Tíminn - 08.12.1981, Blaðsíða 2
Þriftjudagur 8. desember 1981
Þessi hundur varft-
hundur'’ betta hlvtur aft
vera grin. hugsa vist
flestir. sem sjá þessa
mynd.
En innbrotsþjófar og
aftrir misindismenn æitu
þo aft vara sig a honum
Poncho. en hann er eins
árs ..Elsass-hundur ". og-
er þjalfaftur sem hörku
varðhundur Eigandi
hans lætur hann sjuga
gummituttur og ..snuð"
til þess að þjalfa kjalka-
voðva hundsins. svo hann
geti bitið reglulega fast
En glæpamenn eru
farnir að hafa sina að-
ferðir við að gera slika
varðhunda oskaðlega.
annað hvort með að gefa
þeim eitthvað deyfandi
eða jafnvel banvænt að
borða. eða á annan hatt
að koma þeim fyrir
kattarnef
Poneho er varðhundur i
Toronto i Kanada. en þar
hafa glæpir aukist geig
vænlega eftir þv i sem
skvrslur segja
v «R! /
^lÍL, IL if^- -
Vardhund-
ur með
„snuð”!
„Atvinnunöldrarar”:
Kvarta og
skammast á
fullu kaupi!
Öánægðir viðskiptavin-
ír. sem hafa ekki kjark til
að koma kvörtunum sin-
um a framfæri við rétta-
aðila. geta nu leigt sér að-
stoð fyrirtækis til þess að
sja um að klögumalið
komist til réttra aðstand-
enda. og þar sé borin
fram akveðin og lagalega
rétt kvörtun. Fyrirtækið
er i New Vork og er þar
kallaö ..Rent-A-Kvetch”
is Rent-A-Cari. sem
þvðir eitthvað i þá átt:
Leigðu þer nöldrara. en
kvetch er ur jiddisku
gyðingamállysku i og
þýðir nöldurseggur.
Forstöðu fyrir þessari
kvörtunarstofnun hefur
fru B Ochman. og tekur
hun um það bil 200 kr.
fyrir þjonustuna. Siðan er
gengið i það að koma
kvörtununum til skila
með góðu eða illu
..Það er alveg
ótrulegt". segir frú
Ochman. ..hvað folk á
erfitt með að ta sig til að
kvarta yfir lélegri þjon-
ustu eða svikinni vöru.
Það þorir ekki að standa
íyrir máli sinu."
Hún segist gefa fólki
það ráð. sem hefur yfir
einhverju að kvarta- og
ætlar að standa i þvi sjalft
— að fara til yfirmanns i
hverju tilviki. deildar-
stjóra eða jafnvel for-
stjóra. annars komist
málið aldrei til skila.
Einnig eigi menn að
revna að vera ekki með
neinn æsing. jafnvel þo
þeim sé mikið niðri fyrir
..Stuttar en ákveðnar
athugasemdir eru bestar.
hvort heldur að folk fer
sjalft á staðinn og kvartar
eða sendir bref i'prósti
Endilega að hafa brefin
stutt og greinileg.
annars lenda þau i bréfa-
körfunni". sagði forstjori
kvartanafy rirtækisins
■ Barbara Parkins
er aðallega þekkt
fyrir leik sinn í sjón-
varpsþáttunum
Peyton Place i
Bandaríkjunum.
Þar leikur hún dökk-
hærða brosmilda
stúlku/ sem hugsar
varla um annað en
sæta stráka.
„Eftir 400 þætti var ég
búin aft fá nóg af þessu,þá
lét ég „skrifa mig út úr
þáttunum”, sagði Bar-
bara. Hún hafði á þessum
tima komist upp á það, að
ferðast og sjá nýja staði
og nýtt fólk. Um þetta
leyti hafði hún tekið sér
fri frá sjónvarpsþáttun-
um og farið til Kenya i
Afriku. Þar var hún i hópi
ferðamanna, sem ætlaði
að taka myndir af dýrum,
og bjóst þvi við að farið
yrði út á gresjur eða til
skógar, en i staðinn var
farið i ferð um eyðimörk-
ina. bar kom hópur hirð-
ingja, sem lét heldur
ófriðlega. beir voru
striðsmálaðir og meö
spjót og skildi. Barbara
þreif til myndavélar sinn-
ar og smellti af mynd.
Þeir innfæddu héldu að
myndavélin væri eins
konar vopn og munduðu
spjót sin, en sem betur fór
þá var myndavélin henn-
ar svokölluð plaroid-vél,
sem kemur með fram-
kallaða mynd svo til um
leið og hún er tekin.
Barbara sýndi Afriku-
mönnunum myndina og
þeir héldu að þetta væru
galdrar og sýndu henni
lotningu, en þorðu ekki að
koma nálægt henni.
„Þetta var háskalegt
augnablik en spennandi”,
sagði Barbara seinna.
Þegar Barbara var laus
úr sjónvarpsþáttunum
skellti hún sér til Parisar
og vann þar um skeið með
Marcel Marceau (hinum
mikla látbragðsmeist-
■ „Það er flökkueðli i
mér”, segir Barbara, en
þarna er hún á Bali.
.i>
Barbara Parkins er fögur og vídförul
IWYNDAVÉL BARG
UR HENNAR
í KENYA I AFRÍKU
ara). Við sýningarþátt
Barböru hjá Marcel var
höfð rússnesk
kirkjumúsik, og það varð
til þess að hún fekk áhuga
á að ferðast um Rússland,
og einkum kynnti hún sér
orthodoxa-kirkjuna og
sálma og kirkjumúsik
hennar.
Nú var Barbara komin
upp á lagið meö að skoða
sig um í heiminum, og
hún hefur varla stoppað
siðan. Hún tók sér sex
mánaða fri til þess að
dveljast á Bali og njóta
þar fegurð náttúrunnar
og kynnast fólkinu. Þar
bjó hún i sams konar kofa
og innfæddir og baðaði sig
á morgana nakin i hyl i
ánni við þorpið, eins og
hitt fólkið gerði. Það má
nefna það lika, að
Barbara hefur stundað
loftbelgjaflug i Frakk-
landi og fjallgöngur i
Perú.
Hún tók að sér hlutverk
i kvikmyndinni „Bear
Island” eftir bók Aiistairs
McLean, en sú mynd var
tekin i óbyggðum Alaska.
Þar likaði Barböru vel, en
hún segir að snjór og
kuldi séu sér að skapi og
veturinn uppáhaldsárs-
timinn. Barbara er fædd i
Kanada og átti þar
skemmtilega bernsku-
daga. Hún segir, að snjór
og kuldi séu áberandi i
bernskuminningum sin-
um.
„Ég lifi ein og frjáls og
óháð”, segir leikkonan
„en það er ekki þar með
sagt að svo verði lengi.
Ég vildi gjarnan eignast
heimili, mann og börn, og
liklega er ég búin að
flækjastjióg fyrir alla æv-
ina, svo ég yrði þá liklega
róleg heima og gætti bús
og barna”.
Barbara við húsift sitt I Hollywood,