Fréttablaðið - 28.02.2008, Qupperneq 72
44 28. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
UNDERDOG
Hundurinn Shoeshine verður óvænt
fyrir tilraun hjá dr. Barsinister sem
veldur því að hann öðlast ofur-
krafta. Jack Unger
tekur hann upp
á sína arma og
Shoe shine trúir
honum fyrir hvað
hafi gerst. Fram-
haldið er síðan
óútreiknanlegt
eins og mátti gera
ráð fyrir.
Leikstjóri: Frederik Du Chau
Aðalhlutverk: Jason Lee og James
Belushi
Dómur IMDB: 3,8/10
DIVING BELL AND THE BUTTERFLY
Jean-Dominique Bauby, ritstjóri Elle,
fékk heilablóðfall aðeins 43 ára og
lamaðist. Bauby gaf síðar út ævisögu
sína þar sem hann sagði frá þeim
sálrænu átökum sem áttu sér stað
innra með honum og þeim stöðum
sem hann heimsótti en aðeins í
huganum. Myndin þykir gríðarlega
áhrifamikil og var meðal annars
tilnefnd til fjögurra Óskarsverðlauna
og fékk tvenn verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Leikstjóri: Julian Schnabel
Aðalhlutverk: Mathieu Amalric og
Emmanuelle Seigner
Dómur IMDB: 8,3/10
DARK FLOORS
Finnska Eurovision-stjarnan Lordi
er hugmyndasmiðurinn á bak við
hryllingsmyndina Dark Floors en
þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðar-
son eru meðframleiðendur hennar.
Lordi kemur hingað til lands í dag
og verður viðstaddur frumsýninguna
en Dark Floors segir frá björgunar-
aðgerð föður sem reynir að forða
dóttur sinni frá spítalavist á fremur
skuggalegu sjúkrahúsi.
Leikstjóri: Peter Riski
Aðalhlutverk: Lordi og Noah Huntley
Dómur IMDB: 4,8/10
BE KIND REWIND
Jerry verður fyrir því
óláni að heilinn í
honum segul-
magnast með
þeim afleiðing-
um að hann
eyðileggur allar
myndbandsspólur á myndbanda-
leigu vinar síns. Til að mæta þörfum
viðskiptavina leigunnar ákveða þeir
félagar að endurgera allar vinsæl-
ustu myndirnar, þeirra á meðal
Ghost Busters og Robocop.
Leikstjóri: Michel Gondry
Aðalhlutverk: Mos Def og Jack Black
Dómur IMDB: 7,6/10
Litla, sæta gamanmyndin
um Juno MacGuff hefur
unnið hug og hjörtu áhorf-
enda og gagnrýnenda um
allan heim. Ekki eru þó allir
á eitt sáttir um boðskap
myndarinnar og telja sumir
hana bregða upp glansmynd
af einu erfiðasta vandamáli
bandarískra unglings-
stúlkna.
Kvikmyndin Juno verður tekin til
sýninga í kvikmyndahúsum
Reykjavíkur um helgina. Myndin
segir frá Juno, ungri stúlku með
munninn fyrir neðan nefið, sem
„lendir“ í því að verða ólétt. Hún
ákveður hins vegar að gefa barn-
ið frá sér, fær mikinn stuðning
heiman frá og líf hennar heldur
áfram sinn vanagang eftir allt
saman.
Siðferðislegur vandi Bandaríkjanna
Kynlíf og hvers kyns kynhegðun
er oftar en ekki þyrnir í augum
Bandaríkjamanna. Róttækir og
íhaldssamir kristnir söfnuðir
hafa sterk ítök í bandarísku þjóð-
lífi og langflestir þeirra leggja
mikið upp úr siðsamlegu líferni
innan veggja hjónaherbergisins
sem utan. Margir hafa hvatt til
„skírlífis fyrir hjónaband“ til að
stemma stigu við ótímabærum
þungunum. Fóstureyðingar eru
stöðugt þrætuepli í bandarískri
umræðu og forseti Bandaríkj-
anna, George W. Bush, er andvíg-
ur þeim og hefur talað opinskátt
um þá andstöðu sína í fjölmiðlum
og á þingi.
Bandarískir siðapostular hafa
hins vegar vaknað upp við vond-
an draum í ljósi vinsælda Juno.
Þeir hafa margir hverjir gagn-
rýnt kvikmyndina fyrir að draga
upp frekar léttúðuga mynd af
barnshafandi unglingsstúlkum.
Aðrir telja hins vegar að þarna
kristallist einhver mesti vandi
bandarísku fjölskyldunnar og það
þurfi ekki að leita langt út fyrir
sögusvið hvíta tjaldsins til að
finna hliðstæður í bandarísku
þjóðlífi. Árlega er talið að yfir
750 þúsund stúlkur á aldrinum
16-20 verði barnshafandi og árið
2006 gerðist það í fyrsta skipti í
fimmtán ár að þessi tala hækkaði.
Þess má geta að fóstureyðingar í
Bandaríkjunum ekki verið færri í
þrjátíu ár.
Skrítnar fyrirmyndir
Juno gæti líka bara verið spegil-
mynd af fyrirmyndum banda-
rískra unglinga og þar kemur
Spears-fjölskyldan sterkt inn í.
Enginn skyldi vanmeta áhrif hinn-
ar föllnu poppdrottningar Britney
Spears og fjölskyldu hennar og sá
bandarískur fjölskyldufræðingur
sig knúinn til að skrifa lærða
grein um að Spears-fjölskyldan
væri holdgervingur hinnar dæmi-
gerðu bandarísku fjölskyldu. Allt
virðist slétt og fellt á yfirborðinu
en svo kemur upp úr kafinu að
foreldrarnir hafa ekki haft hug-
mynd um hvað táningurinn á
heimilinu er að gera.
Ólétta Jamie Lynne Spears varð
mikið hitamál á sínum tíma. Þótt
nafn þessarar sautján ára gömlu
stelpu sé yfirleitt tengt við stóru
systur er hún gríðarlega vinsæl
meðal grunnskólakrakka í Banda-
ríkjunum fyrir leik sinn í sjón-
varpsþáttunum Zoey 101. Þeir
eru því ófáir sem vilja kenna
bæði Juno og Jamie um sífellt
fleiri ótímabærar þunganir. Og
telja að kvikmyndir á borð við
Knocked Up geri lítið úr þeim
veruleika sem fylgir því að eign-
ast barn. Þar sé þeirri skoðun
haldið á lofti að barneignir séu
bara smá hraðahindrun á vegin-
um sem auðvelt sé að komast yfir.
Eða eins og Juno segir sjálf í lok
kvikmyndarinnar. „Við látum
síðan bara eins og að þetta hafi
aldrei gerst.“
Af Juno og Jamie Lynne
BROSTNAR FYRIRMYNDIR Jamie Lynne
Spears og Spears-fjölskyldan hefur verið
skotspónn bandarískra siðapostula.
UMDEILD Þótt Juno sé lítil og sæt gamanmynd þá hefur hún verið harðlega gagn-
rýnd fyrir að láta það líta út sem smámál að eiga von á barni.
Sigurjón Sighvatsson er á vefsíðu imdb.
com sagður vera að leggja drög að því að
endurgera dönsku dogmamyndina
Festen eða The Celebration. Mun
Sigurjón hafa fengið leikstjórann David
Mamet til að skrifa og leikstýra mynd-
inni.
Vefsíðan hefur uppfært upplýsingar
sínar um íslenska kvikmyndaframleiðand-
ann og þar er greint frá því að Sigurjón sé
með tuttugu kvikmyndir á teikniborðinu.
Þeirra á meðal er Dark Highway, sem
Kiefer Sutherland hefur verið orðaður við,
og The Knockout Artist, sem byggð
verður á bók Harry Crewes og væntan-
lega leikstýrt af Sean Penn. Þá er
einnig talið líklegt að hafist verði
handa við endurgerð norsku gaman-
myndarinnar Elling en bandaríski
leikstjórinn Jay Roach mun væntan-
lega stjórna ferðinni þar.
Sigurjón sagður vera
að endurgera Festen
Í NÓGU AÐ SNÚAST Sigurjón Sighvatsson
hefur samkvæmt kvikmyndavef imdb.com
tuttugu kvikmyndir á teikniborðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Paul Dano er að verða einhver
eftirsóttasti ungi kvikmyndaleik-
arinn í Hollywood um þessar
mundir. Frammistaða hans í Little
Miss Sunshine og nú síðast There
Will Be Blood hefur vakið mikla
athygli á þessum unga leikara.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir nokkru leikur Dano á móti
Brian Cox í Good Heart, kvik-
mynd Dags Kára, sem blaðamaður
Empire taldi að liti út fyrir að vera
Cocktail með slæmum tönnum.
Dagur og félagar hans hjá
ZikZak virðist hafa næmt auga
fyrir upprennandi stjörnum frá
Bandaríkjunum því eins og mörg-
um er enn í fersku minni var Ryan
Goosling fyrst ráðinn í hlutverk
Danos. Sá var hins vegar tilnefnd-
ur til Óskars verðlauna skömmu
síðar fyrir frammistöðu sína í Half
Nelson og kom íslensku kvikmynd-
inni ekki að í þéttskipaðri dagskrá
sinni í kjölfarið. Dagur og félagar
ættu ekki að vera á flæðiskeri
staddir með Dano enda hefur lítið
spurst til Gooslings síðan þá og
kvikmyndir hans hafa litla athygli
hlotið.
Dano getur hins vegar valið úr
kvikmyndum um þessar mundir.
Hann leikur meðal annars í nýj-
ustu kvikmynd Spikes Jonze á móti
Forest Whitaker og James Gand-
olfini. Þá hefur Dano einnig verið
ráðinn í kvikmynd um félagsfræði-
tilraun Stanford-háskólans þar
sem nemendur skiptu með sér hlut-
verkum fanga og fangavarða.
Dano skýst upp á stjörnuhimininn
UPPRENNANDI Paul
Dano leikur aðal-
hlutverkið í nýjustu
kvikmynd Spikes
Jonze og í kvikmynd
um félagsfræðitilraun
Stanford-háskólans.
Stuttmyndin Midday Cowboy eftir spænska leik-
stjórann Alberto Blanco fékk fyrstu verðlaun á
alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni The Northern Wave
Film Festival sem var haldin í Grundarfirði um
síðustu helgi. Nam verðlaunaupphæðin hundrað
þúsund krónum.
Í öðru sæti var myndin Anonymous eftir Cristian
Pozo og hlaut hann sjötíu þúsund krónur í sinn
hlut. Fyrstu verðlaun í tónlistarmyndbanda-
flokki, eða sextíu þúsund krónur, hlutu
pólsku leikstjórarnir Przemyslaw
Adamski og Mciej Szupica fyrir mynd-
band sitt við lagið Dziwny jest ten kraj
eftir Pink Freud.
Þrjár hljómsveitir sem áttu tónlistar-
myndbönd á hátíðinni tróðu upp á
föstudeginum, þær BB&Blake,
hljómsveitin Sometime og spænska
sveitin Appledog sem kom sérstak-
lega til landsins til að spila á hátíð-
inni. Menningarsjóður Vesturlands
hefur ákveðið að veita hátíðinni aftur styrk á næsta
ár og má því búast við að þessi menningarviðburður
verði héðan í frá fastur liður í menningarlífi
Vesturlands.
Midday Cowboy sigurvegari
MIDDAY COWBOY Mynd spænska leikstjórans Alberto Blanco
hlaut fyrstu verðlaun á hátíðinni.
> TORTÍMANDI FÆR FRUM-
SÝNINGARDAG
Framhaldsmyndaæðið og sú hefð
Hollywood að dusta rykið af
gömlum hetjum eru síður en
svo komin upp á hillu, því nú
hefur verið tilkynnt að fjórða
myndin í Tortímanda-flokkn-
um verði frumsýnd 22. maí
2009. Viðræður eru í gangi
við Christian Bale sem leikur
Leðurblökumanninn en mynd-
in á gerast þegar vélarnar hafa
tekið völdin.
NÆMT NEF Dagur Kári
og félagar hans hjá
ZikZak hafa næmt
auga fyrir upprennandi
stjörnum en Dano
leikur á móti Brian Cox
í Good Heart.