Fréttablaðið - 08.02.2008, Page 60
28 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Ertu með einhver
kort með textanum
„Við skulum hætta
að senda hvor
annarri jólakort“?
Allan tímann sem Pierce var
að fikta í gítarnum mínum
leið mér eins og þessu
myndi aldrei nokkurn
tímann ljúka.
Þekki
það.
En svo var það búið, og ég
hélt honum í fangi mér...
Ó já.
Og þá vissi ég að ég myndi
aldrei líta af honum aftur!
Já!
Nákvæm-
lega!
En svo byrja þau í
leikskóla...
Við erum
hætt að tala
um gítara, er
það ekki?
Einu sinni enn. Símanúmerin standa
hérna í skrifblokkinni og líka nöfnin á
veitingastaðnum og bíóhúsinu.
Við erum bara tíu mínútur í burtu, en
þetta gengur örugglega allt saman
vel.
Þú þarft ekki að sann-
færa mig um það.
Ég er að reyna að
sannfæra sjálfa
mig.
Súkkulaðikanínur
endast lengur.
Ég gleymdist fljótlega í búri í
bakgarðinum, og svo var mér
hent út í garð.
Börnin urðu svo glöð þegar þau
fengu mig á þessum sunnudags-
morgni. En...
Sögur af dýra-
hótelinu
Kalli
Maggi... Hef fullkomna
stjórn!
Úps! Sorrí!
Þetta kom
mér... á
óvart!
Óheppni!
Kallaðu
þetta
það sem
þú vilt!
Gjafakort
Eitt af því skemmtileg-
asta sem ég veit er að
læra eitthvað nýtt.
Bókasöfn eru því
meðal uppáhaldsstað-
anna minna en þar get
ég endalaust grúskað í bókum um
trúarbrögð, landafræði og sögu.
Að sama skapi er haustið sú árstíð
sem ég hef mest dálæti á því þá
byrjar skólinn og alls konar nám-
skeið sem ég er dugleg að sækja.
Því miður er tíminn þó alltaf
svolítið vandamál og þrátt fyrir að
vera dugleg að draga alls konar
doðranta með mér heim af bóka-
safninu gefst mér yfirleitt ekki
tími til þess að klára þá og þeim er
venjulega skilað aftur hálf eða lítið
sem ekkert lesnum. Það sama má
segja um námskeiðin sem ég er
alltaf að skrá mig á í háskólanum,
því eins spennandi og mér finnst
þau vera þegar ég vel þau, þá fer
mesti sjarminn af þegar þarf að
lesa námsefnið utanskóla með
vinnu. Sérstaklega ef við hafa
bæst önnur stök námskeið sem ég
hef ákveðið að sækja á kvöldin.
Mér hefur því lengi verið hugleik-
ið atriði í fyrstu Matrix-myndinni
sem ég sá eins og flestir aðrir á
sínum tíma. Aðalgaurinn þurfti að
læra margt á skömmum tíma og í
stað þess að sitja sveittur yfir bókum
var hann bara forritaður með öllu
því nauðsynlegasta. Þessi hugmynd
fannst mér strax frábær og vonaði
að í framtíðinni yrði eitthvað þessu
líkt mögulegt. Stundum þegar ég
skilaði ólesnum bókum á safnið með
tárin í augunum yfir öllum fróð-
leiknum sem ég innbyrti ekki, velti
ég því fyrir mér hversu miklu þægi-
legra væri að fá bara lánuð alls
konar svona forrit fyrir manns-
heilann. Tilhugsunin um að fara
heim með forrit og læra esperanto,
tai chi og stjörnufræði á einum degi
og skila þeim svo daginn eftir og
sækja ný fannst mér frábær.
Góðar hugmyndir eru hins vegar
oft ekki eins góðar og þær virðast
í fyrstu og þó að þetta myndi vissu-
lega spara mikinn tíma myndi
gamanið fljótt kárna. Því með því
að læra allt á engum tíma liði ekki
á löngu þangað til að ekki væri
lengur hægt að læra eitthvað nýtt.
Og hvað væri gaman við það?
STUÐ MILLI STRÍÐA Svo lengi lærir sem lifir
EMILÍA ÖRLYGSDÓTTIR ÆTLAR BARA AÐ GEFA SÉR TÍMA TIL AÐ LÆRA
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Barcelona
Vorveisla
Prag
Budapest
Kraká
Vilnius