Fréttablaðið - 28.02.2008, Page 88

Fréttablaðið - 28.02.2008, Page 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 Þrennt er verulega athyglisvert við nýgenginn dóm yfir Gauki Úlfarssyni vegna þeirra ummæla hans að Ómar R. Valdimarsson sé ekki bara rasisti, heldur erkirasisti. Í FYRSTA lagi er það ósamræmið á milli þess annars vegar að beita fullum þunga á þann sem kallar mann rasista fyrir að leggja nýbúa í einelti og flimta með illan aðbún- að erlendra verkamanna og hins vegar þess að horfa algjörlega framhjá því þegar sami maður er sagður á mála hjá alþjóðlegu glæpagengi. Í ÖÐRU lagi er verulega einkenni- legt að Ómar skuli sækja af svo miklum þunga gegn Gauki þegar hann er sjálfur höfundur keimlíkra ummæla og gæti því fengið bjúg- verpilinn beint í hnakkann aftur. En Ómar fullyrti fyrir nokkru að skiljanlega gæti einhverjum virst að í borgarráði Reykjavíkur sætu rasistar sem meinuðu múslimum um byggingu mosku vegna húðlit- ar og annarra fordóma. Í ÞRIÐJA lagi (og það sem mér finnst athyglisverðast) er að miðað við dóminn þá fengu báðir aðilar að taka með sér leynigesti í dómssal- inn – og það gesti sem áður hafa komið við sögu skyldra mála. AF einhverjum ástæðum þótti ástæða til að setja deiluefnið í það samhengi að annar væri til hægri í stjórnmálum en hinn til vinstri – það virtist raunar hafa verið eina vörn Gauks (og vonlaus sem slík). Þá hlýtur að vakna minningin um það þegar Þórbergur fékk á bauk- inn fyrir að kalla Hitler heilalausan öskurapa. Þá sat Þórbergur hnípinn á sakamannabekk með félaga Stal- ín á öxlinni en Ríkissaksóknari bar blak af Foringjanum. Foringinn vann, enda var þetta á þeim tíma þegar hann þótti meira móðins en stálmaðurinn. Nú, svona löngu seinna, sat Gaukur á bekknum undir væng verndarengilsins Stein- gríms J. en ránfuglinn stóð sperrtur á öxl Ómars og einblíndi soltineygð- ur á gaukinn. ÞAÐ kom auðvitað í ljós að hvorki gaukar né englar eiga roð í rán- fugla. Og í einu vetfangi safnaðist Gaukur í hóp manna (þar á meðal föður síns) sem lúskrað hefur verið á með gullbryddaðri gaddakylfu velsæmisins. Og téður Ómar R. Valdimarsson, sem bar sig svo ósköp snautlega, stillti sér upp við hlið hinna fórnarlambanna: Guðs og Hitlers. VIÐ megum þakka fyrir að ein- hverjir halda enn uppi vörnum fyrir lítilmagnann. Aðal rasisti bloggheima BAKÞANKAR Ólafs Sindra Ólafssonar 8.44 13.41 18.48 8.34 13.25 18.18 Í dag er miðvikudagurinn 27. febrúar, 58. dagur ársins. Drangajökull Húnaflói Blöndulón Grímsey Hofsjökull Garðskagaviti Gríptu augnablikið og lifðu núna Stærsta GSM þjónustusvæðið Óvænt samband á landsbyggðinni Vélsleðamaður varð heldur en ekki kátur þegar hann tók óvænt á móti SMS skilboðum þar sem hann var staddur uppi á Langjökli, en þar hafa GSM símar komið að litlu gagni fram til þessa. Er þetta rakið til þess að maðurinn hafði meðferðis síma frá Vodafone. – Sönn saga frá 1414. Með tilkomu langdræga GSM kerfisins býður Vodafone nú stærsta GSM þjónustusvæðið á Íslandi. Skiptu yfir til Vodafone, án þess að skipta um símanúmer, með einu símtali í 1414 – strax í dag. F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.