Fréttablaðið - 08.04.2008, Qupperneq 10
8. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Hörkutól
– með rykgrímu, hjálm og vinnuvettlinga
VGA myndavél Ryk- og rakavarinn (IP54) Bluetooth
Vasaljós Stereó FM-útvarp Innbyggður hátalari
Samsung M110 farsíminn er nýjasta verkfærið í verkfærakassann. Honum er
pakkað inn í sterkbyggða umgjörð sem er bæði ryk- og rakavarin (IP54) og hann
er fullur af notadrjúgum aukabúnaði. Samsung M110 – er sannkallað hörkutól.
Heildsöludreifing og þjónusta:
Skútuvogi 12c auk viðukenndra söluaðila um land allt
M110 fæst hjá eftirtöldum aðilum:
STJÓRNMÁL Núverandi fyrirkomu-
lag alþjóðlegrar kynningar Íslands
er óskýrt og óskilvirkt. Nefnd for-
sætisráðherra um ímynd landsins
leggur til að komið verði á fót sér-
stökum vettvangi sem setji skýran
ramma utan um ímyndar- og kynn-
ingarmál. Þar kæmu aðilar í
útflutningi, ferðaþjónustu, fjár-
málastarfsemi, menningarlífi og
þekk ingar iðnaði til samstarfs við
hið opinbera. Slíkt myndi auðvelda
mótun og styrkingu ímyndar.
Í skýrslu nefndarinnar, sem
kynnt var í gær, segir að fjöl margar
rannsóknir hafi sýnt fram á mikil-
vægi ímyndar fyrir efnahag,
afkomu og samkeppnishæfni þjóða.
Ímynd geti verið byggð á stað-
reyndum, getgátum eða jafnvel
ranghugmyndum. Ímynd Íslands
megi skilgreina sem samsafn við-
horfa, tilfinninga og upplifana sem
Íslendingar sjálfir og aðrir hafi um
land og þjóð.
Að sögn Svöfu Grönfeldt, rektors
Háskólans í Reykjavík og formanns
nefndarinnar, leiddi vinna hennar
meðal annars í ljós að íslensk fyrir-
tæki kjósi að tengjast ekki Íslandi.
Þau hafi tekið meðvitaða ákvörðun
um að gera það ekki vegna veikrar
og viðkvæmrar ímyndar landsins.
Úr þessu þurfi að bæta.
Finnur Oddsson, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs, sat í nefnd-
inni. Hann veltir upp einni skýr-
ingu á ástæðum þess að íslensk
fyrirtæki tengi sig ekki Íslandi.
„Ef fyrirtæki hafa spyrt sig með
ákveðnum hætti við okkar ágæta
land þá eru þau komin undir duttl-
ungum fjölmiðlaumfjöllunar um
landið hverju sinni. Það er ekki
alltaf heppilegt og hefur alls ekki
verið heppilegt upp á síðkastið
þegar umfjöllunin hefur verið nei-
kvæð.“
Eins og nú háttar til hvíla kynn-
ingar- og ímyndarmál á herðum
margra. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra segir
mikilvægt að samræma betur
kraftana enda hafi þeim verið
dreift um of. Allt slíkt starf verði
þó að vera raunsætt. „Við verðum
að miðla sterkri mynd af Íslandi,
sem hefur innistæðu. Það er ekki
hægt að búa til nýja ímynd, það
verður að vera grundvöllur fyrir
henni í landinu.“
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra segir að ákveðið hafi verið
að fela vinnuhópi á vegum forsæt-
is-, utanríkis-, menntamála- og
iðnaðarráðuneyta að fjalla áfram
um málið.
bjorn@frettabladid.is
Fyrirtæki kjósa
að tengjast
ekki Íslandi
Ímynd Íslands er of veik og viðkvæm til að fyrirtæki
sem starfa á alþjóðlegum mörkuðum telji hættandi
á að tengja sig landinu. Nefnd um ímynd Íslands
leggur til úrbætur að kynningar- og ímyndarstarfi.
STYRKJA ÞARF ÍMYNDINA Svafa Grönfeldt, Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir kynntu nefnd og skýrslu um ímynd Íslands í gær. Í máli Geirs kom fram að
nefndarmennirnir sex hefðu ekki þegið greiðslur fyrir störf sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Nefndin leggur til að ímyndarupp-
bygging Íslands miði að því að
skapa jákvæða og sterka ímynd
af fólki, atvinnulífi, menningu og
náttúru.
■ Nefndin leggur til að kjarninn í
ímynd Íslands sé kraftur, frelsi og
friður.
■ Nefndin leggur til að vettvangur
ímyndarmála annist eftirfarandi
verkefni:
■ Fylgist með ímynd Íslands og
þróun hennar.
■ Miðli upplýsingum til uppbygg-
ingar á sterkri og jákvæðri ímynd
Íslands.
■ Samræmi aðgerðir sem snerti
ímyndarmál.
■ Bregðist við neikvæðri umfjöllun
sem snerti íslenska hagsmuni.
■ Veiti opinberum aðilum og
atvinnulífi þjónustu við framkvæmd
ímyndar- og kynningarverkefna
tengdra Íslandi.
KRAFTUR, FRELSI, FRIÐUR
FILIPPSEYJAR, AP Afleiðingar lofts-
lagsbreytinga kunna að steypa
milljónum Asíubúa í fátækt,
valda sjúkdómafaröldrum og
hungursneyð. Við þessu varaði
Shigeru Omi, yfirmaður Asíu-
deildar Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar, WHO, í ræðu í
tilefni af alþjóða heilbrigðisdeg-
inum í Maníla á Filippseyjum í
gær.
Omi sagði malaríu, niðurgang,
vannæringu og flóð valda um
150.000 dauðsföllum árlega, þar
af um helmingi í Asíu. Aukin
útbreiðsla moskítóflugna, sem
bera malaríusmit, er að hans
sögn greinilegt merki um að
hlýnun loftslags sé farin að hafa
beinar afleiðingar á heilsufar
manna. - aa
Afleiðingar hlýnunar:
Malaríusmit skæðari
SHIGERU OMI Segir hlýnun loftslags
bitna á fátækasta fólkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP