Fréttablaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 6
6 8. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
03
08
04
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Glerfínar gluggafilmur
- aukin vellíðan á vinnustað
3M gluggafilmur fyrir skóla, sjúkrahús, skrifstofur,
verslanir og aðra vinnustaðiFagmenn frá RV sjá um uppsetningu
Hefur þú tekið lán í erlendri
mynt?
Já 37,5%
Nei 62,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Vilt þú að íslenskir ráðherrar
leigi þotur til ferðalaga?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
STJÓRNMÁL Mörður Árnason, rit-
stjóri heimasíðu Samfylkingar-
innar, segir leynd yfir kostnaði
við flug ráðamanna í einkaþotum
óviðeigandi. Í leiðara á síðunni
segir hann að um sé að ræða ferð
á vegum almennings og á kostnað
almennings.
Þess vegna eigi
almenningur
heimtingu á að
vita um kostn-
aðinn við ferð-
ina, sem og
aðrar sem farn-
ar séu í hans
nafni.
Mörður segir
í samtali við
Fréttablaðið að
hann sé ekki að
taka afstöðu
með eða á móti
flugi ráða-
manna með
einkaþotum; til
þess hafi hann
einfaldlega ekki
nægar upplýs-
ingar. „Menn
mega ekki vera hræddir við að
leita að hagkvæmri og þægilegri
fararleið, en það er alveg klárt að
ríkið á að gefa upp allan kostnað
af ferðalögum. Fulltrúar þess
geta ekki gert heiðursmannasam-
komulag um leynd yfir ráðstöfun
á fé almennings.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
varaformaður þingflokks Sam-
fylkingarinnar, segir kostnaðar-
leyndina orka tvímælis. Þessar
upplýsingar eigi að vera uppi á
borðum, annað veki bara tor-
tryggni. „Ég skil vel skrif Marðar
og viðbrögð fólks. Það er miklu
betra að gefa þessar upplýsingar
upp og svo geta menn rætt málið
á þeim grundvelli.“
Steinunn segir Samfylkinguna
ekki munu taka málið sérstaklega
upp við samstarfsflokkinn. „Fjöl-
miðlar hljóta að krefjast þessara
upplýsinga eftir upplýsingalög-
um. Það þarf ekki okkur til þess.“
- kp
Samfylkingarfólk vill aflétta leynd um kostnað:
Vilja upplýsingar um
kostnað við flug
ALÞINGI „Skilaboðin eru þau að það
eigi að fara vel með opinbera fjár-
muni og vel með tíma ráðamanna
þjóðarinnar,“ svaraði Geir H.
Haarde forsætisráðherra spurn-
ingu Ögmundar Jónassonar, þing-
flokksformanns VG, á Alþingi í
gær um hvaða skilaboð ráðherrar
væru að senda út í þjóðfélagið
með því að ferðast með leiguflug-
vélum.
Forsætis- og utanríkisráðherrar
ferðuðust með leiguflugvél á leið-
togafund Nató í síðustu viku og í
gær héldu forsætis- og viðskipta-
ráðherrar á fund norrænna ráð-
herra í Norður-Svíþjóð í leiguvél.
Ögmundur gagnrýndi flugvéla-
leiguna harðlega og kallaði hana
flottræfilshátt. „Þau hafa réttlætt
flottræfilsháttinn með því að þau
hafi verið að spara tíma. Það vill
hins vegar til að þetta myndi eiga
við um okkur öll, landsmenn alla,“
sagði Ögmundur.
Geir sagðist hafa setið í ríkis-
stjórn í áratug en sárasjaldan hafa
séð sig knúinn til að leigja flugvél-
ar til að komast leiðar sinnar.
Sagði hann málflutning Ögmund-
ar og flokkssystkina dæmalausa
lágkúru.
Ögmundur sagði fordæmi ríkis-
stjórnarinnar ekki gott enda
leiguflug tákn um bruðl.
- bþs
Ögmundur Jónasson kallar leiguflug ráðherra misskiptingu og flottræfilshátt:
Farið vel með peninga og tíma
ÖGMUNDUR JÓNASSON þingflokksform-
aður VG FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MÖRÐUR
ÁRNASON
STEINUNN VALDÍS
ÓSKARSDÓTTIR
MENNTUN Dæmi um ritstuld eru
afar fátíð í Háskóla Íslands, hvort
heldur er varðar nemendur eða
kennara. Í þeim sárafáu tilfellum
sem slíkt hefur komið upp hefur
viðeigandi verið gefið tækifæri
til að bæta ráð sitt án þess að
gripið hafi verið til brottrekstrar.
Þórður Kristinsson, kennslu-
stjóri við HÍ, segir að fara verði
eftir landslögum í þessum efnum:
„Lögin segja til um að við ítrekuð
brot geti jafnvel komið til
brottreksturs, en mér vitandi
hefur aldrei verið gripið til þess
ráðs vegna slíkra brota. Fólki er
treyst til að fara eftir settum
reglum, og almennt hagar fólk
sér mjög vel.“ - kg
Ritstuldur er fátíður í HÍ:
Fólk hagar sér
almennt vel
UMHVERFISMÁL Al Gore, handhafi
friðarverðlauna Nóbels og fyrr-
verandi varaforseti Bandaríkj-
anna, telur Ísland og Ólaf Ragnar
Grímsson forseta hafa gegnt
mikilvægu forystuhlutverki í
loftslagsmálum á heimsvísu.
Hann telur að allar þjóðir heims
þurfi að leggja meira af mörkum
til að minnka losun gróðurhúsa-
lofttegunda en sérstaklega þurfi
Bandaríkin að gera átak í ljósi
þess að losun er hvergi meiri í
heiminum en þar. Hann telur að
stefna bandarískra stjórnvalda
verði umhverfisvænni þegar nýr
forseti tekur til valda í janúar,
óháð því hver það verður.
Al Gore sat kvöldverðarboð
með Ólafi Ragnari Grímssyni í
gærkvöldi ásamt fulltrúum úr
íslensku vísinda- og fræðasam-
félagi og öðrum gestum. Við kom-
una á Bessastaði í gær ræddi
hann stuttlega við fjölmiðla og
sagði Ísland í fararbroddi í lofts-
lagsmálum vegna nýtingar þjóðar-
innar á endurnýtanlegum orku-
gjöfum. Hann sagði Ísland gegna
mikilvægu hlutverki í að leysa
þennan mikla vanda með nýtingu
jarðvarma og með þróunarverk-
efnum á sviði umhverfis- og
orkumála. „Staða Íslands er sér-
stök. Framlag Íslands er ekki síst
falið í nýrri tækni til orkunýting-
ar og forystumenn þjóðarinnar
hafa lagt mikið af mörkum við að
vekja athygli á vandanum og af
hverju nauðsynlegt er að bregð-
ast við honum.“ Hann sagði að
allar þjóðir heims, óháð stærð
þeirra, þyrftu að gera meira en
nú er til að minnka losun gróður-
húsalofttegunda. Tók hann sér-
staklega til þess að þar þyrftu
Bandaríkjamenn að leggja meira
af mörkum sem stærsta iðnveldi
heims.
Gore sagði að vísindasamfélag-
ið hefði sýnt fram á hversu alvar-
legt vandamál væri við að glíma.
„Neikvæðar afleiðingar hlýnun-
ar til lengri tíma séð eru marg-
falt meiri en jákvæðar breyting-
ar til skamms tíma og það er
nauðsynlegt að greina af
nákvæmni hverjar afleiðingarn-
ar geta orðið fyrir heiminn allan
ef þjóðir heims taka ekki skref í
þá átt að leysa vandann sem lofts-
lagsbreytingar koma til með að
hafa.“
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, sagði við þetta til-
efni að koma Gores væri heiður
fyrir sig og þjóðina í heild. Ísland
væri í hringiðu umræðunnar um
hlýnun loftslags vegna fyrirsjáan-
legrar bráðnunar jökla landsins,
stækkunar örfoka svæða og hugs-
anlegra breytinga á straumakerfi
sjávar.
svavar@frettabladid.is
Telur Ísland gegna lykil-
hlutverki í loftslagsmálum
Ísland gegnir lykilhlutverki í loftslagsmálum, að mati Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna.
Hann telur nýjan forseta landsins munu breyta stefnu bandarískra stjórnvalda í umhverfismálum.
FRÁ BESSASTÖÐUM Al Gore sat kvöldverðarboð forsetans þar sem hann ræddi við
fulltrúa úr íslensku vísinda- og fræðasamfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Annir á höfuðborgarsvæðinu
Miklar annir voru hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins aðfaranótt
mánudags. Það var kallað út í þrígang
vegna sinubruna, fjórir eldsvoðar
urðu og tvö útköll vegna vatnsleka.
Hraðakstur við Hvolsvöll
Lögreglan á Hvolsvelli hefur haft
afskipti af þó nokkrum ökumönnum
vegna hraðaksturs í umdæmi hennar.
Um síðustu helgi var einn ökumaður
tekinn fyrir að aka á 140 kílómetra
hraða á klukkustund og annar á um
130 þar sem hámarkshraði er 90
kílómetrar á klukkustund.
LÖGREGLUFRÉTTIR
EFNAHAGSMÁL Umframkostnaður
vegna leigu og reksturs á þyrlum
Landhelgisgæslunnar gæti vegna
gengisfalls krónunnar numið
meira en 200 milljónum króna.
Rekstrarfé Landhelgisgæslunn-
ar er um 2.300 milljónir. Þórhallur
Hákonarson, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs Gæslunnar, segir að
um fjórðungur af útgjöldum
Gæslunnar sé í erlendum gjald-
miðlum. „Við áætlanagerðina er
notast við ákveðið viðmiðunar-
gengi sem gefið er út af fjármála-
ráðuneytinu,“ segir Þórhallur.
Hann segir einstökum stofnunum
óheimilt að gera framvirka
samninga. Þá hafi hærra elds-
neytis verð ekki síður áhrif en
hækkandi olíuverð tengist líka
gengislækkun krónunnar. Um
fimmtán milljónir vanti til að
mæta hærra eldsneytisverði. „Það
er verið að vinna að lausn þessara
mála í góðu samstarfi við dóms-
málaráðuneytið.“ - ovd
Áhrif gengisfalls krónunnar:
Kostnaður við
þyrlu eykst
TF-LÍF Gengisfall krónunnar hefur áhrif
á rekstur á þyrlum Landhelgisgæslunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NÝJA-SJÁLAND, AP Kínverjar og
Nýsjálendingar hafa náð fríversl-
unarsamningi, en þetta er fyrsti
fríverslunarsamningur vestræns
ríkis við Kína.
Samkvæmt samningnum falla
hinn 1. október niður allir tollar
undir fimm prósent á viðskipti
milli landanna. Með tímanum falla
fleiri tollaflokkar niður og 2019
verður nær allur útflutningur
Nýja-Sjálands til Kína tollfrjáls.
Viðskipti landanna nema nú 6,1
milljarði Bandaríkjadala, eða sem
nemur ríflega 440 milljörðum
króna. Viðræður standa nú yfir
um fríverslunarsamning milli
Íslands og Kína. - kp
Fríverslunarsamningar nást:
Kína og Nýja-
Sjáland semja
Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Leiguflug-
vélin sem fór með ráðherra og fleiri til
Búkarest.
KJÖRKASSINN