonu. „Það var alltaf
draumurinn að verða
söngkona. Ég hef sungið
frá því ég man eftir mér
bæði í kórum og tekið þátt
uppfærslum á söngleikjum
en forkeppni Eurovision-
keppninnar er stærsta tæki-
færið hingað til. Ég hef lengi
beðið eftir þessu tækifæri
því söngurinn er það sem
mig langar til að vinna
við í framtíðinni,“
segir söngkonan að
lokum sem horf-
ir nú á draum-
inn verða að
veruleika.
Rebekka Kolbeinsdóttir söngkona ætlar að slá í gegn á morgun
„The End“
upphafið að
Eurovision-ævintýri
2
Li
st
in
n
g
ild
ir
8
. -
1
5.
fe
b
rú
ar
2
00
8
Skífulistinn er samantekt af mest seldu titlum í Skífunni og verslunum BT út um allt land.
Astrópía
Næturvaktin
Superbad
Secret, The - íslenskt
No Reservations
I Now Pron. You Chuck & Larry
Bring It On - In it to win it
High School Musical 1
Meet the Robinsons DVD
Grettir í Raun
Bourne Ultimatum
Mýrin
Pirates of the Caribbean 3
Knocked Up
Anna og Skapsveiflurnar
Charlottes Web
Her Best Move
Doddi þættir 1-8
High School Musical 2
Grey’s anatomy Sería 3
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
VINSÆLUSTU DVDVINSÆLASTA TÓNLISTIN
Lay Low Ökutímar
Villi Vill Myndin af þér
Hjálmar Ferðasót
Mugison Mugiboogie
Mars Volta The Bedlam In Goliath
Páll Óskar Allt fyrir ástina
Radiohead In Rainbows
Leona Lewis Spirit
Ýmsir Pottþétt 45
Jack Johnson Sleep Through The Static
Sprengjuhöllin Tímarnir okkar
Eagles Long Road Out Of Eden
Ellen Kristjánsdóttir Einhversstaðar einhverntíma
Hjaltalín Hjaltalín
Robert Plant & A Krauss Raising Sand
Cat Stevens The Very Best Of
Johnny Cash Ring Of Fire
Bloodgroup Sticky Situation
Gus Gus Forever
Creedence Clearw. Revival Chronicle: 20 Greatest Hits
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Skífulistinn topp 20
A
A
N Lækkar frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í staðNýtt á listaAftur á lista
1 3 4 11 19
Vinsælustu titlarnir
N
N
N
4 • FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008