Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 74
38 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Þessa dagana er verið að halda upp á 25 ára afmæli mest seldu plötu sögunnar, Thriller með Michael Jackson sem kom upphaflega út 30. nóvember 1982. Tímamótanna er meðal annars minnst með nýrri tvöfaldri viðhafnarútgáfu sem inniheldur eitt áður óútgefið lag, nýjar endurgerðir af lögum af plötunni eftir menn eins og Kanye West og will.i.am og myndbönd og sjónvarpsupptökur á DVD-disk. Auk þess er geisladiskurinn sjálfur að sjálfsögðu gulllitur. Michael Jackson gerði Thriller með Quincy Jones. Upptökurnar tóku fjóra mánuði og allan þann tíma var unnið fram á rauða nótt. Þeir hittust fyrst árið 1977 þegar Quincy var að vinna við kvikmyndina The Wiz sem Michael lék í. Í framhaldi af því tókst þeim með herkjum að sannfæra stjórnendur Epic-plötuútgáfunnar um að Quincy væri ekki of djassaður fyrir gömlu Motown-unglingastjörnuna og Quincy stjórnaði upptökum á fyrstu sólóplötu Michaels, Off The Wall, sem kom út 1979. Hún seldist í 10 milljónum eintaka þannig að þegar röðin var komin að Thriller var samstarfið búið að sanna sig. Thriller er mögnuð plata fyrir margra hluta sakir. Þeir sem bera ekki mikla virðingu fyrir Michael Jackson segja sumir að vissulega sé Thriller ágæt, en það sé allt Quincy Jones að þakka. Quincy á vissulega mikið í plötunni, en það breytir því ekki að þrjú bestu lög plötunnar, Wanna Be Startin’ Somethin’, Beat It og Billie Jean eru öll samin af Michael sjálfum. Það síðastnefnda er reyndar eitt af flottustu popplög- um sögunnar – ég held því fram, a.m.k. þangað til einhver sannfærir mig um annað, að það sé ekki flottara grúv í neinu öðru popplagi... Thriller er 25 ára. Ein af mínum uppáhaldsplötum. Þegar hún kom út var mér samt slétt sama. Var of upptekinn af því að hlusta á Birthday Party, Cramps, Pere Ubu og The Fall til að leggja við hlustir. Það kom nokkrum árum seinna... 25 ára snilldarverk THRILLER Inniheldur meðal annars lagið Billie Jean sem skartar flottasta grúvi sögunnar. > Plata vikunnar Hot Chip - Made in the Dark ★★★★ Þessi þriðja plata Íslandsvinanna hressu í Hot Chip lætur lítið yfir sér við fyrstu kynni en fer að svínvirka eftir nokkrar hlustanir. Spilist hátt! TJ > Í SPILARANUM Poetrix - Fyrir lengra komna Bob Mould - District Line Midnight Juggernauts - Dystopia Mountain Goats - Heretic Pride Vampire Weekend - Vampire Weekend POETRIX VAMPIRE WEEKEND Tíu ár eru síðan ein áhrifa- mesta plata samtímans (og að margra mati ein sú besta) kom út. En af hverju er In the Aeroplane Over the Sea svona mikilvæg? Steinþór Helgi Arnsteinsson greinir frá arfleifð Neutral Milk Hotel. Neutral Milk Hotel var umfram allt einmenningsverkefni Jeff Mangum, aðallaga- og textahug- myndasmiðs sveitarinnar. Hann sankaði síðan að sér tónlistarmönn- um héðan og þaðan og úr varð NMH. Hljómsveitin sendi einungis frá sér tvær plötur, hina fyrr- nefndu In the Aeroplane Over the Sea (1998) og On Avery Island (1996). Magnaðar lagasmíðar ITAOTS er platan sem ritaði nafn NMH í sögubækurnar. Platan er þemaplata og sækir efni sitt í feg- urri og bjartari hliðar dagbókar Önnu Frank. Textarnir eru oft í meira lagi súrrealískir og inn- hverfir en tala skýrt til flestra. Þannig eru til fjölmargar sögur af því að oft hafi áhorfendaskarar á tónleikum NMH yfirgnæft sjálfa hljómsveitina með söng sínum. Hugmyndaríkar útsetningar halda einnig merkjum ITAOTS auðveldlega á lofti. Frumlegt brass setur sinn svip á plötuna en það eru ekki síður einföldu lögin, þar sem Mangum kyrjar einn með gítarinn, sem vekja eftirtekt. Söngurinn er fullur ofsa og ákefðar en flýtur samt í fullkomnu jafnvægi við lag- línurnar. Þrúgandi þögnin Af hverju ekkert meira hefur heyrst frá NMH síðan ITAOTS kom út er ráðgáta. Hvernig fylgir maður samt eftir slíku stórvirki? Spekingar hafa ýmist sakað Mang- um um heigulshátt eða sagt það hafa verið rétt að hætta á toppnum. Hver hefði samt ekki viljað heyra meira frá NMH? Þrátt fyrir að taka ekki nema rétt um fjörutíu mínútur í flutningi eru áhrif plötunnar ITAOTS ótví- ræð. Eins og sjá má á næstu síðu finnast áhrifin á mörgum stöðum og listinn er langt frá því tæmandi. Til dæmis má nefna að grínistinn Fellur aldrei í gleymsku ÁHRIFAMIKLIR Jeff Mangum (sá með engil í fanginu) og félagar hans í Neutral Milk Hotel fagna um þessar mundir tíu ára afmæli plötunnar In the Aeroplane Over the Sea sem er með betri plötu síðasta áratugar. Hljómsveitirnar Amiina og Seabear ásamt Jóhanni Jóhannssyni og Ólafi Arnalds koma fram á Iceland Airwaves-tónleikum í menn- ingarmiðstöðinni Bozar í belgísku borginni Brussel í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af lista- hátíðinni Iceland on the Edge sem er stærsta menningar- og kynningarhátíð Íslands á erlendri grundu á þessu ári. Hátíðin fer fram í Brussel og hefst formlega 26. febrúar. Síðari tónleikarnir á vegum Iceland Airwa- ves fara fram 8. mars á tónleikastaðnum Ancienne Belguique þar sem fram koma múm, Kira Kira, Skakkamanage og Parachutes. Iceland on the Edge stendur yfir í fjóra mánuði, eða fram undir miðjan júní. Dagskrá hátíðarinnar er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða metnaðarfulla íslenska menningar- dagskrá sem hefur verið unnin í samstarfi við Bozar, stærstu menningar- og listamið- stöð Belgíu, sem og eitt vinsælasta tónlistar- hús Brussel á sviði popp- og rokktónlistar, Ancienne Belgique. Hins vegar verða haldnir ýmsir íslenskir viðburðir á sviði ferða-, ráð- stefnu-, orku- og alþjóðamála. Íslenskt í Belgíu AMIINA Hljómsveitin Amiina spilar í Belgíu í kvöld ásamt Seabear, Jóhanni Jóhannssyni og Ólafi Arnalds.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.