Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 16
16 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR ALÞJÓÐLEG SAMKEPPNI UM SKIPULAG VATNSMÝRARINNAR T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA „Það er gaman að sjá hvað menn hafa lagt mikið á sig. Hins vegar vantar ýmislegt,“ segir Óskar Bergsson, borg- arfulltrúi Framsóknar- flokks. Óskar segist hafa viljað betri tengingu við miðborgina í verðlaunatillögunni. Vatnsmýrin sé eins og nýtt úthverfi: „Ég hefði viljað sjá betri gönguás á milli Kvosarinnar og Vatnsmýrarinnar. Þar á milli er ekkert nema autt svæði. Þá finnst mér hæpið að tala um hvað við ætlum að gera í Vatnsmýrinni áður en framtíð innalandsflugsins og miðstöðvar þess í höfuðborginni er leyst.“ - gar Borgarfulltrúi Framsóknar: Ónóg tenging við miðborgina SKIPULAGSMÁL „Þar sem við höfðum unnið eina samkeppni fannst okkur við eiginlega verða að taka þátt í annarri. Við unnum aftur og erum alveg í sjöunda himni. Þetta er alveg frábært fyrir okkur,“ segir skoski verðlaunahönnuðurinn Graeme Massie. Tillöguna vann Massie ásamt félögum sínum Stuart Dickson og Alan Keane í Edinborg. Í hitteðfyrra unnu þeir samkeppni um samkeppni um skipulag miðbæjarins á Akureyri. „Okkar meginhugmynd gengur út á hvernig hægt sé að byggja á ímynd Reykjavíkur sem heimsborgar,“ svarar Massie. „101 Reykjavík er þekkt um allan heim og verkefnið var að búa til nýjan borgarhluta til að styrkja þá mynd. Borgir um allan heim keppa um viðskipti og ferðamenn. Reykjavík er undraverð borg sem keppir svo sannarlega á heimsvísu.“ Dagur B. Eggertsson, formaður dómnefndar, tók þannig til orða að tillaga Massies væri eins og uppdráttur að því að ljúka við þá Reykjavík sem fyrir væri. „Það hljómar eins og mjög gott hrós að við höfum náð að fullkomna borgina og við erum afar stoltir af því,“ segir Graeme Massie. - gar Skotar unnu fyrst skipulagssamkeppni á Akureyri áður en þeir sigruðu í Vatnsmýri: Alveg frábært að vinna aftur STUART DICKSON OG GRAEME MASSIE Skosku hönnuðirnir til vinstri við líkan af verðlaunatillögu sinni um framtíðarskipu- lag Vatnsmýrarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Þessi samkeppni er stórmerkileg því hún markar nýtt upphaf að Reykjavík 21. aldarinnar,“ segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Svandís segir að í Vatnsmýrarsam- keppninni sé bæði tekið á þéttingu byggðar og nýjum kostum í samgöng- um. „Þarna er það rammað inn að Vatnsmýrin er algjört lykilsvæði í að búa til góða og vistvæna höfuðborg til framtíðar,“ segir Svandís sem telur hægt að byggja á verðlaunahugmynd- inni. „Það verður spennandi að nota hana sem grunn til að búa til gott skipulag í Vatnsmýrinni.“ - gar Oddviti Vinstri grænna: Samkeppnin er stórmerkileg SVANDÍS SVAV- ARSDÓTTIR Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að sýna beri virðingu þeirri miklu vinnu sem sé að baki Vatnsmýrarsam- keppninni. „Það væri fráleitt að bregða fæti fyrir þessa vinnu á þessu stigi. Það liggur fyrir að þessar tilögur munu nýtast, hvort sem flugvöllur verður áfram í Vatnsmýri eða ekki,“ segir Ólafur. Að sögn Ólafs benda flest rök enn til þess að ekki finnist annar og betri kostur en flugvöllur í Vatnsmýri. „Þess vegna er ég andvígur því að menn taki óafturkræfa ákvörðun um flutning flugvallarins á þessu stigi.“ - gar Borgarstjóri Reykjavíkur: Nýtist með og án flugvallarins ÓLAFUR F. MAGNÚSSON ÓSKAR BERGSSON SKIPULAGSMÁL Tillaga Graemes Massie og félaga fékk í gær fyrstu verðlaun í samkeppni Reykjavíkurborgar um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. Alls voru sendar inn 136 erlendar og íslenskar tillögur í Vatnsmýrarkeppnina og fengu sjö þeirra viðurkenningu í gær og verð- launafé frá um 1,5 milljónum króna til 6 millj- óna fyrir tillöguna í fyrsta sæti. Tillaga Massies og samstarfsmanna hans, Stuarts Dickson og Alan Keane frá Edinborg, þykir dómnefndinni hafa burði til að verða útgangspunktur framtíðarþróunar í Vatns- mýri. „Hljómskálagarðurinn er stækkaður til suðurs og ný tjörn umkringd fjölda nýrra bygginga gerð að miðpunkti Vatnsmýrar- innar. Göturnar Barónsstígur og Snorrabraut eru framlengdar, frá Þingholtum að Fossvogi og á ræmunni milli þeirra eru helstu íbúðar- svæði, ásamt skrifstofu- húsnæði og þyrpingum opinberra bygginga og skóla- húsnæðis,“ segir í umsögn einhuga dómefndar um til- lögu Massies. „Það er einstakt að eiga á annað hundrað hektara lands í hjarta höfuðborgarinnar til að skipuleggja til framtíðar- innar, búa atvinnulífi 21. ald- arinnar kjörskilyrði og stuðla að heillavænlegri framtíðar- þróun og samkeppnishæfni samfélagsins,“ sagði Dagur B. Eggertsson, formaður dómnefndarinnar, áður en verðlaunahafar voru kynntir. Dómnefndin var skipuð þremur borgarfulltrú- um ásamt fjórum innlendum og erlendum sérfræðingum. Dagur sagði mikinn metn- að hafa verið lagðan í sam- keppnina. „Sama metnað þarf að sýna í næstu skrefum,“ sagði hann. Hanna Birna Kristjánsdótt- ir, formaður skipulagsráðs og einn dómnefnd- armanna, segir verðlaunatillöguna algjörlega kjörna fyrir svæðið. „Tillagan er mjög aðgengileg fyrir borgar- yfirvöld vegna þess að hún er áfangaskipt og gerir okkur kleift að byrja að vinna strax með skipulagið hvort sem þarna verður áfram flugvöllur eða ekki,“ sagði Hanna Birna. Bæði Hanna Birna og Dagur sögðu það mikinn kost að tillaga Massise tæki mið af skipulagi nærliggjandi hverfa í Reykjavík. „Þetta er klassískt skipulag fyrir klassíska borg og þess vegna teljum við að það lifi, hvort sem við nýtum það núna á næstu árum eða áratugum,“ sagði Hanna Birna. Borgarráð samþykkti í gær að setja á lagg- irnar nýjan sjö manna stýrihóp undir for- mennsku Hönnu Birnu sem ætlað er að starfa áfram að heildarskipulagi Vatnsmýrarinnar. „Við munum byrja strax á því að skoða og skipuleggja þau jaðarsvæði í Vatnsmýrinni sem er hægt að byrja að byggja á,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir. gar@frettabladid.is Skotar hanna Vatnsmýrina Tillaga skoskra hönnuða vann samkeppni um skipulag í Vatnsmýri. Gert er ráð fyrir framlengingu Hljóm- skálagarðsins og nýrri tjörn í blandaðri byggð íbúða og atvinnustarfsemi. Borgarfulltrúar eru ánægðir. DAGUR B. EGG- ERTSSON HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR SÚLNAGÖNG Vegna erfiðs veðurfars veita samfelld súlnagöng skjól í verslunarhverfinu. MIÐSVÆÐIÐ Á miðsvæðinu eiga að vera opnar sjónlínur að að kennileitum á borð við Hallgrímskirkju og Perluna. TILLAGAN Hljómskálagarðurinn er framlengdur til suðurs og ný tjörn mynduð mitt í nýju Vatnsmýrarhverfi. PERLAN NÝJATJÖRN REYKJVÍKURTJÖRN HALLGRÍMSKIRKJARÁÐHÚSIÐ NORRÆNA HÚSIÐ MIÐSVÆÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.