Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 67
FÖSTUDAGUR 8. febrúar 2008 35
Píanóleikarinn Daníel Þorsteins-
son og sellóleikarinn Sigurður
Halldórsson hafa leikið reglulega
saman á tónleikum í 25 ár. Þeir
hafa ákveðið að halda upp á
áfangann með tónleikum í
Norræna húsinu í dag kl. 12.15, en
tónleikarnir eru liður í hátíðinni
Myrkir músíkdagar.
Sigurður og Daníel léku einmitt
fyrst saman á Myrkum músíkdög-
um árið 1983 og því verður að
teljast við hæfi að farsælu
samstarfi þeirra félaga sé fagnað
á hátíðinni í ár. Á dagskrá þessara
afmælistónleika er íslensk tónlist
úr ýmsum áttum; leikin verða
verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Úlfar Inga Haraldsson, Hjálmar
H. Ragnarsson og Hafliða
Hallgrímsson. Sérstakur gestur á
tónleikunum verður Marta
Hrafnsdóttir altsöngkona. - vþ
Aldarfjórð-
ungur í
samstarfi
FAGNA GÓÐU SAMSTARFI Sigurður Hall-
dórsson, Daníel Þorsteinsson og Marta
Hrafnsdóttir.
Tvöfalda safnplatan „Femin – 38
lög fyrir konur“ er komin í búðir.
Á plötunni eru
ballöður og
popplög með
flestum af
vinsælustu
tónlistarmönn-
um heimsins í
gegnum tíðina,
þar á meðal
John Lennon,
Norah Jones,
Amy Winehouse, Michael Jackson
og Katie Melua. Á meðal
íslenskra flytjenda eru Ragnheið-
ur Gröndal, Helgi Björnsson og
Garðar Thór Cortes.
Síðasta Femin-plata, sem kom
út fyrir tveimur árum, seldist í
tvö þúsund eintökum enda var
hún full af gæðapoppi rétt eins og
þessi nýjasta.
Kræsilegt
kvennapopp
FEMIN Safnplatan
Femin er komin í
búðir.
Gítarleikarinn Hilmar Jensson er
að undirbúa styrktartónleika fyrir
samstarfsfélaga sinn og vin, saxóf-
ónleikarann Andrew D´Angelo, sem
greindist með heilaæxli á dögunum.
Liggur hann nú á spítala og bíður
eftir því að komast í aðgerð.
„Aðgerðin er mjög dýr og eins og
svo margir Bandaríkjamenn er
hann án sjúkratryggingar, þannig
að það getur verið talsvert erfitt að
fjármagna þetta,“ segir Hilmar,
sem vonast til að geta haldið tón-
leikana innan tveggja vikna. „Það
verða allir að reyna að gera það sem
þeir geta og á síðunni andrewdang-
elo.com er hægt að nálgast fréttir
af hans ástandi. Þar verður líka
hægt að leggja inn framlag og síðan
eru í burðarliðnum styrktartónleik-
ar í New York og Boston.“
Hilmar, sem er með Andrew í
hljómsveitinni Tyft, kynntist honum
þegar hann var við nám í Boston.
„Þar kynntist ég honum, Jim Black
og Chris Speed. Eftir að ég kláraði í
Boston bjó ég í New York með þeim
þremur og síðan höfum við unnið
mjög náið saman,“ segir hann og
bætir við að Andrew sé mikils virt-
ur víða um heim. „Hann hefur verið
í fremstu röð sinnar kynslóðar í
þessari senu sem er yfirleitt kölluð
New York Downtown-senan. Hún er
oft kennd við tónlistarstaðina Knitt-
ing Factory og Tonic. Það var hópur
sem var áberandi á þeim stöðum og
hann tilheyrði honum.“
Hljómsveitin Tyft stefnir á að
fara í tónleikaferð um Evrópu í maí
nú í vor verði Andrew búinn að
jafna sig fyrir þann tíma. - fb
Tónleikar fyrir veikan félaga
ANDREW D´ANGELO Bandaríski saxófón-
leikarinn er á leiðinni í skurðaðgerð vegna
heilaæxlis.
HILMAR JENSSON
Hilmar er að und-
irbúa styrktartón-
leika fyrir Andrew
D´Angelo.
Árin, sem er fyrsta lag hljóm-
sveitarinnar Á móti sól í rúmt ár,
fór beint í efsta sæti lagalista
Félags hljómplötuframleiðenda
sína fyrstu viku á lista.
Á móti sól gaf síðast út nýtt
efni á safnplötunni Á móti sól í 10
ár sem kom út í nóvember árið
2006. Auk vinsælustu laga
sveitarinnar um árin var þar
lagið Hvar sem ég fer, sem var
afar vinsælt árið 2006. Á móti sól
er að undirbúa sína áttundu plötu
og er hún væntanleg fyrir jólin.
Framundan hjá sveitinni er
spilamennska um páskana á
Selfossi, Eskifirði, Blönduósi og
Akranesi.
Árin beint
í efsta sæti
Á MÓTI SÓL Hljómsveitin Á móti sól á
vinsælasta lag landsins.
Family Guy eins og þú hefur
aldrei séð þau áður! Sérstök
söfnunarútgáfa í takmörkuðu
magni! Troðfullur af aukaefni
m.a. viðtal við George Lucas.
ATH: Ótextað
2.299