Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 51
að verði ofan á í sumar miðað við
það sem ég hef séð og upplifað er
að dömurnar fara að stytta hár sitt
með vorinu. Þetta verður í alls-
kyns útfærslum en þó áfram með
síðum toppum. Síða hárið verður
frjálslegt með styttum en kannski
eru krullur eða liðir aðeins meira
á innleið og það kæmi mér ekki á
óvart að permanentið færi að koma
sterkt inn,“ segir Hreiðar. Það ætti
að henta honum vel enda byrj-
aði hann í hárgreiðslu þegar hver
einasta kona var með permanent
og því er hann eiginlega kominn
hringinn. En þannig er lífið bara!
martamaria@365.is
endurspeglar kannski lífsstílinn
en Danir eru meira úti en við Ís-
lendingar,“ segir Hreiðar og Jó-
hann bætir því við að þær dönsku
komi almennt sjaldnar, kannski
tvisvar, þrisvar á ári og endurbóki
síður. „Konur eru almennt betur
til hafðar hárlega séð á Íslandi.
Danskir strákar eyða hins vegar
miklum peningum í útlitið og fara
mjög oft í klippingu. Þeir mössuðu
metróið, eru hryllilega mikið stíl-
iseraðir. Þeir eru líka ofboðslega
líkir. Íslenskir strákar eru miklu
afslappaðri,“ segir Hreiðar og upp
sprettur mikil umræða um karl-
menn og snyrtimennsku.
Aðspurðir um hver þróunin sé í
rekstri hárgreiðslustofa segir Jó-
hann: „Það er margt að gerast núna.
Til dæmis eru herrastofur að verða
miklu stærri hluti af markaðnum.
Strákar eru farnir að eyða miklu
meiri tíma í að fara í nudd, spa og
handsnyrtingu. Þetta á bara eftir
að aukast,“ segir Jóhann. Þegar
þeir félagarnir eru spurðir hvort
þeir séu svona miklir snyrtipinnar
sjálfir þvertaka þeir fyrir það og
Hreiðar segist stundum ekki raka
sig svo vikum skipti. „Það sem er
að gerast, miðað við álagið á vinnu-
stöðum, þá finnur fólk sér leið til
að slaka á. Það kaupir slökun og
frítíma og þá er frábært að koma
á staði eins og Loft Salon þar sem
hægt er að slappa af og gleyma
amstri hversdagsins.“ Þeir vilja að
fólk gefi sér tíma þegar það kemur
á hárgreiðslustofu hvort sem kúnn-
inn kemur í hálftíma eða tvo tíma.
„Það er lykilatriði að njóta augna-
bliksins þegar það er á stofunni í
stað þess að bíða eftir því að geta
hlaupið út. Við viljum að fólk nái að
slappa af, fái sér hvítvínsglas eða
orkudrykk og taki jafnvel vini sína
með sér á hárgreiðslustofuna,“
segir Jóhann.
Að nema land í Danmörku og
opna þar fyrirtæki er heilmikið
mál. Þegar þeir eru spurðir að því
hvort þetta hafi ekki vaxið þeim í
augum vilja þeir ekki meina það.
„Nei, ég held að það sé það íslenska
í okkur. Við létum slag standa.
Okkur var sagt að Danir væru
svipaðir Íslendingum og það hefur
verið raunin. Það eru margir hlut-
ir sambærilegir, vinnuumhverfi
og tíska. Svo styrkti það stöðu
okkar að hafa Redken með sér í
liði,“ segir Jóhann en Loft Salon er
flaggskip Redken í Kaupmanna-
höfn. Þegar viðtalið er tekið er
tískuvikan í Kaupmannahöfn að
byrja en hárgreiðslufólkið á Loft
Salon sér um hárið á fyrirsæt-
um fyrir nokkrar sýningar. Eftir
tískuvikuna fer Hreiðar til París-
ar þar sem hann drekkur í sig nýj-
ustu strauma og stefnur en bæði
Loft Salon og Salon VEH eru hluti
af Haute coiffure francaise. Eftir
tískuvikuna í París var Hreiðar
afar hrifinn.
„Það sem mér finnst og held
SAMRUNI HUGMYNDA Að sameina
hárgreiðslustofu og hótelbar virkar
frábærlega. MYNDIR/TEITUR JÓNASSON
15. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR • 9