Fréttablaðið - 15.02.2008, Síða 72
15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld
leikritið Sólarferð eftir Guðmund
Steinsson í leikstjórn Benedikts
Erlingssonar. Verkið var fyrst sýnt
í Þjóðleikhúsinu árið 1976 við frá-
bærar undirtektir. Sú uppsetning
er mörgum enn í fersku minni og
því bíða eflaust margir spenntir
eftir að sjá verkið í nýjum búningi.
Guðmundur Steinsson var óum-
deilanlega eitt fremsta leikskáld
þjóðarinnar. Í Sólarferð dregur
hann upp stórskemmtilega mynd af
fyrirbæri sem við höfum mörg
reynt á eigin skinni, nefnilega
sólarlandaferðum Íslendinga á
áttunda áratugnum. Við fylgjumst
með hópi íslenskra ferðamanna
sem eru samankomnir á spænskri
sólarströnd. Eðlilega þrá þessir
veðurbörðu Frónbúar að drekka í
sig sólina og ódýra áfengið á þess-
ari heitu og framandi strönd þar
sem íslensk boð og bönn fjúka út í
veður og vind. Verkið er að uppi-
stöðu gamanleikrit, en undir
ærslunum kraumar sársauki og
brostnar vonir.
Sem fyrr segir er leikstjóri sýn-
ingarinnar enginn annar en leikar-
inn góðkunni Benedikt Erlingsson.
Höfundur leikmyndar er myndlist-
armaðurinn Ragnar Kjartansson,
en þeir Benedikt og Ragnar hafa
áður átt farsælt samstarf um ein-
leikinn Mr. Skallagrímsson.
Ekki má gleyma að minnast á
leikarana sem stíga á svið í Sólar-
ferð, en það eru þau Edda Arnljóts-
dóttir, Esther Talía Casey, Halldóra
Björnsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson,
Juan Camilo Román Estrada, Kjart-
an Guðjónsson, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Þröstur Leó Gunnarsson
sem fara með hlutverkin í sýning-
unni. - vþ
Stuð á suðrænni ströndinni
SUÐRÆN STEMNING Frá æfingu á verkinu Sólarferð.
Kammerkór Norðurlands
leggur land undir fót nú um
helgina og heldur í stutta
tónleikaferð um landið. Kór-
inn kemur fram í Borgar-
neskirkju á morgun kl. 16, í
Langholtskirkju á sunnudag
kl. 14 og í Hvammstanga-
kirkju á sunnudagskvöld kl.
20.
Efnisskrá tónleikanna er þjóðleg í
meira lagi; kórinn flytur íslensk
sönglög og þjóðlagaútsetningar.
Pétur Garðarsson, formaður kórs-
ins, segir dagskrána þá sömu og
kórinn flutti í fyrra víðs vegar um
Norðurland og fékk góða dóma
fyrir. „Það má líta á þessa tónleika
okkar nú um helgina sem hálf-
gerða útrás af hálfu kórsins enda
höfum við ekki flutt þetta efni áður
fyrir sunnan. Við flytjum tónlist
eftir sum af okkar bestu tónskáld-
um, til að mynda Tryggva M. Bald-
vinsson, Báru Grímsdóttur, Hróð-
mar Inga Sigurbjörnsson og Snorra
Sigfús Birgisson, en hann mætti
kalla „hirðtónskáld kórsins“ þar
sem hann hefur samið fyrir okkur
verk. Einnig flytjum við íslensk
þjóðlög í útsetningum tónskálda á
borð við Hafliða Hallgrímsson og
Jórunni Viðar sem á þarna útsetn-
ingu á Barnagælum sem stundum
hefur verið kölluð perlan í íslensk-
um þjóðlagaútsetningum.“
Í Kammerkórnum eru tæplega
tuttugu söngvarar sem búsettir
eru víðs vegar um Norðurland.
Pétur segir æfingaferlið geta
verið ansi strembið sökum þessar-
ar dreifðu búsetu. „Við æfum
mikið ein heima hjá okkur með
nóturnar. Svo komum við saman
og tökum þrjár eða fjórar æfingar
fyrir tónleika. En þetta gengur
alltaf vel hjá okkur þrátt fyrir
stuttan æfingatíma enda er valinn
maður í hverju rúmi. Kórmeðlim-
irnir eru flestir tónlistarkennarar
eða tónlistarmenntað fólk og
stjórnandi okkar, Guðmundur Óli
Gunnarsson, er einnig stjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
og ákaflega vandvirkur maður.
Það er því hvergi slegið af kröfun-
um þrátt fyrir búsetudreifing-
una.“
Kórinn fagnar tíu ára starfs-
afmæli sínu um þessar mundir.
Pétur segir útgáfu fyrirhugaða í
tilefni afmælisins. „Við stefnum
að því að halda upp á afmælið með
því að fara í hljóðver og taka upp
þetta efni sem við flytjum nú um
helgina. Eflaust munum við þurfa
að leggja mikla vinnu í framtakið
og mikið verður vandað til verks.
En tónlistin sem við flytjum á það
sannarlega skilið; fallegri íslenskri
tónlist er aldrei gert of hátt undir
höfði.“ Aðgangseyrir að tónleik-
unum er 1.500 kr. og verður miða-
sala við innganginn. Vert er að
benda á að því miður verður ekki
hægt að taka við greiðslukortum.
vigdis@frettabladid.is
Kammerkór leggur
land undir fót
KAMMERKÓR NORÐURLANDS Kemur fram á þrennum tónleikum um helgina.
GAMANÓPERAN
SÍGAUNABARÓNINN
EFTIR JOHANN STRAUSS - Íslensk þýðing: Egill Bjarnason og Þorsteinn Gylfason
Í GAMLA MJÓLKURSAMLAGINU BORGARNESI
Miðapantanir 437 1598 • tskb@simnet.is • Uppl.: www.borgarbyggd.is
La. 16. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Su. 17. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Þr. 19. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Fi. 21. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Fö. 22. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Su. 24. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
Örfá sæti laus um helgina
Ívanov eftir Anton Tsjekhov
Leikstjórn og aðlögun: Baltasar Kormákur
Uppselt í febrúar!!
aukasýningar í mars komnar í sölu!
Aðdáendur Hugleiks munu fagna því að fá enn eitt
tækifæri til að sjá ímyndunarafl hans lifna við á sviði."
Martin Regal, Mbl. 12/2
Baðstofan
eftir Hugleik Dagsson
sýn. 15/2 og 16/2 örfá sæti laus
„Eitursnjallt leikrit".
Gerður Kristný,
Mannamál/Stöð 2, 10/2.
„Sýningin er besta
skemmtun".
Þröstur Helgason, Mbl., 9/2
Gott kvöld e. Áslaugu Jónsdóttur
Sprellfjörug barnasýning
með brúðum og söngvum
Allra síðustu sýn. sun. 17/2
FÖSTUDAG 15. FEB KL. 20:30
BERGÞÓRA ÁRNADÓTTIR 60 ÁRA
Minningartónleikar um söngvaskáldið
ÖRFÁ SÆTI LAUS
SUNNUDAG 17. FEBRÚAR KL. 20
ÞJÓÐARGJÖF TIL ÍSLENDINGA
Einn fremsti kammerkór heims.
NOKKUR SÆTI LAUS
ÞRIÐJUDAG 19. FEBRÚAR KL. 20
DENIS BOURIAKOV OG
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON
Tvær rísandi stjörnur.
ÖRFÁ SÆTI LAUS