Fréttablaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 62
34 28. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Félag dúklagninga- og veggfóðra-
meistara fagnaði nýlega áttatíu ára
afmæli sínu. Af því tilefni var hald-
ið stórafmæli á Hótel Selfossi fyrir
félagsmenn og velunnara félagsins.
Þar mættu um tvö hundruð manns og
fengu sjö þeirra gullmerki félagsins
fyrir vel unnin störf. Félagið hefur á
þessum áttatíu árum gætt hagsmuna
félagsmanna og haldið iðngreinum
sínum á lofti.
Einar Beinteinsson er formaður Fé-
lags dúklagninga- og veggfóðrara-
meistara. „Ég sem formaður stjórna
öllum fundum og öðrum verkefnum
sem falla til félagsins. Við erum sex
manna hópur sem skipum stjórnina en
alla tíð hafa störf stjórnarinnar verið
sjálfboðavinna. Félagið er með aðset-
ur í Skipholti 70 í Reykjavík og rekur
þar skrifstofu sem sinnir erindum fé-
lagsmanna og annarra sem leita til fé-
lagsins,“ segir Einar.
Félag dúklagninga- og veggfóðra-
meistara var stofnað fjórða mars
árið 1928 í Baðstofu iðnaðarmanna í
Reykjavík. Það var fyrsta félagið á Ís-
landi sem byrjaði með uppmælingu en
það var í lok mars árið 1928. Þá var
gefin út verðskrá fyrir skilgreind og
uppmæld verk á vegum félagsmanna.
Einar bendir á að félagsmenn þurfi að
ganga í margs konar störf. „Við erum
ekki bara að dúka og veggfóðra. Starf-
semi okkar felur í sér að leggja teppi,
strengja striga í gömul hús, flota gólf
og svo klæðum við líka sundlaugar og
þök. Félagsmenn eru þrjátíu og þrír,
allt meistarar, en svo eru sveinarn-
ir með sér félag. Alls erum við svein-
ar og meistarar um sjötíu manns.“ út-
skýrir Einar.
Það hefur verið í umræðunni að
flótti sé frá námi í iðngreinum á Ís-
landi. „Það má alveg koma fram að við
hvetjum fólk til að fara að læra iðn-
greinar og konur eru alltaf velkomnar.
Vandamálið er, ef vandmál má kalla,
að það vantar nýliða í stéttina en ég
held að ungt fólk sé hrætt við iðngrein-
ar vegna þess að þær eru oftar settar
upp sem erfiðisvinna, en öll störf geta
verið erfið þegar mikið er að gera.“
Og Einar bætir við að lokum: „Við
hvetjum fólk til þess að kynna sér alla
þætti iðngreina áður en það myndar
sér skoðanir.“ mikael@frettabladid.is
FÉLAG DÚKLAGNINGA- OG VEGGFÓÐRAMEISTARA: 80 ÁRA AFMÆLI
Ganga í margs konar störf
FORMAÐUR Er ábyrgðarmaður fyrir því sem fellur til dúklagninga- og veggfóðrameistarafélagsins. FRETTABLADID/GVA
LEIKARINN JOHN TURTURRO
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1957
„Ég bý til lista yfir það sem
ég á sameiginlegt og ekki
sameiginlegt með persónun-
um sem ég leik.“
John Turturro er bandarísk-
ur leikari sem hefur leikið í yfir
fimmtíu myndum og í myndum
á borð við The Big Lebowski,
O Brother, Where Art Thou? og
Transformers.
MERKISATBURÐIR
1710 Fjórtán þúsund manna
her Dana tapar gegn
sænskri hersveit í orrust-
unni um Helsingborg.
1920 Þilskipið Valtýr ferst ásamt
30 manns fyrir sunnan
land.
1922 Bretar samþykkja sjálf-
stæði Egyptalands.
1935 Efnið nylon er fundið upp.
1940 Körfuboltaleikur er fyrst
tekinn upp fyrir sjónvarp.
1983 Lokaþáttur MASH sýndur í
Bandaríkjunum. 110 millj-
ón manns horfa á.
1991 Fyrra Persaflóastríðinu
lýkur.
2001 Jarðskjálfti upp á 6,8 á
Richter mælist í Washing-
ton-ríki í Bandaríkjunum.
Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar, var vinsæll stjórn-
málamaður. Olof var þekkt-
ur fyrir að vilja lifa venjulegu
lífi og vildi hann t.d. oftast fara
út án þess að vera í fylgd með
lífvörðum. Það má segja að
sú ákvörðun hans hafi orðið
honum að falli.
Olof Palme og Lisbet, eig-
inkona hans, voru á heim-
leið úr kvikmyndahúsi í mið-
borg Stokkhólms þegar þau
urðu fyrir skotárás. Olof var
skotinn í bakið af stuttu færi
og eiginkona hans varð einn-
ig fyrir skoti. Það var leigubíl-
stjóri sem tilkynnti lögreglu
um skotárásina. Tvær stúlk-
ur sem voru vitni að skotárás-
inni reyndu allt sem þær gátu
til þess að hjálpa forsætisráð-
herranum á meðan beðið var
eftir að sjúkrabíllinn kæmi á
staðinn.
Olof og kona hans voru flutt
í skyndi á nærliggjandi sjúkra-
hús en þar lést Olof Palme
skömmu eftir komuna. Árás-
armaðurinn náðist ekki en
tveimur árum seinna var eitur-
lyfjafíkillinn og smákrimminn
Christer Petterson handtekinn
fyrir grun um aðild að morð-
inu. Christer játaði ekki aðild
sína að morðinu fyrr en löngu
síðar í bréfi til kærustu sinnar.
ÞETTA GERÐIST: 28. FEBRÚAR 1986
Olof Palme skotinn til bana
OLOF PALME Varð fyrir skotárás ásamt
eiginkonu sinni.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sigurður Ingimundarson
Snartarstöðum, Núpasveit,
sem lést mánudaginn 25. febrúar á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga, Húsavík, verður jarðsettur frá
Snartarstaðakirkju laugardaginn 1. mars kl. 14.00.
Sigríður Guðný Kristjánsdóttir
Guðný María Sigurðardóttir Jón Halldór Guðmundsson
Kristjana Ólöf Sigurðardóttir Gunnar Bragi Ólason
Inga Friðný Sigurðardóttir Sólmundur Oddsson
Halldóra Sigurðardóttir Einar Guðjónsson
og barnabörn.
Elskuleg kona mín, móðir okkar, amma og
langamma,
Rannveig Eiríksdóttir
Skerjavöllum 8, Kirkjubæjarklaustri,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands að kvöldi
25. febrúar.
Einar Bárðarson
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jónas Reynir Jónsson
frá Melum, Sólheimum 23, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 29.
febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Elín Þórdís Þórhallsdóttir
Elsa Jónasdóttir Gunnar Guðjónsson
Ína H. Jónasdóttir Eggert Sv. Jónsson
Þóra Jónasdóttir
Birna Jónasdóttir Gunnar F. Vignisson
barnabörn og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður og
ömmu,
Hrafnhildar Gísladóttur
Álftamýri 4, Reykjavík.
Sturla Sighvatsson
Björg Sighvatsdóttir Ólöf Ósk Þorsteinsdóttir
Skúli Sighvatsson Vassanta Idmont
Markús Idmont Skúlason
Sighvatur Snæbjörnsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Bjarni Sturluson
skipasmíðameistari, frá Hreggsstöðum,
lést að Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 25. febrúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
6. mars kl. 11.00.
Kristín Andrésdóttir
Valgerður Björk Einarsdóttir
Guðný Alda Einarsdóttir
Þórdís Heiða Einarsdóttir
Sturla Einarsson Freyja Valgeirsdóttir
Andrés Einar Einarsson Halldóra Berglind
Brynjarsdóttir
Guðrún Björg Einarsdóttir Helgi G. Bjarnason
María Henley, Kristján Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir okkar, móðir, amma og lang-
amma,
Ásta Marín Ástmannsdóttir,
til heimilis að Grýtubakka 18, Reykjavík,
lést hinn 25. febrúar á hjartadeild Landspítalans. Ásta
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
29. febrúar næstkomandi kl. 11.00.
Valdís Ólafsdóttir
Ásta Kristín Bjartmarz
Sóley Lind Bergþórsdóttir
Júlía Sif Hjaltadóttir
og fjölskylda.