Fréttablaðið - 15.02.2008, Qupperneq 24
24 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
taekni@frettabladid.is
TÆKNIHEIMURINN
Skráðir notendur skráskiptasíð-
unnar The Viking Bay eru orðnir
um tuttugu og eitt þúsund talsins.
Þetta staðfestir Unnar Geir
Ægisson, talsmaður síðunnar.
Það er nálægt
þeim fjölda
notenda sem var
á torrent.is þegar
þeirri síðu var
lokað í nóvember,
eftir að lögbann
var sett á síðuna.
Þar voru 26
þúsund manns
skráðir.
The Viking Bay
var sett á laggirnar stuttu eftir
lokun torrent.is, og flykktust
fyrrum notendur lokuðu síðunnar
yfir á nýjan vettvang til að
skiptast á kvikmyndum, tónlist,
sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum.
Af málefnum torrent.is er það
að frétta að frávísunarkröfu
Istorrent ehf. í málinu gegn
Samtökum myndrétthafa á
Íslandi (SMÁÍS) hefur verið
hafnað í Héraðsdómi Reykjaness.
Svavar Lúthersson, forsvarsmað-
ur Istorrent, krafðist þess að
málinu yrði vísað frá auk tæplega
fjörutíu milljóna í skaðabætur.
Næst verður aðalmeðferð í
málinu, og fer hún fram næsta
þriðjudag. - sþs
Arftaki torrent.is vex og vex:
Yfir tuttugu
þúsund manns
á Viking Bay
SVAVAR
LÚTHERSSON
Vefurinn: Portable Apps
Knappar og færanlegar útgáfur ýmissa for-
rita til að setja á minnislykil og taka með sér
hvert sem er.
www.portableapps.com
www.forlagid.is
Stjórnendur netleitarfyrirtækisins Yahoo
gera nú allt sem þeir geta til að losna
undan yfirtökutilboði Microsoft. Þeir hafa
meðal annars leitað til fjölmiðlarisans
News Corp, með það í huga að
sameinast honum og komast
þannig út um neyðarútgang-
inn.
Darraðardansinn í kring-
um Yahoo hófst um síðustu
mánaðamót þegar Microsoft
bauðst til að kaupa fyrirtækið
á sem samsvarar tæplega þrjú
þúsund millj-
arða króna.
Litið var
á tilboð-
ið sem
tilraun
hugbúnaðarrisans til að koma fætinum
inn fyrir dyrnar í netleitarbransanum, þar
sem Google hefur borið höfuð og herðar
yfir alla aðra.
Frá upphafi var ljóst að Microsoft var
fúlasta alvara, þar sem tilboðið var
rúmlega sextíu prósentum yfir
markaðsvirði Yahoo þegar það
var lagt fram.
Þrátt fyrir það hafnaði stjórn
Yahoo tilboðinu eftir að hafa
melt það í tíu daga, og sagði
það of lágt. Microsoft svaraði
nokkrum klukkutímum síðar
með yfirlýs-
ingu
um að
fyrir-
tækið
myndi ekki gefast upp. Það myndi halda
áfram að reyna að kaupa Yahoo, þótt það
þyrfti að semja beint við hluthafa.
Það gæti leitt til svokallaðrar fjandsam-
legrar yfirtöku, en þá kaupir eitt fyrir-
tæki annað með því að sneiða fram hjá
stjórninni og kaupa upp hluti einstakra
hluthafa þar til það á ráðandi hlut í keypta
fyrirtækinu.
Í von um að sleppa við yfirvofandi yfir-
töku Microsoft hefur Yahoo átt í viðræðum
við News Corp, fjölmiðlarisann sem á
meðal annars 20th Century Fox kvik-
myndaverið, Fox-sjónvarpsstöðina, dag-
blaðið New York Post og MySpace-vefinn,
um mögulegan samruna fyrirtækjanna.
Þannig yrði bitinn mun stærri og dýrari
fyrir Microsoft, og líklegra að fyrirtækið
hætti við yfirtökuna.
SKÝRING: YFIRTÖKUTILBOÐ MICROSOFT Í YAHOO
Stjórn Yahoo leitar í ofvæni að neyðarútgangi
Rándýr mistök
Bandarísk kona vill þrjá og hálfan milljarð
króna í skaðabætur vegna þess að starfsmenn
verslunarkeðjunnar Best Buy týndu fartölvunni
hennar. Hún fór með tölvuna í viðgerð í maí
í fyrra og sá hana aldrei aftur. Konan, Raelyn
Campbell, segist nokk sama um tölvuna
sjálfa, en þúsundir milljarða króna tapist
árlega í Bandaríkjunum vegna þjófnaðar
á persónuupplýsingum og hún vilji
sjá til þess að Best Buy týni
ekki fleiri tölvum. Hún kveðst
átta sig á því að upphæðin
sé fáránleg, en þetta sé eina
leiðin til að ná athygli stjórnenda
fyrirtækisins.
Spore kemur út í september
Einn óvenjulegasti leikur síðari ára, Spore, kemur út þann 5. september. Leikur-
inn er óvenjulegur fyrir þær sakir að í honum hannar spilarinn lífveru og fylgir
henni eftir frá örverustiginu þar til hún leggur undir sig önnur sólkerfi. Honum
hefur verið lýst sem blöndu af Pac-Man, Diablo, Populous, SimCity og Master of
Orion, sem eru allt mjög ólíkir leikir. Spore er væntanlegur á PC- og
Macintosh-tölvur auk Nintendo DS leikjatölvunnar.
Tölvuormar sem dreifa eintómri hamingju
Hugbúnaðarsérfræðingar hjá Microsoft vonast til að geta
notað sömu tækni og fyrirfinnst í tölvuormum til að dreifa
öryggisplástrum og öðrum hugbúnaðarlagfæringum. Í stað
þess að hver og ein tölva hali niður öryggisuppfærslum frá
netþjóni vilja þeir láta þær dreifa sér sjálfar á milli tölva,
líkt og tölvuormur. Öryggisuppfærslum frá Microsoft
verður þó áfram dreift á hefðbundinn hátt í bili því
hugmyndin er aðeins á frumstigi.
Nýjar tegundir risaeðla finnast
í Sahara
Breskir og bandarískir vísindamenn
hafa fundið steingervinga tveggja áður
óþekktra risaeðlutegunda í Sahara-eyðimörk-
inni. Önnur tegundin var að öllum líkindum hræ-
æta, en hin veiddi sér lifandi bráð í matinn. Leifarnar
eru um 110 milljón ára gamlar.
Undanfarna daga hafa geimfarar
NASA unnið að því að koma geimrann-
sóknarstofunni Kólumbusi á koppinn
í Alþjóðlegu geimstöðinni. Rannsókn-
arstofan er stærsta framlag Evrópsku
geimferðastofnunarinnar til uppbygg-
ingar geimstöðvarinnar.
Uppsetning Kólumbusar er aðalverkefni áhafn-
ar geimferjunnar Atlantis, sem var skotið á
loft í Bandaríkjunum fyrir rúmri viku. Á þeim
tíu árum sem rannsóknarstofan verður virk
ætla evrópskir vísindamenn, með hjálp geim-
fara um borð í geimstöðinni, að gera þúsundir
tilrauna, meðal annars í líffræði og vökvaafl-
fræði.
Sjálf rannsóknarstofan, sem er sjö metrar á
lengd og sívalningslaga, var fest utan á geim-
stöðina á mánudag. Næstu dagar fóru í að
tengja rannsóknarstofuna við ýmis kerfi geim-
stöðvarinnar, setja hana upp að innan og setja
hana í gang.
Ætlunin var að ljúka við uppsetninguna á
laugardag, en vegna tæknilegra vandræða var
ferðalag Atlantis framlengt um einn dag.
Geimferjan leggur úr vör frá geimstöðinni á
mánudag og lendir aftur í Bandaríkjunum dag-
inn eftir.
Vandamálin sem áhöfn Atlantis stóð frammi
fyrir í ferðinni voru ekki eingöngu tæknileg
því líffræðileg vandamál settu einnig strik í
reikninginn. Þýski geimfarinn Hans Schlegel
þurfti að hætta við sína fyrstu geimgöngu á
mánudag vegna veikinda, og því voru geimfar-
arnir aðeins tveir sem festu rannsóknarstof-
una á geimstöðina.
Schliegel var þó fljótur að ná sér og var kom-
inn út í geim á miðvikudag. salvar@frettabladid.is
Evrópsk rannsóknarstofa
gangsett úti í geimnum
Í LAUSU LOFTI Geimfarinn Rex Walheim festir griparm á Kólumbus-rannsóknarstofuna sem er verið að setja upp í
Alþjóðlegu geimstöðinni á braut um jörðu. Geimgangan tók einar átta klukkustundir. MYND/NASA