Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 31
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2008 3
Þegar gera á sér dagamun er misjafnt hvað
hverjum líkar. Meðan kaffibolli gerir gæfumun-
inn fyrir suma dugar öðrum ekkert minna en
dýrindis kavíar.
Á veitingastöðum víða um heim geta nautnaseggir
fundið kavíar á svimandi háu verði. Veitingahúsið
Caviar House & Prunier við St James Street í London
er Íslendingum kunnugt en þar kosta 125 grömm af
kavíar rétt um fimmtíu þúsund krónur. Hér á landi er
hægt að nálgast lúxuskavíar ef viljinn er fyrir hendi
en Sælkerinn flytur meðal annars inn franskan
kavíar, Baerii, og er útsöluverð á 30 gramma dós um
það bil 5.000 krónur. Einnig er hægt að sérpanta
Ostietre-kavíar frá Íran og er verðið á kílóinu af
honum langt yfir 500.000 krónur.
„Það er alveg sérstök upplifun að borða kavíar og
hann þykir vera einhver fínasti matur í heimi,“ segir
Jóhannes Þór Ævarsson hjá Sælkeranum. Hann
leggur áherslu á gæðavöru en auk styrjuhrogna
flytur fyrirtækið inn Wagyu-nautakjöt og flest það
sem til þarf til matargerðar sælkera en vörurnar fást
í Fiskisögu og Gallerý kjöti.
Mörg íslensk veitingahús nota kavíar í rétti en fá
þeirra bjóða upp á hann að staðaldri. Þó sést kavíar
öðru hvoru á matseðlum í borginni svo íslenskir
nautnaseggir leyfa sér þennan munað. Á veitinga-
staðnum Humarhúsinu er boðið upp á styrjuhrogn á
8.090 krónur og að sögn starfsfólks slæðist alltaf inn
einn og einn sem skellir sér á réttinn.
Beluga-styrjuhrogn voru þau dýrustu en Beluga-
styrjan er nú í útrýmingarhættu og hefur Evrópu-
sambandið bannað verslun með þau. Baerii-kavíarinn
sem Sælkerinn flytur inn kemur úr eldis-
styrju.
„Þetta er frönsk tegund af
eldis-styrju en Frakkar neyta
fimmtán prósenta allrar
kavíarframleiðslu í heimi,“
útskýrir Jóhannes Þór.
Kringum 1990 var styrjueldi
komið á laggirnar og nú eru
framleidd um það bil sex tonn á
ári. „Eldishrognin hafa þennan
fallega dökkgráa lit sem sóst er eftir og einkennir
gæðakavíar,“ segir Jóhannes Þór. heida@frettabladid.is
Sælkerar borða kavíar
Veitingastaðurinn Silfur notar styrjuhrogn í rétti sína.
Hér sýnir Jói kokkur listir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jóhannes Þór Ævarsson, eigandi Sælkerans,
segir kavíar það fínasta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Ostur góður í
allan mat
RIFINN OSTUR GERIR OFT
GÆFUMUNINN.
Þetta skemmtilega rifjárn
er eftir hönnuðinn Richard
Sapper og framleitt af
fyrirtækinu Alessi. Sökum
stærðar kemur rifjárnið,
sem gengur undir heitinu
Todo, sér afar vel þegar
rífa á niður stóra osta.
Með nánast einni stroku
er stór parmesan-ostur
orðinn að myndarlegri
hrúgu af fínum striml-
um. Þar að auki er rif-
járnið flott á að líta og
sómir sér því vel í eld-
húsinu. Todo-rifjárnið
fæst í versluninni
Casa og kostar 7.200
krónur. - rve
Góður bolli af ilmandi Rúbín kaffi,
hvar sem er, hvenær sem er.
Suður-amerísk blanda með
örlitlum keim frá Afríku.
Uppistaðan er Brasilíukaffi en
auk þess er í blöndunni kaffi frá
Kólumbíu, Kosta Ríka og Kenýa.
Hágæðablanda frá Kólumbíu
og Kenýa ásamt dálítilli viðbót
frá Brasilíu og Kosta Ríka.
Kaffið er valið af mikilli alúð til
að ná fram því besta.
Milt eðalkaffi frá Kolumbíu,
Kosta Ríka og Brasilíu.
Hressandi fyllt bragð og ferskur
ilmur gerir það að frábærum
drykk sem gott er að njóta.
Rúbín kaffi er unnið úr völdum hágæða kaffibaunum frá hásléttum
þekktustu kaffisvæða heims, Kólumbíu, Brasilíu, Kosta Ríka,
Mið-Ameríku og Afríku.
Umhyggja og sérþekking við brennslu, mölun og pökkun skilar
ferskum ilmi kaffisins, einstakri bragðfyllingu og ljúfum eftirkeimi alla
leið í bollann þinn. Njóttu þess.
Ilmurinn, keimurinn, áhrifin...
Auglýsingasími
– Mest lesið