Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 4
4 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
www.ostur.is
Rífandi
góðir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Osló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Amsterdam
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
3°
2°
-1°
-2°
1°
8°
9°
6°
7°
2°
16°
5°
8°
5°
21°
9°
28°
16°
Á MORGUN
5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
Stíf norðlæg átt allra
austast, annars hægari.
3
3
3
3 3
3
3
5
5
3
0
5
7
8
7 6
7
5
8
5
6
9
6
4
3
5
3
7 7
7
5 5
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
AÐGERÐALÍTIÐ
VEÐUR Það eru
dæmigerðar
suðvestlægar
áttir á landinu
með nokkuð mildu
veðri. Núna með
morgninum gengur
úrkomusvæði til
austurs yfi r land en
eftir hádegi ætti
meginþorri þess
að vera kominn
austur yfi r land og
því úrkomulítið
síðdegis.
BANDARÍKIN, AP Repúblikaninn
Mitt Romney styður flokksbróður
sinn John McCain til að verða
forsetaefni flokksins í kosningun-
um í haust.
Stuðningur Romneys tryggir
enn frekar yfirburðastöðu
McCains í forkosningabaráttu
Repúblikanaflokksins. Romney
dró sig út úr slagnum í síðustu
viku þegar ljóst var að erfitt yrði
að sigra McCain.
Romney hefur beðið þá 280
kjörmenn, sem hann hafði tryggt
sér, að greiða McCain atkvæði sitt
á flokksþingi repúblikana í
byrjun september, þegar forseta-
efni flokksins verður kosið. - gb
Forsetaslagurinn í BNA:
Mitt Romney
styður McCain
MITT ROMNEY Biður sína menn að kjósa
McCain. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR, AP Ivar Henriksen,
sjötugur fyrrverandi forstjóri
vatnsveitu Óslóborgar, var í gær
dæmdur í átta ára fangelsi fyrir
að hafa dregið sér fé úr fyrir-
tækinu áratugum saman.
Sonur hans var dæmdur í fimm
ára fangelsi og tveir aðrir voru
einnig dæmdir í fangelsi fyrir
hlut sinn að málinu.
Lars Stoltenberg saksóknari
sagðist aldrei hafa séð jafn
þungan dóm fyrir spillingarmál í
Noregi. Meðan réttarhöldin stóðu
yfir sagði hann brot feðganna
vera stærsta spillingarmál sem
nokkru sinni hefði komið fyrir
norskan dómstól. - gb
Spillingarmál í Noregi:
Sjötugur for-
stjóri í fangelsi
LÖGREGLUMÁL Amfetamín í
söluskömmtum, um 20 grömm af
kannabisefnum og um hálf
milljón í peningum fundust við
húsleit í Breiðholti í vikunni.
Grunur leikur á að peningarnir
séu ágóði af fíkniefnasölu.
Karlmaður á þrítugsaldri var
handtekinn.
Sama dag komu tveir aðrir
karlmenn á þrítugsaldri við sögu
hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.
Báðir voru með fíkniefni í fórum
sínum. - jss
Þrír handteknir við húsleit:
Fíkniefni og
hálf milljón
VIÐSKIPTI Forráðamenn tuttugu og
einnar fasteignasölu hafa skrifað
undir viljayfirlýsingu um náið
samstarf með svokallaðri klasa-
myndun. Óskar Rúnar Harðarson
frá fasteignasölunni Mikluborg,
sem er ein af þessum fasteignasöl-
um, segir eitt af meginmarkmið-
unum vera að gera miðlægan
gagnagrunn með fasteignum sem
allar fasteignasölurnar í klasan-
um geti notað við söluna.
Óskar Rúnar segir ennfremur
að eftir um það bil einn og hálfan
mánuð verði samstarfið komið á
koppinn ef allt gengur eftir. Óskar
Rúnar vil ekki nefna þær fast-
eignasölur sem skrifað hafa undir
en segir að þær séu með þeim
stærstu og reyndustu á markaðn-
um.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa nokkrir fasteigna-
salar sem ekki tilheyra klasanum
brugðist harkalega við og jafnvel
reynt að bregða fæti fyrir þá sem
að henni standa. Þau viðbrögð eru
þó ekki frá stærstu fasteignasölu-
keðjunni, Remax. Nýi klasinn mun
hafa rúmlega fimmtíu löggilta
fasteignasala á sínum snærum eða
fleiri en aðrir á markaðnum.
Sverrir Kristinsson, hjá Fast-
eignasölunni Eignamiðlun, segir
sitt fyrirtæki ekki hafa séð hag í
því að taka þátt í þessu samstarfi
en hafi heldur ekki reynt að hindra
það. „Við ráðum engu um það
hvernig aðrir stjórna sínum fyrir-
tækjum svo ég sé ekki hvernig við
ættum að geta komið í veg fyrir
það sem þeir kjósa að gera.“ - jse
Tuttugu og ein fasteignasala sameinar krafta sína:
Reynt að bregða fyrir þá fæti
FASTEIGNASALA Óskar Rúnar segir að
þegar gagnagrunnurinn verði kominn á
geti seljendur með einni færslu tryggt
sér þjónustu frá 21 fasteignasölu.
STJÓRNSÝSLA Tjón vegna vatnsleka
sem varð í byggingum á varnar-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli
dagana 18. og 19. nóvember 2006
má að mestu leyti rekja til óvenju-
legs veðurs og óvenjulegs frá-
gangs vatnslagna. Þetta er niður-
staða Ríkisendurskoðunar sem að
ósk utanríkisráðuneytisins vann
skýrslu um tjónið. Ríkisendur-
skoðun lítur svo á að erfitt hafi
verið að sjá fyrir veðrið og frá-
gang lagnanna og því sé ósann-
gjarnt að ásaka þá sem ábyrgð
báru á svæðinu um vanrækslu á
eftirlits- og viðhaldsskyldum.
Embættið finnur að ýmsu við
yfirfærslu á mannvirkjum og
rekstri á Keflavíkurflugvelli eftir
brottför varnarliðsins. Í skýrsl-
unni eru nefnd óljós og óformgerð
hlutverkaskipan, fjárskortur eða
síðbúnar fjárheimildir og nokkur
lausatök við móttöku, vörslu og
eftirlit með þróunarsvæðinu.
Þá kemur fram að ágreiningur
innan stjórnarráðsins um hvernig
forræði svokallaðs þróunarsvæðis
skyldi háttað hafi leitt til þess að
ákvörðun um stofnun Þróunar-
félags Keflavíkurflugvallar var
nokkuð síðbúin. Jafnframt hafi
skapast núningur milli embætta á
flugvellinum um hlutverk hvers
og eins á þróunarsvæðinu. „Auð-
veldlega hefði mátt komast hjá
þessu með skýrari fyrirmælum,“
segir í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar. Engu að síður er tekið fram að
þegar tekið er tillit til umfangs og
skamms undirbúningstíma hafi
yfirtaka Keflavíkurflugvallar í
meginatriðum verið leyst vel af
hendi.
Samtals skemmdust 106 íbúðir í
þrettán fjölbýlishúsum auk þess
sem vatnslagnir sprungu í sjö
öðrum mannvirkjum. Mat Þróun-
arfélagsins og Verkfræðistofu
Suðurnesja er að tjónið hafi numið
á bilinu 79-109 milljónum króna.
Er í skýrslunni tekið fram að ekki
sé hlaupið að því að meta tjón sem
þetta og því beri að taka matinu
með fyrirvara.
Fimmtán mánuðir eru síðan
utanríkisráðuneytið fór þess á leit
við Ríkisendurskoðun að úttektin
yrði gerð. Í skýrslunni segir að sá
mikli dráttur sem orðið hafi á að
ljúka athuguninni skýrist fyrst og
fremst af síðbúinni umsögn ráðu-
neytisins sjálfs, sem helgast af
ráðherraskiptum í kjölfar kosn-
inganna síðastliðið vor, og annríki
hjá Ríkisendurskoðun í nóvember
og desember.
bjorn@frettabladid.is
Enginn ber ábyrgð á
79-109 milljóna tjóni
Ríkisendurskoðun telur hæpið að rekja megi vatnstjón á varnarsvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli til beinnar vanrækslu þeirra sem báru ábyrgð á svæðinu. Ágrein-
ingur innan stjórnarráðsins tafði stofnun Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.
ÞRÓUNARSVÆÐIÐ Á KEFLAVÍKUR-
FLUGVELLI Vatnsrör sprungu í fjölda
bygginga á svæðinu vegna óvenju-
mikils frosts helgina 18. og 19. nóv-
ember 2006. Fór frostið mest í rúmar
tólf gráður. Auk íbúðarhúsnæðis
skemmdust fyrrum skrifstofuhús-
næði, leikskóli, verkstæði, æskulýðs-
miðstöð og geymslur.
SKEMMT Mest varð tjónið í fjölbýlis-
húsum þar sem vatnslagnir eru í risi
ofan við einangrun efstu íbúða.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Þrettán lönd
nota börn í herþjónustu að sögn
Radhika Coomaraswamy, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna.
Samkvæmt Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna (UNICEF) eru 3.000
börn við herþjónustu, meðal ann-
ars í Afganistan, Búrúndí, Búrma
og Súdan. Í mörgum þessara landa
hafa börn verið myrt, ráðist hefur
verið á skóla og spítala og stúlkum
verið nauðgað.
Aðstoðarframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna hvetur
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
til að taka á þessu máli. - áf
Börn í herþjónustu:
Þrettán lönd
nota börn í her
DÓMSMÁL Átján ára karlmaður
hefur verið dæmdur í fjögurra
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir líkamsárás. Hann sló mann
á þrítugsaldri í andlitið með
hafnaboltakylfu fyrir framan
veitingastaðinn Dubliners við
Hafnarstræti í Reykjavík í maí
2006. Fórnarlambið hlaut mar á
auga og handlegg.
Árásarmaðurinn játaði fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur að hafa
slegið manninn, en kvað hann
hafa slegið til sín fyrst. Sú
útskýring var ekki tekin til
greina.
Hann var látinn greiða
fórnarlambinu rúmar hundrað
þúsund krónur í bætur, auk
sakarkostnaðar. - sþs
Fjögurra mánaða skilorð:
Sló mann með
hafnaboltakylfu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafði tvívegis afskipti af sömu konu á
fertugsaldri á einum degi, þegar hún
var tekin fyrir þjófnað úr verslunum.
Hún endaði í fangageymslum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Stelsjúk kona tekin tvisvar
GENGIÐ 14.02.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
128,8077
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
66,66 66,98
131,32 131,96
97,43 97,97
13,068 13,144
12,236 12,308
10,444 10,506
0,6156 0,6192
105,23 105,85
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR