Fréttablaðið - 08.02.2008, Qupperneq 78
46 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT 2. korntegund 6. klukka 8.
sæ 9. frostskemmd 11. bor 12. óróleg
14. í vafa 16. tveir eins 17. fæðu 18.
svif 20. ekki heldur 21. fálma.
LÓÐRÉTT 1. lummó 3. þys 4. fúslega
5. væl 7. flugeldur 10. meðal 13. pili
15. baklaf á flík 16. fjör 19. bardagi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. bygg, 6. úr, 8. sjó, 9. kal,
11. al, 12. ókyrr, 14. efins, 16. tt, 17.
mat, 18. áta, 20. né, 21. pata.
LÓÐRÉTT: 1. púkó, 3. ys, 4. gjarnan,
5. gól, 7. raketta, 10. lyf, 13. rim, 15.
stél, 16. táp, 19. at
Frá Hollywood bárust þær fréttir nýverið að
kvikmynd um skákeinvígið 1972 hefði fengið
grænt ljós og yrði sett í framleiðslu. Þetta
er myndin Bobby Fischer Goes To War sem
Kevin McDonald mun leikstýra, en hans
þekktasta mynd er The Last King of Scot-
land. Það er ljóst að Sæmundur Pálsson,
Sæmi rokk, verður burðarpersóna í þessari
mynd, enda hægri hönd Bobbys Fischers á
sínum tíma.
„Jú, ég neita því ekki, það hefur eitt-
hvað verið hringt í mig út af þessu,“
segir Sæmi. „Það hringdi einhver
náungi en ég man ekki hvað hann
heitir. Það hafa verið alls konar
þreifingar og maður veit ekkert
hvað verður úr þessu. Mér hafa verið boðnar
prósentur ef myndin verður gerð í samráði
við mig. Ég sagði þeim bara að senda
samninginn og ég mun svo skoða hann
með lögfræðingi. Maður veit nú ekkert
hvað verður úr þessu, þetta er allt á frum-
stigi enn þá.“ Það er skemmtilegur sam-
kvæmisleikur að gera sér í hugarlund
hvaða Hollywood-stjarna verður valin í
hlutverk Sæma. „Guðmundur G. Þór-
arinsson stakk upp á því að Brad
Pitt væri rétti maðurinn til að
leika mig,“ segir Sæmi og hlær.
„Það er ekki leiðum að líkjast,
ég segi ekki annað.“
Sæmi sá vin sinn Bobby
Fischer síðast um vorið 2007.
„Við kvöddumst þá sem vinir.
Ég var svo á ferðalagi úti um
allan heim, meðal annars á Indlandi og á Spáni,
og satt að segja hélt ég að veikindi hans væru
ekki jafn alvarleg og þau reyndust. Ef ég hefði
vitað það hefði ég reynt að hitta hann aftur.“
- glh
Hollywood hringir í Sæma rokk
HELLO MR. FISCHER, MY NAME IS SÆMI
Brad Pitt myndi rúlla upp hlutverkinu.
ALLS KONAR ÞREIFINGAR Í GANGI Sæmi segir samt allt
á frumstigi enn þá með sinn þátt í Bobby Fischer Goes
To War.
„Baugur hafði allavega meiri húmor
fyrir þessu en Kvikmyndamiðstöð,“
segir fjöllistamaðurinn og læknir-
inn Lýður Árnason. Hann var einn
þeirra 46 sem fengu styrk úr Styrkt-
arsjóði Baugs sem úthlutað var úr í
gær. Lýður og kvikmyndafyrirtæk-
ið hans, Í eina sæng ehf., eru með í
bígerð kvikmyndina Frostrósir en
hún fjallar um minnislausan
at hafnamann og unga stúlku á
villigötum í lífinu sem hittast fyrir
algera tilviljun. „Og þau eiginlega
skiptast á minni og peningum, hún á
minnið en hann á nóg af peningum,“
útskýrir Lýður en myndin er með
dramatísku ívafi.
Sagan um
minnislausa athafnamanninn virð-
ist hafa hitt í mark hjá forsvars-
mönnum Baugs sem styrkja verk-
efnið um eina milljón. Lýður sótti
einnig styrk hjá Kvikmyndamið-
stöð en þar talaði hann fyrir dauf-
um eyrum. Að sögn læknisins hefur
hann þó ekki lagt árar í bát og
hyggst bara sækja peningana
annars staðar frá. „Við viljum nátt-
úrlega gera þessa mynd áður en við
drepumst,“ segir hann en meðal
þeirra sem höfðu gefið vilyrði sitt
fyrir að leika í myndinni voru
Gunnar Eyjólfsson, Kristján Frank-
lín og Anita Briem.
- fgg
Baugur styrkir minnis-
lausa athafnamanninn
FROSTRÓSIR Mynd Lýðs
fjallar um minnislausan
athafnamann sem
kynnist ungri stúlku á
villigötum.
ÆTLUÐU AÐ LEIKA Gunnar Eyjólfsson og
Anita Briem höfðu gefið vilyrði sitt fyrir að
leika í myndinni.
Magnús Scheving hefur undanfarið
hálft ár verið að skrifa bók með dr.
Miriam Stoppard sem er kannski
hvað þekktust fyrir að vera höf-
undur Kvennafræðarans sem kom
út á íslensku árið 1988 og svo Stóra
kvennafræðarans sem gefinn var
út árið 1996. Bækur hennar hafa
selst í milljónum eintaka og Miri-
am hefur einnig verið með heilsu-
þætti í sjónvarpi. Að sögn Magnús-
ar hafa skrifin staðið yfir í hálft ár
og bókin mun að öllum líkindum
heita How to Raise Healthy Kids
eða Hvernig á að ala upp heilbrigð
börn. Magnús segir að það hafi
verið hæg heimatökin að komast í
kynni við Stoppard en hún er góð
vinkona forsetafrúarinnar, Dorrit
Mousaieff. „Stoppard var sjón-
varpsstjarna hérna á árum áður,
hún er læknir og mikill fræðingur
og því góður samstarfsfélagi,“
útskýrir Magnús.
Eftirspurnin eftir sjónvarpsþátt-
unum um íbúa Latabæjar og bar-
áttu þeirra við Glanna glæp virðist
nánast óþrjótandi. Og Magnús segir
að bráðum verði farið af stað með
framleiðslu þriðju þáttaraðarinnar
en upphaflega var gert ráð fyrir að
þeirri framleiðslu yrði slegið á
frest eftir síðustu þáttaröð og meira
gert út á leikið efni. Að sögn Magn-
úsar eru allar líkur á því að breska
ríkissjónvarpið, BBC, verði einn
meðframleiðenda en Magnús hefur
verið tíður gestur inni á gólfi sjón-
varpsrisans og haldið fyrirlestra
um hvernig á að búa til gott barna-
efni. Hann segir þó að nýja þátta-
röðin verði með eilítið öðruvísi
sniði en vill að öðru leyti ekkert tjá
sig um málið.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
í gær átti Magnús fund með David
Cameron, formanni breska Íhalds-
flokksins. Cameron á sjálfur þrjú
börn sem eru öll forfallnir Lata-
bæjar-aðdáendur og hann var því
ekki í vafa um að Sportacus, eða
Íþróttaálfurinn, væri rétti maður-
inn til að lesa yfir hausamótunum á
forystumönnum úr heilbrigðis- og
matvælageiranum í Bretlandi.
„Cameron gerir mikið út á heilsu-
samlega ímynd sína og vissi vel út
á hvað Latibær gengur,“ segir
Magnús en tekur jafnframt skýrt
fram að hvorki Latibær né Íþrótta-
álfurinn hafi tekið pólitíska afstöðu.
„Hins vegar er því ekki að leyna að
það er gott að eiga bakland hjá
Cameron enda sýna allar kannanir
um þessar mundir að hann verði
næsti forsætisráðherra Breta,“
segir Magnús en í gær greindi
Daily Mirror frá því að þetta her-
bragð Íhaldsflokksins hefði farið
illa ofan í forsvarsmenn Latabæjar
og jafnvel væri núna talað um
Cameron sem Glanna glæp breskra
stjórnmála. freyrgigja@frettabladid.is
MAGNÚS SCHEVING: BBC MEÐFRAMLEIÐANDI AÐ NÆSTU ÞÁTTARÖÐ
Magnús Scheving í sam-
starf með Dr. Stoppard
NÝ ÞÁTTARÖÐ Í FRAMLEIÐSLU BBC verð-
ur að öllum líkindum einn meðframleið-
andi nýju þáttaraðarinnar um Latabæ.
Dýfur á hlutabréfamarkaði virðast
ekki hafa áhrif á Hannes Smára-
son athafnamann. Að morgni
fimmtudags hélt Hannes ásamt
fjölskyldu sinni í skíðaferð til Frakk-
lands. Þar dvelur hann í
eigin fjallakofa og renn-
ir sér niður sínar eigin
skíðabrekkur. Orðið
„kofi“ er ekki lýsandi
því híbýlin eru búin
öllum þægindum en í
fyrra keypti Hann-
es sér húsið fyrir
1,2 milljarða.
Með í kaupun-
um fylgdu tvær
skíðabrekkur.
Félagarnir Páll Magnússon
útvarpsstjóri og hans hægri hönd,
Þórhallur Gunnarsson, eru
kampakátir þessa dagana. Þeir fara
hvergi í launkofa með þá skoðun
að þeirra hlutverk og Ríkisútvarps-
ins sé fyrst og fremst að standa
sig í samkeppni og hafa nú miklar
væntingar vegna nýrr-
ar könnunar sem
er í gangi og gerð
er með tæki sem
fólk ber á sér og
nemur útvarps- og
sjónvarpsbylgjur.
Þeir telja sig hafa
heimildir fyrir
því að þar
sé RÚV með
áður óþekkta
yfirburði.
Meðan athygli RÚV-ara er á
útvarps- og sjónvarpsbylgjutækjum
sem suða í vösum fólks leggja þeir
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, og Skarphéðinn
Guðmundsson dag-
skrárstjóri drög að
efnismeiri dagskrá
með áherslu á
íslenskt efni.
Þannig hafa þeir
tryggt sér sýning-
arrétt á Latabæ
auk þess sem nú
er í vinnslu ný
gamanþáttaröð
þar sem meðal
annarra Eggert
Þorleifsson
kemur við sögu.
Jeremy Clarkson, sá og hinn sami
og stjórnar hinum ofurvinsæla Top
Gear, var væntanlegur til landsins
í gær og ætlaði að vera viðstaddur
frumsýningu þáttarins þar sem
farið var á íslenskum jeppabifreið-
um á Norðurpólinn. Nánast allir
fjölmiðlar landsins fjölluðu um
málið og var meðal annars búið að
bóka Clarkson í viðtal hjá Kast-
ljósinu. En Clarkson
réð ekki Við vetur
konung sem
setti velflestar
samgöngur
úr skorðum á
landinu í gær og
varð að hverfa frá
á Heathrow-flug-
vellinum.
- jbg/fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það eru buffalo-vængirnir
á TGI Fridays, þeir eru æði.
Maður borðar þá einu sinni
í mánuði og lifir síðan bara í
samviskubiti.“
Jón Jósep Sæbjörnsson tónlistarmaður.
Sendu sms BTC RAF
á númerið 1900
og þú gætir unnið!
Vinningar eru DVD m
yndir, varningur
tengdur myndinni og
margt
fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
. Kemur í verslanir 7. febrúar!