Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 6
6 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Hreinar hendur
- örugg samskipti
Á tilboðií febrúar 2008DAX Handspritt, krem og sápur
DAX Sótthreinsiservíettur 20 stk. 393 kr.
DAX Hand & húðkrem 600 ml með dælu 496 kr.
DAX Handáburður 250 ml 259 kr.
NÝJAR H4 og H7
bílaperur frá
X-treme Power
allt að 80% meira ljós
NR. NS880SB
20% afsláttur í febrúar
M
er
ki
S
he
ll
er
u
no
tu
ð
af
S
ke
lju
ng
i m
eð
le
yfi
S
he
ll
Br
an
ds
In
te
rn
at
io
na
l A
G
.
KJARAMÁL Forystumenn Alþýðu-
sambandsins, ASÍ, ganga á fund
ríkisstjórnarinnar í dag til að ræða
aðkomu ríkisstjórnarinnar að
kjarasamningum á almennum
vinnumarkaði. Forysta ASÍ dustaði
í gær rykið af kröfugerð gagnvart
ríkinu frá því í haust og gerði á
henni breytingar sem verða rædd-
ar við ríkisstjórnina í dag. Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, ræðir
um aðkomu ríkisins að vaxtabót-
um, barnabótum, húsaleigubótum
og menntamálum svo dæmi séu
nefnd.
Sátt hefur tekist um útlínur
launaliðs nýrra kjarasamninga
milli Samtaka atvinnulífsins, SA,
og landssambanda innan Alþýðu-
sambandsins, ASÍ. Miðað er við
kjarasamninga sem gilda fram í
nóvemberlok 2010. Kjarasamning-
arnir fela í sér hækkun almennra
launataxta um 18 þúsund krónur
við undirskrift, 13.500 krónur árið
2009 og 6.500 krónur árið 2010.
Kjarasamningar iðnaðarmanna
taka öðrum breytingum. Þeir
hækka um 21 þúsund krónur við
undirskrift, 17.500 krónur árið
2009 og 10.500 krónur árið 2010.
Miðað er við að nýjar launatöflur
taki gildi á hverju ári og ekki gert
ráð fyrir að heimilt verði að lækka
álagsgreiðslur á móti taxtabreyt-
ingunni.
Samkomulag er um launaþróun-
artryggingu. Í því felst að þeir
sem hafa verið í starfi hjá sama
atvinnurekanda og hafa ekki feng-
ið að lágmarki 5,5 prósenta launa-
hækkun frá 2. janúar 2007 til
undirritunar samninga fái það
sem á vantar. Enn fremur verði
ákvæði fyrir þá sem hafa skipt um
starf fram til 1. september 2007. Á
árinu 2009 verði launaþróunar-
tryggingin 3,5 prósent.
Árið 2010 verði almenn launa-
hækkun upp á 2,5 prósent auk
fyrrgreindra taxtahækkana.
„Það er búið að negla þetta niður
svona að því gefnu að niðurstaða
náist í umræður og viðræður sem
eru í gangi um sérkröfur, bæði á
vettvangi Alþýðusambandsins
sameiginlega og hjá landssam-
böndunum hverju fyrir sig, og við
erum ágætlega bjartsýn á að það
takist,“ segir Grétar. „Síðan verð-
ur ekki af okkar hálfu gengið frá
kjarasamningum öðruvísi en að
ríkisstjórnin sé tilbúin að koma að
málinu með myndarlegum hætti,“
segir hann.
Landssamböndin innan ASÍ
munu funda með fulltrúum Sam-
taka atvinnulífsins næstu daga til
að ljúka sérmálum. Einnig er verið
að kappkosta að ljúka þeim sam-
eiginlegu málum sem hafa verið á
borði ASÍ gagnvart Samtökum
atvinnulífsins.
ghs@frettabladid.is
Aðkoma ríkisstjórn-
arinnar er forsenda
Sátt hefur tekist um launahækkanir á almennum vinnumarkaði. Laun hækka
um 18-21 þúsund við undirskrift. Samningar gilda til hausts 2010. Ekki verður
gengið frá samningum nema ríkisstjórnin komi að með myndarlegum hætti.
SAMKOMULAG UM LAUNAÞRÓUNARTRYGGINGU Samkvæmt samkomulaginu gilda
kjarasamningarnir fram í nóvemberlok 2010 og fela í sér hækkun upp á 18 þúsund,
13.500 og 6.500 krónur 2008-2010. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJARAMÁL Stjórn Bandalags
háskólamanna, BHM, hefur sam-
þykkt ályktun þar sem gerðar eru
alvarlegar athugasemdir við kröf-
ur Samtaka atvinnulífsins, SA, á
hendur ríkisstjórninni í tengslum
við gerð kjarasamninga á almenn-
um markaði þar sem krafist er að
hið opinbera fylgi sömu launa-
stefnu og SA hafi sett fram.
„Ríki og sveitarfélög hafa ekki
komið að mótun þeirrar stefnu,
hvað þá samtök opinberra starfs-
manna, og dæmalaust ósvífið að
ætlast til þess að kjör opinberra
starfsmanna verði ákveðin af
öðrum en þeim sem um þau eiga
að semja. Stéttarfélög Bandalags
háskólamanna eru með sjálfstæð-
an samningsrétt og munu að sjálf-
sögðu standa fast á þeim rétti.
Launakannanir hafa ítrekað sýnt
fram á að laun hjá hinu opinbera
eru 20 til 30 prósentum lægri en á
almennum markaði og úr því þarf
að bæta,“ segir í ályktuninni.
Stjórn BSRB hefur mótmælt
harðlega þessari sömu kröfu SA á
hendur ríkisstjórninni. „Þessi
krafa um forræðisvald atvinnu-
rekenda er ósvífin og ólýðræðis-
leg því hún byggir á því að huns-
aðar verði kröfur sem fram koma
frá hendi samtaka opinberra
starfsmanna í kjarasamningum
þegar þeir losna í vor. Krafan er
einnig ósvífin að því leyti að hún
byggir á því að launakjör á þeim
stofnunum sem nú búa við vax-
andi manneklu vegna bágra kjara
verði ekki leiðrétt eins og margoft
hefur verið látið í veðri vaka af
hálfu stjórnvalda að gert verði í
komandi kjarasamningum,“ segir
í ályktun sem stjórn BSRB hefur
sent frá sér. - ghs
MÓTMÆLA HARÐLEGA Stjórn BSRB
hefur mótmælt harðlega kröfu Samtaka
atvinnulífsins á hendur ríkisstjórninni.
Ögmundur Jónasson er formaður BSRB.
Stéttarfélög opinberra starfsmanna mótmæla kröfum SA á hendur ríkinu:
Ósvífið og ólýðræðislegt
Geir H. Haarde forsætisráðherra
gerir ráð fyrir að eiga fund í dag
með forystumönnum ASÍ og
atvinnurekenda til að fara yfir
óskir og önnur mál sem tengjast
lokastigi kjarasamninga. „Ef tekst
að leiða þau mál til lykta erum
við vonandi að horfa fram á það
að kjarasamningum á almennum
markaði ljúki með jákvæðum
hætti,“ segir hann.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra telur mikilvægt
að stýrivaxtaákvörðun Seðlabank-
ans liggi nú fyrir. „Við höfum verið
að funda hér með fjármálafyrir-
tækjunum og hnýta okkur saman
vegna þeirra erfiðleika sem þar
steðja að. Ég held að allar for-
sendur séu fyrir því nú að hægt
sé að ná meira jafnvægi í íslenskt
efnahagslíf,“ segir hún.
FORSENDUR FYRIR
MEIRA JAFNVÆGI
VIÐSKIPTI „Ég tel ekki að það sé nein sérstök
hætta á ferðum, umfram það sem annars
staðar er,“ sagði Geir H. Haarde, forsætisráð-
herra, eftir fund forystumanna ríkisstjórnar-
innar og forystumanna í bankakerfinu.
Fundurinn var haldinn til að ræða viðbrögð
við alþjóðlegri fjármálakrísu, en forsætisráð-
herra lét þess sérstaklega getið á Viðskipta-
þingi í fyrradag að stjórnvöld myndu ræða
við bankamenn um aðgerðir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra sagði að fundurinn hefði ekki síst verið
haldinn til að kalla eftir hugmyndum
bankastjóranna um hvernig þeir vildu
bregðast við og miðla hugmyndum stjórn-
valda. „En þetta var fyrst og fremst upplýs-
ingafundur.“
Bankastjórar sögðu fátt að fundi loknum.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings, sagði ekkert hafa komið fram um
hvernig stjórnvöld vildu leggjast á árar með
bönkunum. „Nei, ég held að menn séu
einfaldlega ennþá að skoða hvernig menn
geti unnið saman.“
„Þetta var bara almennt spjall,“ sagði
Lárus Welding, forstjóri Glitnis.
„Þetta var bara upplýsingafundur sem þau
báðu um,“ sagði Sigurjón Árnason, banka-
stjóri Landsbankans.
Geir sagði að ýmsar hugmyndir hefðu
verið ræddar, en vildi ekki ræða þær hverja
og eina. Nefndi samt hugsanlega hagræðingu
í bankakerfinu. Hann nefndi einnig að stofna
mætti formlegan samstarfsvettvang banka
og ríkisins.
Ingibjörg Sólrún nefndi að virkja mætti
viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og
sendiráðin til að miðla upplýsingum erlendis
um íslenskt fjármálakerfi. - ikh
Bankastjórar ræddu við ríkisstjórn um aðgerðir vegna alþjóðlegrar lánsfjárkreppu:
Geir segir enga sérstaka hættu á ferðinni
FÁMÁLIR BANKAMENN Sigurjón Árnason, Lárus
Welding, Guðmundur Hauksson, Guðjón Rúnarsson og
Halldór J. Kristjánsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN
Vilt þú láta setja Geirsgötu í
stokk?
JÁ 60%
NEI 40%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Viltu að Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson verði borgarstjóri?
Segðu skoðun þína á vísir.is