Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 82
46 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Vantar þig
aukapening?
Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu fólki
til að bera út blöð milli 6 og 7 á morgnana. Um er
að ræða holla og hressandi útiveru, annars vegar á
virkum dögum og hins vegar um helgar.
Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu þig og
fáðu borgað fyrir það.
Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild
Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að
sækja um á www.posthusid.is
– ódýrari valkostur
Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is
Pósthúsið er ungt og öflugt
dreifingarfyrirtæki á sviði
blaða- og vörudreifingar.
Hjá Pósthúsinu starfa um
sjöhundruð manns að
uppbyggingu á fjölbreyttum
og skemmtilegum vettvangi.
KÖRFUBOLTI Einn af úrslitaleikjum
um deildarmeistaratitilinn í Ice-
land Express-deild karla fer fram
í DHL-höllinni í kvöld þegar
Íslandsmeistarar KR-inga taka á
móti toppliði Keflavíkur. KR-
ingar eiga harma að hefna frá því
í fyrri leiknum sem Keflavík vann
með 22 stiga mun, 107-85.
Það tap þýðir jafnframt að KR-
ingar þyrftu að vinna leikinn með
23 stigum til þess að taka topp-
sætið af Keflavík í kvöld. Kefla-
vík er með tveggja stiga forskot
fyrir leikinn og með sigri fer liðið
langt með að tryggja sér deildar-
meistaratitilinn því liðið væri þá í
raun komið með sex stiga forskot,
með fjórum
stigum
meira en
KR og
betri
árangur
í inn-
byrðis-
viðureign-
um liðanna.
„Þetta verður
frábær leikur,
bæði lið eru gríðar-
lega vel mönnuð og eru
kannski búin að vera jafn-
sterkustu liðin yfir veturinn. Ég
held að ef Keflavík tekur þennan
leik þá verður liðið nokkurn veg-
inn komið með deildarmeistara-
titilinn,“ segir Teitur Örlygsson,
þjálfari Njarðvíkur, sem er búinn
að spila við bæði lið að undan-
förnu.
„Þetta eru ólík lið. Keflavík er
meira léttleikandi lið, er með
frábæran leikstjórnanda í Bobby
Walker og stendur svolítið og fell-
ur með honum en hann er alveg
magnaður leikmaður. KR er með
fleiri sterka pósta og ætti að öllu
óbreyttu að vinna einvígið inni í
teig. Annars er Siggi Þorsteins
búinn að vera að spila frábærlega
undanfarið og taka hellings fram-
förum.
Það er mikið rætt um útlending-
ana í liðinu en Teitur segir íslensku
strákana vera líka í stórum hlut-
verkum.
„Maggi og Jonni verða í stórum
hlutverkum hjá Keflavík í þess-
um leik. Jonni hefur átti marga
frábæra leiki og það er nokkuð
ljóst að ef hann spilar vel þá vinn-
ur Keflavík. Maggi hefur kannski
aðeins gefið eftir en það vita allir
hvernig hann er. Þó að Maggi sé
ekki að skora 20 stig í leik þá setur
hann alltaf mark sitt á leikinn,“
segir Teitur og bætir við.
„KR-megin er
Helgi ofar-
lega í hugan-
um á mér.
Hann átti
magnaðan
leik í seinni
hálf-
leik
á
móti
okkur um
daginn.
Hann var
frábær
báðum megin
á vellinum,
gerði frábæra
hluti á móti
Brenton og skor-
aði hinum megin.
KR-ingar eru síðan
með fleiri topp-
menn eins og Pálma
sem er búinn að
skjóta boltanum vel
undanfarið og Brynjar
sem er frábær skotmað-
ur,“ segir Teitur, sem á erf-
itt með að spá fyrir um
úrslit.
„Ég held að það verði frá-
bær einvígi alls staðar. Það
er ekkert ólíklegt að þessi
leikur ráðist bara í blálok-
in,“ segir Teitur.
Jón Arnar Ingvarsson,
þjálfari ÍR-inga, hefur meiri
trú á Keflvíkingum í leiknum og
aðalrökin fyrir því finnur hann í
varnarleiknum.
„Keflavík hefur
verið að spila
hraðan leik en KR
hefur frekar vilj-
að hægja á þessu
upp á síðkastið.
Þegar við
spil-
uðum við Keflavík spilaði Kefla-
vík mjög góða vörn allan tímann
en mér hefur fundist KR-ingar
verið gloppóttir í varnarleiknum
síðustu mánuðina. Þegar þeir
unnu meistaratitilinn í fyrra voru
þeir að spila gríðarlega þétta og
góða vörn. Heimavöllur KR er
mjög sterkur en ég væri ekki
hissa ef Keflavíkingar myndu
stela þessum leik því ég held
að vörnin þeirra geti gert
útslagið,“ segir Jón
Arnar sem eins og Teit-
ur segir liðin vera
ólík.
„Þetta eru í
rauninn svolít-
ið ólík lið því
Keflvíkingar
einblína
nokkuð á
bakverðina
fyrir utan, útlendingana tvo
og svo Magga. Bæði Sigurður
og Ástralinn eru góðir en þeir
eru ekki í aðalhlutverki í lið-
inu. Hjá KR leita þeir mikið til
Joshua Helm og svo nú Sola
eftir að hann kom. Þeirra leik-
ur snýst því meira um stóru
mennina,“ segir Jón Arnar en
hann telur að frammistaða
Bandaríkjamannanna koma
til með að ráða úrslitum.
„Kanarnir tveir verða
lykilmenn í þessum leik. Þetta
verður spurning um hvort
Helm nær að eiga mjög góðan
leik eða hvort Walker spili vel.
Maður sér alveg fyrir sér að
KR gæti lent í vandræðum
með Walker en á móti eru
bæði Susnjara og Sig-
urður svolitlir villu-
karlar. Ef þeir lenda
í villuvandræðum
gæti Helm fengið
að njóta sín en ef
þeir ná að halda
honum niðri þá ætti
Keflavík að taka þetta,“
segir Jón Arnar.
Leikurinn í kvöld hefst
klukkan 19.15 og það má
búast við að menn geti
fengið þar forsmekkinn af
því sem koma skal í úrslita-
keppninni sem hefst eftir
rúman mánuð.
ooj@frettabladid.is
Frábær einvígi úti um allan völl
KR tekur á móti Keflavík í kvöld í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Iceland Express-deild karla. Fréttablaðið
fékk þá Teit Örlygsson, þjálfara Njarðvíkur og Jón Arnar Ingvarsson, þjálfara ÍR, til þess að spá í leikinn.
LYKIL-
MENN
LIÐANNA
Miðherji
KR-liðsins
Joshua Helm
og leikstjórn-
andi Keflavíkur
Bobby Walker.
VÍKURFRÉTTIR/JÓN
BJÖRN
KÖRFUBOLTI Stjörnumenn unnu átta stiga sigur á
Njarðvík, 87-79, í Iceland Express-deild karla í Garða-
bæ í gær og endurtóku þar með leikinn frá því í fyrri
leik liðanna þegar liðið vann 78-81 sigur. Líkt og þá
voru þeir að frumsýna nýjan bandarískan leikmann
og það er óhætt að segja að Jarret Stephens lofi góðu
en hann var með 20 stig og 12 fráköst í gær en þurfti
að sitja síðustu þrjár mínútur leiksins eftir að hafa
fengið sína fimmtu villu.
„Ég veit að það hefur gengið illa hjá Stjörnuliðinu
upp á síðkastið og ég er ánægður með að geta komið
og hjálpað til. Við erum að reyna að komast upp á
næsta stig, tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni og
sjá til hvað við getum gert í framhaldi af því,“ sagði
Stephens sem var nokkuð sáttur við sinn fyrsta leik.
„Ég enn þá svolítið ryðgaður enda er ég ekki búinn
að spila körfubolta í nokkurn tíma en mér fannst ég
leika ágætlega og það sem stóð upp úr var að liðið var
að spila vel,“ sagði Stephens og bætti við: „Þetta lítur
vel út, ég fell vel inn í liðið og þó að ég hafi bara spil-
að með þessum strákum í tvo daga þá finnst mér að
ég passi vel inn í Stjörnuliðið.“
Stjörnumenn voru með frumkvæðið allan tímann,
leiddu 24-18 eftir fyrsta leikhluta og voru 39-36 yfir í
hálfleik. Grunninn að sigrinum lögðu þeir þó í þriðja
leikhluta þegar þeir náðu mest fimmtán stiga for-
skoti, 57-42, og eftir það var það bara spurning fyrir
Stjörnumenn að spila skynsamlega og éta upp klukk-
una, sem tókst.
Dimitar Karadzovski var allt í öllu í Stjörnuliðinu
og lék vel eins og Stephens og Jovan Zdravevski en
eins átti Guðjón Lárusson góða innkomu. Baráttan og
stemningin var Stjörnumanna allan tímann og það er
ljóst að þeim hentar vel að spila við Njarðvíkinga.
Sóknarleikur Njarðvíkinga var vandræðalegur í
gær og það var ekki nóg með að þeim gengi illa að
stilla upp á móti grimmri og hreyfanlegri vörn Garð-
bæinga heldur fóru þeir einkar illa með galopin skot
undir körfunni.
Damon Bailey lék veikur og það sást langar leiðir
og þá tókst Stjörnuliðinu ágætlega að loka á Brenton
Birmingham. Friðrik Stefánsson var sterkur undir
körfunni en líkt og Damon fór hann oft illa með
dauðafæri undir körfunni. Daníel Guðmundsson átti
fína innkomu og Jóhann Árni Ólafsson góðan enda-
sprett (12 af 18 stigum í 4. leikhluta) en leikstjórn-
endurnir Sverrir Þór Sverrisson og Hörður Axel Vil-
hjálmsson fundu sig ekki og fyrir vikið var sóknin
ráðleysisleg og tilviljunarkennd. - óój
Stjarnan hefur gott tak á Njarðvík í Iceland Express-deildinni í körfubolta:
Stjarnan skellti Njarðvík öðru sinni
VEIKUR Damon Bailey lék með Njarðvík þrátt fyrir veikindi og
það munaði um minna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Iceland Express-deild karla:
Stjarnan-Njarðvík 87-79
Stig Stjörnunnar: Dimitar Karadzovski 26, Jarret
Stephens 20 (12 frák.), Jovan Zdravevski 15, Guð-
jón Lárusson 11 (7 frák.), Kjartan Kjartansson 5,
Eiríkur Þór Sigurðsson 4, Fannar Freyr Helgason
4, Sævar Ingi Haraldsson 2.
Stig Njarðvíkur: Damon Bailey 22 (9 frák.),
Jóhann Árni Ólafsson 18, Brenton Birmingham,
15 (6 frák., 5 stolnir), Friðrik Stefánsson 12 (16
frák.), Daníel Guðni Guðmundsson, 7, Hörður
Axel Vilhjálmsson 5 (5 stoðs.).
Skallagrímur-Grindavík 88-95
Hamar-Þór Ak. 89-93
Stig Hamars: Roni Leimu 23, Bojan Bojovic 21,
Nicholas King 13, Roman Moniak 12, Lárus Jóns-
son 8, Svavar Pálsson 7, Marvin Valdimarsson 4,
Viðar Hafsteinsson 1.
Stig Þórs: Cedric Isom 28, Luka Marolt 27,
Magnús Helgason 8, Bjarki Oddsson 6, Óðinn
Ásgeirsson 4, Bjarni Árnason 3, Hrafn Jóhannes-
son 2, Birkir Hermannsson 2, Jón Kristjánsson 2,
Þorsteinn Gunnlaugsson 2.
Tindastóll-Snæfell 71-87
Stig Tindastóls: Joshua Buettner 19, Philip Perre
15, Svavar Birgisson 15, Samir Shaptahovic 11,
Halldór Halldórsson 6, Ísak Einarsson 5.
Stig Snæfells: Justin Shouse 17, Sigurður
Þorvaldsson 16, Hlynur Bæringsson 16, Magni
Hafsteinsson 15, Anders Katholm 12, Slobodan
Subasic 11.
UEFA-bikarinn:
Aberdeen-Bayern Munchen 2-2
Josh Walker, Sone Aluko - Klose, Hamit Altintop.
FC Zurich-HSV 1-3
Eric Hassli - David Jarolim, Ivica Olic, Piotr
Trochowski
Rosenborg-Fiorentina 0-1
- Adrian Mutu
Bolton-Atletico Madrid 1-0
El Hadji Diof.
Slavia Prag-Tottenham 1-2
David Strihavka - D. Berbatov, Robbie Keane.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Grindavík sótti góðan
sigur í Borgarnes í gær. Eftir að
hafa verið undir komu þeir
sterkir til baka og unnu, 88-95.
Nýr leikmaður, Florian Miftari,
var að spila sinn fyrsta leik fyrir
Borgnesinga á heimavelli en náði
ekki að koma í veg fyrir tap.
Friðrik Ragnarsson þjálfari
Grindvíkinga sagðist vera
ánægður með stigin tvö: „Það er
alltaf erfitt að koma á þennan völl
og ég var virkilega ánægður með
það hvernig við kláruðum leikinn.
Ég sagði við strákana í hálfleik að
við yrðum að stöðva Flake og það
er ekki gert nema með því að
koma í veg fyrir að hann fái
boltann,“ sagði Friðrik. - su
Iceland Express-deild karla:
Góður sigur
hjá Grindavík