Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 42

Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 42
 15. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● ráðstefnur Jón Hákon Magnússon, stofn- andi og framkvæmdastjóri KOM, elsta almannatengsla- fyrirtækis á Íslandi, segir að mörgu þurfi að huga þegar skipuleggja á ráðstefnur og fundi. Misheppnuð ráðstefna geti hreinlega lagt orðspor fyrirtækja, samtaka eða stofn- ana í rúst og því sé öruggast að kalla einhverja fagmenn til verksins. Ýmislegt þarf að taka með í reikninginn þegar skipuleggja þarf ráðstefnur eða fundi, eins og blaðamaður Fréttablaðsins komst að raun um þegar hann leitaði til svarar hjá fyrirtækinu KOM al- mannatengslum. Starfsfólk KOM hefur yfirgripsmikla reynslu af því að ná til fólks og fjölmiðla, enda fyrirtækið elsta almanna- tengslafyrirtæki á Íslandi, stofn- að árið 1986, og hefur aðstoð- að fjölda fyrirtækja og stofnana við ráðgjöf um framkomu og fjöl- miðla. „Aðalatriðið er að byrja nógu snemma að undirbúa. Íslending- um hættir til að bíða fram á síð- ustu stundu og ætla svo að redda hlutunum. Það er mjög slæmt þar sem fyrirtæki geta eyði- lagt eigið orðspor ef ráðstefna er misheppnuð. Það eru oft litlu atriðin sem öllu máli skipta. Þúf- urnar velta hlassinu,“ útskýrir Jón Hákon Magnússon, stofnandi og framkvæmdastjóri KOM al- mannatengsla, en hann hefur ára- langa reynslu af störfum á sviði almannatengsla. Jón bætir við að gott orðspor sé ein verðmætasta eign hvers fyrirtækis, stofnunar eða sam- taka. Miklu máli skipti að gera vel og því geti margborgað sig að fá fagaðila til að koma að verkinu með einhverjum hætti. „Þegar við komum að ráðgjöf þá er mjög misjafnt hvað við gerum eða hversu mikla aðstoð fyrirtækin vilja,“ segir Jón um að starfsemi Kom. „Við byrjum á að spyrja hvers eðlis ráðstefnan er og hversu margir þátttakendur koma til með að verða. Þá er leitað að hentug- um vettvangi fyrir ráðstefnuna ásamt gistirými og ferðatilhögun ef við tökum skipulagninguna frá a til ö.“ Jón segir tækni oft til vandræða á ráðstefnum og fundum og þótt ýmislegt hafi vissulega breyst til batnaðar síðan KOM var stofn- að fyrir 22 árum geti tæknin enn verið vandamál sem þarfnist úr- lausnar. Hann rifjar upp atvik þar sem ráðstefnuhaldarar á Kirkju- bæjarklaustri lentu í töluverðum vandræðum þegar pera bilaði í myndvarpa en myndvarpar voru hér í eina tíð eitt helsta tækið sem menn notuðu á ráðstefnum. „Eini maðurinn sem gat fund- ið nýja peru og lagað lampann var bóndi á svæðinu sem leita þurfti að og eftir tveggja tíma bið var loksins komin ný pera í lampann og fyrirlestrar gátu haldið áfram,“ segir Jón. „Tæknin getur alltaf brugðist og það er því mjög mikilvægt að hafa hæft starfsfólk og yfirfara alla hluti áður en að ráðstefnu kemur. Það er aldrei gott ef gest- ir þurfa að bíða meðan verið er að laga og stilla.“ Jón bætir við að eins sé mikil- vægt að vanda valið á fyrirlesur- um og hafa þá sterka í upphafi og í lokin. Upphaf og endir verði að vera sterkir pólar. - vaj Sterkir pólar við upphaf og endi Jón Hákon Magnússon, stofnandi og framkvæmdastjóri KOM almannatengsla, segir að Íslendingum hætti til að bíða fram á síð- ustu stundu og ætli svo að redda hlutunum. Það sé mjög slæmt þar sem fyrirtæki geti eyðilagt orðsport sitt ef ráðstefna sem það heldur utan um misheppnast. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.