Fréttablaðið - 08.02.2008, Page 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Ferðaskrifstofa
Fyrir skemmstu tók ég mér frí frá vinnu á föstudegi, drakk
kaffi á kaffihúsi og vafraði um
netið. Ég notaði líka tækifærið til
að skrifa útlenskum vini tölvu-
póst á ensku. Skyndilega tók ég
eftir að tölvan var að verða
rafmagnslaus. Ég skimaði undir
bekkinn sem ég sat á og kom auga
á innstungu undir fótum manns-
ins á borðinu við hliðina. Sökum
bréfaskriftanna voru málstöðv-
arnar í öðrum ham en venjulega
og án þess að hugsa spurði ég
manninn á ensku hvort ég mætti
stinga tölvunni í samband hjá
honum. Hann hélt nú það. En
verra var að ég heyrði strax á
málrómnum að þessi maður var
ekki útlenskur frekar en ég.
NÚ voru góð ráð dýr; annaðhvort
að leiðrétta mistökin og líta út
eins og bjáni eða halda leiknum
áfram. Ég kaus síðari kostinn. Til
að koma ekki upp um mig þakkaði
ég fyrir á ensku með ýktum,
óræðum hreim. Eftir það þyrfti
ég aðeins að sitja kyrr þangað til
maðurinn færi og ekki segja orð á
íslensku upphátt á meðan. Gall-
inn var sá að hann sýndi ekki á
sér neitt fararsnið.
ÞARNA sat ég og reyndi að láta
líta út eins og ekkert væri. Sem
betur fer hitti ég engan sem ég
þekkti og sem betur fer hringdi
síminn ekki. En því miður gat ég
ekki lesið dagblöðin eins og ég
hafði ætlað mér. Það gat sessu-
nautur minn hins vegar. Og svo
óheppilega vildi til að hann ákvað
að lesa Bakþanka Fréttablaðsins.
Óheppilega segi ég því aftan á
blaðinu var pistill eftir mig með
mynd og nafni – útlendinginn sem
hann hafði verið að tala við rétt í
þessu.
HVERNIG get ég spilað mig úr
þessu? hugsaði ég með mér í
sömu andrá og ég bölvaði í hljóði
að heita ekki alþjóðlegra nafni.
Myndi hann trúa því að ég væri
bandarískur gyðingur að nafni
Bergstein? Ég horfði á spilaborg-
ina hrynja. Fyrst leit hann á
myndina. Svo á mig og aftur á
myndina. Síðan veitti hann mér
náðarhöggið. „Fyrirgefðu, ert
þetta ekki þú?“ Ég kinkaði aum-
ingjalega kolli, skreið skömm-
ustulega aftur undir bekkinn til
að taka tölvuna úr sambandi, tók
saman föggur mínar og dagblaðið
og gekk vandræðalegur á dyr.
MÉR varð hugsað til þessa atviks
þegar ég fylgdist með viðbrögð-
um manna við REI-skýrslunni.
Það er best að viðurkenna mistök
strax.
Auli
Í dag er miðvikudagurinn
8. febrúar, 39. dagur ársins.
9.51 13.42 17.33
9.47 13.27 17.07