Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 46
 15. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● ráðstefnur Veiðihúsið við Grímsá í Borgar- firði hefur verið vinsælt afdrep undir viðskiptafundi síðastliðin ár. Þar er líka hægt að finna sér margt annað til dægrastyttingar, svo sem laxveiði og skoðunar- ferðir um óviðjafnanlega nátt- úrufegurðina. „Við erum með allt sem þarf fyrir fundi og ráðstefnur ásamt heitum potti, gufubaði og staðsett í lands- lagsperlu svo auðvelt er að sameina vinnutörn og góða slökun að loknum vinnudegi,“ segir Egill Kristjánsson matreiðslumeistari, sem hefur rekið veiðihúsið við Grímsá síðastliðin sex ár, en það er í eigu fjölskyldu- fyrirtækisins Stórlax. Þrátt fyrir að Grímsá og veiðihúsið sé helst tengt stangveiði og laxi þá telur Egill að ekki megi gera lítið úr þeim viðskipt- um sem fram fari á staðnum og fáir staðir henti betur til árangurs. „Það eru margir góðir samning- ar og samrunar sem rekja má hing- að. Hér er svo gott að slaka á og árangurinn oft og tíðum meiri og betri en á hefðbundnum fundarstað. Hvort sem fólk kemur hingað til að veiða eða í markvissa vinnuferð með fyrirlestrum og tilheyrandi þá er hér einstök stemning sem skilar sér. Og héðan lekur ekki neitt,“ segir Egill hress í bragði. Að sögn Egils er húsið mjög vin- sælt allt árið um kring. „Sumarið er tími fyrir veiði, vinnu og veislu. Hér er veisla á hverjum einasta degi allt sumarið. Við leggjum mikinn metn- að í að elda góðan mat úr góðu hrá- efni enda ekki hægt að veita fyrsta flokks mat úr annars flokks hráefni. Stundum er eldað úr ánni en einnig hefur hráefnið komið lengra að.“ Hann nefnir til sögunnar fasta- gesti sem veiða í Afríku og fara með bráðina til Grímsár. „Fyrir þann hóp hef ég meðal annars mat- reitt krókódíl, antílópur og sebra- hest svo eitthvað sé nefnt. En það er ekki daglega á diskum,“ segir Egill sem greinilega lumar á mörgum ævintýralegum sögum. Hann bætir við að það sem gerist við Grímsána gerist í góðu minni manna og fari ekki lengra. Það sem aðrir fá að sjá og vita sé stundum afrakstur vinnu og tengsla sem gott fæði og næði ná að skapa. Fyrirtæki og vinahópar geta síðan nýtt veiðihúsið í ýmsar skemmti- og vinnuferðir utan laxveiðitímabilsins. Vinsælt hefur verið að koma á vorin og haustin í sjóbirtingsveiði og er þá jafnvel slegið saman í vinnuferð, veiði og matreiðslukennslu, enda staðarhaldari þekktur fyrir elda- mennsku sína. Einnig eru svokallað- ar Ráðgátuskemmtanir eða Murder and Mystery mjög vinsælar og er þá oft unnið með Ævintýrasmiðju Esk- imos sem útvegar handrit og skipu- leggur afþreyingu fyrir hópinn. -vaj Krókódílar og ráðgátur við Grímsá Grímsá í Borgarfirði hefur verið ein eftirsóttasta laxveiðiá landsins frá upphafi stangveiði hér á landi. Áin sjálf og umhverfi hennar er einstaklega fagurt og veiðistaðirnir skemmtilegir og fengsælir. Veiðileyfi eru seld í ána sem nemur 90 dögum hvert sumar og fullbókað er langt fram í tímann. Þeim sem ekki kom- ast í laxveiðina gefst tækifæri til að njóta þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða aðra daga ársins. Veiðihúsið sem þar stendur á sér mikla og merkilega sögu en bygging þess hófst árið 1972. Stangveiðifélagið þótti ætla sér fullstóra hluti þegar lagt var upp með þekktan erlendan arkitekt og 1.000 fermetra hús á teikniborðinu. Miklar deilur sköpuðust um húsið á sínum tíma en það var engu að síður reist og stendur enn. Til að fjármagna lokasprettinn í byggingunni var gripið til þess ráðs að selja veiðileyfi fram í tímann og um tuttugu bandarískir veiðimenn lögðu út 25.000 Bandaríkjadali á mann og tryggðu sér viku veiðileyfi næstu tíu árin. Þar með var fjár- mögnun hússins borgið. Margir þessara veiðimanna eru enn fastagestir í Grímsá og koma nú í fylgd barna og barnabarna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.