Fréttablaðið - 08.02.2008, Side 43

Fréttablaðið - 08.02.2008, Side 43
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 7heilsa og lífsstíll ● fréttablaðið ● Líkamsræktarstöðin Bjarg á Akureyri býður upp á námskeið, þar sem líkams- rækt og ráðleggingar um mataræði fyrir börn eru í fyrirrúmi. Ýmis úrræði eru í boði fyrir börn og ungl- inga sem vilja öðlast betri heilsu. Fyrir utan hefðbundna leikfimi og sund í skólum eru flest sveitarfélög með öflug íþróttafé- lög sem bjóða börn og unglinga velkomin. Hins vegar er það ekki allra að vera í hópíþróttum og því verða sum börn örlít- ið hornreka og finna ekki hreyfingu að sínu skapi. Líkamsræktarstöðvar eru flestar fyrir 16 ára og eldri en yngri krakkar geta oft æft með foreldrum og sumar stöðvar bjóða sérstök námskeið fyrir börn yngri en 16 ára. Líkamsræktarstöðin Bjarg á Akureyri er í hópi slíkra stöðva því þar er boðið upp á námskeiðið Gravity-Krakkaþjálfun, þar sem líkamsrækt og ráðleggingar varðandi mataræði og almenna hreyfingu fyrir börn og unglinga, sem vilja temja sér holla lífs- hætti, eru höfð í fyrirrúmi. Davíð Kristins- son heilsuþjálfari sér um Gravity-krakka- þjálfun og hefur verið með full námskeið frá því að þau hófust. „Tímarnir eru hannaðir með það í huga að fá krakka til að vera virkari í líkams- þjálfun og fræða þau um líkamann og vöðvahópa. Auðvitað reynir maður einnig að hafa áhrif á hvað þau borða með því að tala um hvað er hollt og gott en mestu skiptir að krakkarnir hafi gaman af tímun- um,“ segir Davíð. „Það fer ekki á milli mála að offita hefur aukist, bæði hjá börnum og fullorðnum og það er fyrst og fremst mataræðið og svo hreyfingarleysið sem hefur áhrif. Það er búið að fituskera allt of mikið þannig að við erum komin með það á heilann að fita sé versti óvinurinn en sykurmagnið er sífellt að aukast. Flest börn byrja til dæmis daginn á því að borða sykrað morgunkorn en mun betra væri að fá sér góðan hafra- graut og brauð með smjöri og feitum osti,“ segir hann. Davíð er mjög ánægður með árangur þeirra barna sem til hans hafa komið og segir þau peppa hvert annað upp í að borða betur, mæta vel og púla aðeins meira. Mörg halda svo áfram þar sem þau finna hvað æfingarnar gera þeim gott og ná jafn- vel að draga foreldrana með sér í hollust- una og meiri hreyfingu. „Oftast er þetta vandamál sem öll fjölskyldan þarf að vinna í saman en ekki einn og einn ef nást á ár- angur í átt að betri heilsu og hollari lífs- stíl,“ segir Davíð. Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á heimsíðu Heilsuþjálfunar, www. heilsuthjalfun.is og Bjargs á Akureyri, www.bjarg.is, en þar er einnig verið að skipuleggja heilsupakka fyrir fjölskyldur, vini og vinnufélaga sem geta komið í heilsuheimsóknir til Akureyrar. - vaj Davíð kennir í tímum sem eru hannaðir til að fá krakka til að vera virkari í líkamsþjálfun og fræða þau um líkamann og vöðvahópa. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Gaman að peppa og púla KETTLER VERSO 107 Segulviðnám með 12 kg kasthjóli. 10 þyngdarstillingar. Æfi ngatölva með púlsmæli. Fyrir allt að 110 kg. Segulviðnám með 10 þyngdarstillingum Æfi ngatölva með púlsmæli. Fyrir allt að 110 kg. Mótorstýrt segulviðnám með 14 kg kasthjóli. Æfi ngatölva með 6 kerfum, þyngdarstillingu, púlsmæli og fl eiru. Fyrir allt að 130 kg. Mótorstýrt segulviðnám með 9 kg kasthjóli. Æfi ngatölva með 6 kerfum, þyngdarstillingu, púlsmæli og fl eiru. Fyrir allt að 130 kg. KETTLER PASIO 107 KETTLER VERSO 307 KETTLER PASIO 307 Markið Ármúla 40 108 Reykjavík Sími 553-5320 Opnunartími verslunar: mán. - fös. 10.00-18.00 laugardaga 11.00-16.00 ÁÐUR KR. 45.900 ÁÐUR KR. 62.400 ÁÐUR KR. 31.200 ÁÐUR KR. 45.900 TILBOÐ KR. 36.720 TILBOÐ KR. 49.920 TILBOÐ KR. 24.960 TILBOÐ KR. 36.720 www.markid.is VEGNA HAGSTÆÐR A INNKAUPA BJÓÐUM VIÐ 20 % AFSLÁTT AF FJÖLÞJÁLFUM OG Þ REKHJÓLUM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.