Fréttablaðið - 08.04.2008, Side 38
22 8. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ULTIMA MEL
Kryddstúlkan Mel B reynir nú
fyrir sér á nýjum vettvangi, en
hún er nýtt andlit undirfata-
merkisins Ultimo. Forsvars-
menn fyrirtækisins hrifust af
stúlkunni á tónleikaferða-
lagi Spice Girls og segja
í viðtali við The Sun að
þeir hafi ólmir viljað fá
hana til liðs við sig.
Vorsýning nemenda á öðru ári í fatahönnun við Lista-
háskóla Íslands fór fram á Apótekinu á föstudagskvöldið.
Þar sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar síðustu vik-
urnar, við góðar undirtektir áhorfenda. Hönnun þessara
upprennandi fatahönnuða landsins var jafn ólík og þeir
eru margir, eins og myndirnar sýna.
FATAHÖNNUÐIR
FRAMTÍÐARINNAR
Hönnun Borghildar Gunnarsdóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hönnun Kol-
brúnar Amöndu
Hasan.
Hönnun Zuzanna Kubickova. Til vinstri
sést hönnun Hlínar Reykdal.
Hjartaknúsaranum Matthew
McConaughey hefur verið boðið
hlutverk í nýrri kvikmynd um
einkaspæjarann Magnum P.I.,
sem gerði garðinn frægan í sjón-
varpinu á níunda áratugnum.
Tom Selleck fór með aðalhlut-
verkið í þáttunum, sem voru
sýndir við miklar vinsældir á
árunum 1980 til 1988, þar á meðal
hérlendis. McConaughey hefur
fengið handritið að myndinni í
hendurnar og er að íhuga hvort
hann bregði sér í einkaspæjara-
buxurnar og safni jafnvel yfirvara-
skeggi eins og Selleck skartaði í
þáttunum.
Í maí síðastliðnum sagðist
Selleck vera til í að koma fram í
myndinni ef handritið væri ásætt-
anlegt. „Það er bara einn hængur
á málinu: þeir verða að biðja mig
um að vera með,“ sagði hann.
McConaughey er um þessar
mundir að leika í rómantísku
myndinni The Ghosts of Girl-
friends Past á móti Jennifer Gar-
ner, sem kemur í bíó vestanhafs í
febrúar. Næst sést hann á hvíta
tjaldinu í gamanmynd Ben Stiller,
Tropic Thunder, í hlutverki sem
Owen Wilson átti upphaflega að
leika áður en hann reyndi að
fremja sjálfsvíg.
Gangi allt eftir áætlun leikur
McConaughey í Magnum P.I. í lok
ársins og verður myndin þá frum-
sýnd á næsta ári.
Matthew verður Magnum P.I.
MATTHEW MCCONAUGHEY Leikarinn og
hjartaknúsarinn íhugar að leika í nýrri
kvikmynd um einkaspæjarann Magnum
P.I.
Hönnun Ernu Bergmann. Hönnun Herdísar Jónu Birgisdóttur.
Hönnun Hlínar
Reykdal.
Smáríkið San Marínó og Aserbaídsjan
taka bæði þátt í Eurovision í fyrsta
skipti í ár. San Marínó sendir fimm
manna hljómsveitina Miodio með lagið
Complice, en hún er raunar skipuð
þremur Ítölum og tveimur San Marínó-
búum. Nafn hljómsveitarinnar útleggst
á íslensku Ég hata mig, en liðsmenn
segja það passlega ögrandi. „Við trúum
að allir hafi í lífi sínu verið hataðir fyrir
að hafa gert eða ekki gert eitthvað. Það
mikilvæga er að bregðast við og það
gerum við í gegnum tónlist okkar,“
segja þessir gleðigjafar í viðtali við
síðuna esctoday.com.
Aserbaídsjan sendir hins vegar dúett-
inn Day After Day, sem kumpánarnir
Elnur Huseynov og Samir Javadzadeh
munu flytja okkur. Hluti lagsins sækir
innblástur sinn í hina innlendu tónlist-
arhefð Mugam, þar sem „söngvarar
þurfa að breyta tilfinningum sínum í
söng og tónlist“ að því er fram kemur á
Wikipedia. Dúettinn mun takast á í hlut-
verkum engils og djöfuls, eða eins og
Huseynov útskýrir: „Ég verð hreinn
eftir englasönginn. Djöfullinn er líka
engill, sem hefur verið úthýst úr
paradís. Mugam hreinsar öskur hjart-
ans.“ Það er því eflaust við góðu að
búast af þessum nýgræðingunum í
Eurovision-heiminum.
Englasöngur og sjálfshatur
45 DAGAR TIL STEFNU
ÉG HATA MIG Fulltrúar nýgræðinganna frá San
Marínó í Eurovision í ár ganga undir því fagra
nafni Miodio, eða Ég hata mig.
G
C
I G
R
O
U
P
AL
M
AN
N
AT
EN
G
SL
*Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.citroen.is
Fullkomnari fullkomnun
Sjáðu Citroën Berlingo í dag
Dæmi um staðalbúnað í Citroën:
· Meiri burðargeta: 800 kg
· Hliðarhurðir beggja vegna með
lokunarvörn
· 180 gráðu opnun á afturhurðum
· Topplúga fyrir lengri hluti
· Hiti í sætum
· Rafdrifnar rúður
· Geislaspilari með útvarpi og
fjarstýringu við stýri
· Fjarstýrð samlæsing
· Fellanlegt framsæti farþega
með borði og geymsluhólfi