Fréttablaðið - 15.02.2008, Side 36
É
g er á leiðinni á sölusýningu í Tókýó þar
sem ég verð með sýningar bás en við förum
sex íslenskir hönnuðir á vegum útflutnings-
ráðs, ég, Telma Design, Sruli, Ásta Creat ive
Clothes, Dead og Mundi. Eftir það fer ég síðan
til Parísar og verð þar með sýningarbás ásamt
Telmu Design,“ sagði Hrafnhildur Guðrúnar-
dóttir fatahönnuður þegar blaðið rétt náði í
skottið á henni á leið út í hinn stóra heim. Hönn-
un Hrafn hildar hefur notið mikilla vinsælda hér
á klakanum en hún selur hönnun sína í verslun-
inni Trilogiu og hjá Steinunni á Laugaveginum. „Í
seinni tíð hef ég sérhæft mig í töskuhönnun, sem
ég hefði ekki getað ímyndað mér að yrði raunin
þegar ég byrjaði í fatahönnuninni og það hefur
komið mér skemmtilega á óvart. Töskurnar hafa
verið mjög vinsælar og nú í vetur hef ég varla
getað annað eftirspurn,“ segir Hrafnhildur en
hún hefur verið á fullu síðasta mánuðinn við að
undirbúa sölusýningarnar. „Þetta er búin að vera
rosa mikil vinna en ég er svo heppin að eiga góða
að bæði vini og fjölskyldu sem hafa lagt hönd á
plóg. Án þeirra hefði ég ekki getað gert þetta,“
bætir Hrafn hildur við. Hrafnhildur útskrifað-
ist frá Listaháskóla Íslands árið 2004 og hefur
meðal annars unnið við búningahönnun og stílis-
eringar við auglýsingar. „Draumurinn er að geta
einbeitt sér algjörlega að hönnuninni og lifað á
henni í framtíðinni en fram að þessum vetri hef
ég þurft að gegna öðru starfi meðfram hönnun-
inni sem er til lengdar afar slít-
andi. Vonandi fer þetta þó
eitthvað að breytast núna
til frambúðar,“ segir
Hrafnhildur að lokum.
Nú er bara að vona að
töskurnar eigi eftir að
leggja heimsbyggð-
ina undir sig.
bergthora@fretta-
bladid.is
Hranhildur Guðrúnardóttir fatahönnuður
Íslenskur
hönnuður í útrás
Töskur Hrafnhildar hafa
slegið í gegn en þær eru
meðal annars seldar hjá
hönnuðnum STEINUNNI á
Laugavegi
Svört og elegant. Þessi er full-
komin á ballið eða bara þegar
mikið liggur við.
„Í kvöld ætla ég að plata Frey kærastann minn með mér að sjá leikritið Sólarferð eftir Guðmund Steinsson á Stóra sviði Þjóðleikhússins en það er í
leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Laugardagurinn verður væntanlega notalegur með börnunum. Annars eru sunnudagskvöldin í uppáhaldi hjá mér
því þá eldar Freyr villilambalæri kryddað með ferskum íslenskum kryddjurtum, rósmarín, hvítlauki og blóðbergi. Ég fæ vatn í munninn við tilhugsun-
ina. Og sósan, hún klikkar aldeilis ekki.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA?
Ellý Ármanns ofurbloggari og sjónvarpskona.
Hrafnhildur Guðrúnardóttir
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007
opið föstudag 11-18.30 og
laugardag 11-17
6 • FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008