Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 8
8 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR LÖGREGLUMÁL Fjórir karlmenn og ein kona hafa orðið uppvís að því að svíkja út vörur hjá nokkrum raftækjaverslunum á höfuðborg- arsvæðinu fyrir samtals 12,5 millj- ónir króna. Fyrir liggur að þessi stórfelldu fjársvik voru þaulskipu- lögð með löngum fyrirvara. Meðal annars voru söluaðilar blekktir með fölsuðum millifærslustað- festingum úr heimabönkum sem sendar voru með tölvupósti, er breytt hafði verið með þeim hætti að hann virtist koma frá banka. Fjármunabrotadeild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu hóf rannsókn þessa umfangsmikla svikamáls 7. febrúar. Tveir menn voru þá handteknir er þeir voru að sækja vörupöntun í verslun. Árvekni starfsmanna þar og í ann- arri verslun til viðbótar leiddi til þess að lögreglu var gert viðvart um hugsanlega tilraun til fjár- svika. Við rannsókn málsins kom fljótlega í ljós að fleiri voru við riðnir það og voru tveir karlar og ein kona til viðbótar handtekin. Krafist var gæsluvarðhalds yfir fjórum þeirra og úrskurðaði Hér- aðsdómur Reykjavíkur þá í gæslu- varðhald, sem rann út í fyrradag. Að því búnu var brotamönnunum sleppt lausum, enda höfðu þeir þá allir játað verknaðinn og málið að því leytinu upplýst. Þeir eru á aldrinum frá tvítugu og upp í 26 ára. Lögregla vinnur hins vegar enn að því að finna hluta munanna sem fólkið sveik út úr verslununum. Einhvern hluta hefur tekist að finna, til að mynda vörur sem fólk- ið sveik út úr einni verslun á einu bretti að andvirði um 1,3 milljónir króna. Þær vörur fundust við hús- leit á heimili eins sakborningsins. Það sem fólkið sóttist einkum eftir við fjársvikin var fartölvur, símar og annað því tengt. - jss EFTIRSÓTT Fjársvikafólkið sóttist einkum eftir fartölvum og símum. Sviku út fyrir 12,5 milljónir Fjórir karlmenn og ein kona hafa orðið uppvís að stórfelldum fjársvikum. Þau sviku vörur út úr raf- tækjaverslunum fyrir á þrettándu milljón króna. 1. Hver hafnaði stöðu þjálfara karlalandsliðsins í handbolta nýlega? 2. Hversu margar konur hafa fengið hæli hér á landi vegna mansals? 3. Hver er höfundur auglýs- ingastefsins Geymslur? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 50 VERSLUN Forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins (SI) og Samtaka versl- unar og þjónustu (SVÞ) hafa játað að hafa haft með sér ólöglegt samráð um verðbreytingar vegna lækkunar virðisaukaskatts á mat- vælum úr fjórtán prósentum í sjö prósent, 1. mars síðastliðinn. Eru samtökin dæmd til að greiða alls 3,5 milljónir í sekt; SI greiða 2,5 milljónir en SVÞ eina milljón, enda litið til stærðar samtakanna við refsiákvörðun. Engin sérstök leynd var yfir samráðinu og var greint frá því í Fréttablaðinu 21. febrúar 2007 og Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn málsins í framhaldi af því. Framleiðendurnir (SI) og smá- salarnir (SVÞ) lækkuðu verð á for- verðmerktum matvörum, eins og kjöti og ostum, áður en til lög- bundinnar lækkunar kom. Var og ákveðið að þeir deildu með sér kostnaði við þetta. Samtökin segja þetta hafa verið gert til að tryggja að lækkunin skilaði sér fyllilega til neytenda á réttum tíma. Eftirlitið bendir hins vegar á að lögin spyrji ekki um tilgang sam- ráðsins. Allt verðmyndandi sam- ráð sé ólöglegt. Samráð um lækk- un geti jú leitt til þess að hún verði minni en ella. - kóþ Samkeppniseftirlitið skoðaði fyrirkomulag við verðbreytingar 1. mars: Samtökin sektuð fyrir ólöglegt samráð HÁLEIT MARKMIÐ „Áætlað er að þessar aðgerðir geti leitt til tæplega 16% lækkunar matvælaverðs og 2,3% lækkunar neysluverðs- vísitölu á næsta ári. [...] Með þessari lækkun væri matvælaverð á Íslandi orðið sambærilegt við meðalverð á matvælum á Norðurlöndunum miðað við upplýsingar [...] frá Evrópsku hagstofunni.“ - FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ, 9. OKT. 2006 SIGURÐUR JÓNSSON Framkvæmdastjóri SVÞ kynnti niðurstöðuna í gær og benti þá á að vegna samráðsins hefðu neytendur notið góðs af skattalækkuninni tíu dögum fyrr en ella. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON iRobot ehf. Hólshraun 7, 220 Hfj. • S. 555 2585 • Irobot.is Umsagnir frá eigendum iRobot Roomba ryksuguvélmennisins: ...ég hreinlega Elska hana Varist eftirlíkingarErt þú búin að fá þér eina? NordicTrack TM NAUTILUS TM ÍRAN, AP Ali Eshragi, sonarsonur Khomeinis, erkiklerks í Íran, fær ekki að bjóða sig fram til þings. Hann segir úrskurð byltingar- ráðsins um þetta ekkert annað en móðgun við fjölskyldu sína. Hann ætlar þó ekki að gera neinar formlegar athugasemdir eða fara fram á endurskoðun úrskurðarins. Úrskurður ráðsins er sagður byggður á viðtölum við nágranna Eshragis um einkahagi hans. Kosningar verða haldnar í mars. Af 7.200 manns sem upphaflega buðu sig fram hefur meira en 2.000 verið hafnað af byltingarráðinu. - gb Sonarsonur Khomeinis: Fær ekki að bjóða sig fram AJATOLLA KHOMEINI For- ingi klerkabylt- ingarinnar í Íran dó árið 1989. SJÁVARÚTVEGUR Samkomulag hefur tekist í deilunni um fyrirhugaðar uppsagnir HB Granda á Akranesi. Samstarf hefur tekist um endur- menntunaráætlun og ráðgjöf gagnvart þeim sem missa vinnuna þegar uppsagnir starfsfólks koma til framkvæmda. „Viðkomandi starfsmönnum verður veitt aðstoð við atvinnuleit, aðgengi að viðeigandi námskeiðum, gerð ferilsskrár og greiningu áhugasviðs,“ segir í frétt á heimasíðu ASÍ. Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að kanna í samráði við aðila vinnumarkaðarins hvort rétt sé að styrkja og skýra reglur um hópuppsagnir og taka af öll tvímæli um hvernig standa eigi að framkvæmd þeirra. Að mati ASÍ þarf að skýra hvaða ferli upplýsinga og samráðs þurfi að fara fram áður en ákvörðun er tekin um uppsagnir og tilkynning um þær sendar vinnumiðlun. Jafnframt verði tekin af tvímæli um hvaða stjórnvald fari með eftirlit og framkvæmd laganna. - ghs Uppsagnir HB Granda: Samstarf um endur- menntun og ráðgjöf Auglýsingasími – Mest lesið VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.