Fréttablaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 16
16 25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
■ Hláturgas eða glaðgas kallast
díniturmónoxíð á máli efnafræð-
innar og hefur efnatáknið N2O.
Árið 1844 notaði enskur tann-
læknir köfnunarefni í fyrsta sinn
sem deyfilyf við tanntöku og árið
1868 var það í fyrsta sinn notað til
svæfinga við uppskurð.
Ef efninu er blandað saman
við yfirmagn af súrefni er það
skaðlaust til innöndunar. Það er
til að mynda oft notað við
deyfingu mæðra í hríð-
um. Einnig má geta þess
að niturdíoxíð er notað
sem þrýstigas í
úðabrúsa.
NOTADRJÚG
EFNABLANDA
GLAÐGAS
Ævar Smári Jóhannsson
er líklegast yngsti togara-
skipstjóri landsins. Þessi
þrjátíu og eins árs gamli
kappi er ábyrgur fyrir 27
manna áhöfn á Höfrungi III
AK. Hann fer þó ekki með
neinum bægslagangi fyrir
liði sínu en nokkrir skip-
verjanna voru þegar farnir
að sækja sjóinn þegar Ævar
Smári kom í heiminn.
„Ég byrjaði árið 1993 á línubát frá
Sandgerði en ári síðar fór ég á 70
daga túr á frystitogara frá Seyðis-
firði og ég hef eiginlega ekki
stoppað síðan þá,“ segir Ævar
Smári.
Hann var stýrimaður á Höfr-
ungi en svo veiktist skipstjórinn
og skömmu síðar afleysingamað-
ur hans svo röðin kom að þeim
unga, fyrir um það bil tveimur
mánuðum síðan, að fara fyrir fley-
inu. En hvernig gengur honum að
hafa stjórn á skipi og mannskap?
„Þetta er náttúrlega ótrúlega sam-
stillt og góð áhöfn svo það er afar
gott að vinna með þeim. Ég fer
mér líka nokkuð rólega, alla vega
veður maður ekkert yfir þessa
karla sem margir hverjir hafa
verið til sjós í 30 til 40 ár. Reyndar
er einn um borð sem byrjaði á
síðutogara svo þessir menn taka
ekki hverju sem er.“
En þó kapteinninn sé ekki rosk-
inn man hann tímana tvenna í sjó-
mennskunni. „Þegar ég var polli
var það afar eftirsótt að komast á
sjóinn og það var eins og að detta í
lukkupottinn að fá pláss. Skip-
stjórarnir voru líka eins og kóngar
í bæjarfélaginu. Nú vilja ungir
menn helst fá sæti við skrifborð í
bönkunum.“
En kannski er þetta að breytast.
„Fyrir nokkrum árum gat verið
erfitt að manna bátana en í seinni
tíð er þetta aftur orðið afar eftir-
sótt. Ég skal ekki segja hvort það
sé vegna ástandsins í efnahags líf-
inu. Reynar er það þannig að sjó-
menn eru meðal þeirra fáu sem
njóta góðs af gengislækkuninni.
Allavega þykknaði launa-
umslagið.“ jse@frettabladid.is
Strákurinn í brúnni
„Í raun má segja að þetta sé eitt
af okkar elstu vörumerkjum,“
segir Brynja Georgsdóttir, vöru-
merkjastjóri Nóa Síríus, en fyrir-
tækið selur íslenskt súkkulagði í
um fimmtíu verslunum Whole -
foods á austurströnd Bandaríkj-
anna.
Fjórar tegundir eru í boði en
auk hefðbundins rjómasúkkul-
aðis sem inniheldur 33
prósent
kakómassa
fæst Síríus
Konsúm
sem hefur
45 prósenta
kakóinni-
hald, Síríus
56 prósent og
Síríus 70 pró-
sent. Er öllum teg-
undunum pakkað á
svipaðan hátt, það er
í smjörpappírsumbúðir sem
Íslendingar flestir þekkja.
Segir Brynja þær umbúðir
passa Wholefoods-verslununum
betur. „Þetta eru háklassa búðir
sem bjóða upp á lífrænar vörur
og þessar pakkningar eru meira í
þá áttina.“ Súkkulaðið sé vissu-
lega ekki lífrænt en flokkist við
hlið þess.Útflutning-
ur á súkkulaðinu
hófst árið 2005 og
hefur salan aukist
ár frá ári. Stefnt
er að áfram-
haldandi
útflutningi í
nánu sam-
starfi við
Wholefoods.
- ovd
Klassískar súkkulaðipakkningar henta vel:
Íslenskt súkkulaði í
Bandaríkjunum
Í SUMAR OPNAR REX KL 21.00 MEÐ
HAPPY HOUR (2 FYRIR EINN)
ALLAR HELGAR TIL 24.00.
Austurstraeti 9. 101 Reykjavik Iceland www.rex.is e-mail: rex@rex.is
SÍRÍUS KONSÚM SÚKKULAÐI
TVEIR UNGIR Í BRÚNNI Ævar Smári Jóhannsson er yngsti togaraskipstjóri landsins.
Hér er hann í brúnni í Höfrungi ásamt syni sínum, Andra Fannari Ævarssyni, en hann
er ekki enn orðinn ábyrgur fyrir fleyi og áhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það lá ágætlega á Marinó Thorlacius ljósmynd-
ara þegar Fréttablaðið náði í hann, þrátt fyrir að
hann fyndi fyrir óþægindum í hálsi og augum.
Málavextir voru þeir að fyrr um daginn hafði
hann verið uppi í Norðlingaholti að taka myndir
af því þegar sló í brýnu milli lögreglu
og mótmælenda og hann fékk
piparúða á sig.
„Ég reyndi að komast eins
nálægt og ég gat en hélt mig þó
til hliðar þegar löggan lét til skarar
skríða en engu síður fékk ég slatta á
mig. Ég gat lítið séð eftir það og
þurfti að taka myndir blind-
andi. Þegar ég skoðaði þær
eftir á sá ég að ég hef náð
nokkrum góðum myndum
sem ég á eftir að vinna úr
og koma á framfæri með
einum eða öðrum hætti þegar fram í sækir.“
Marinó hefur starfað sem sjálfstæður hönn-
uður undanfarin ár en einbeitir sér nú að því að
koma á fót eigin ljósmyndastúdíói í Garðabæ.
Marinó gaf út ljósmyndabókina Land fyrir að
verða hálfu öðru ári. Hún vakti nokkra athygli.
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson – RAX – lofaði
hana til dæmis í hástert og var honum meðal
annars boðið út fyrir landsteinana að halda
sýningar. Marinó undirbýr nú nýja sýningu sem
verður opnuð í Fótógrafí, ljósmyndaverslun
Ara Sigvaldasonar, í ágúst næstkomandi
en þar verða eingöngu nýjar myndir.
Sumarið fer því fyrst og fremst í
vinnu hjá Marinó, þó ekki eingöngu
ljósmyndun. „Ég kem frá Örlygshöfn
við Patreksfjörð og geri ráð fyrir að
fara í heyskap eins og alltaf. Það er
ekkert sumar án þess.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? MARINÓ THORLACIUS LJÓSMYNDARI
Piparúði og sýning í undirbúningi
Lögreglan skipar fyrir
„Farið af götunni! Þeir
sem ekki hlíta fyrirmælum
geta átt von á því að verða
handteknir. Þetta eru ólögleg
mótmæli!“
FORINGI LÖGREGLUMANNA Á VETT-
VANGI ÁTAKA Í NORÐLINGAHOLTI
Fréttablaðið 24. apríl
Á hlaupahjólum
„Okkur er svo umhugað að
vera snögg til gagnvart kúnn-
anum og þess vegna þarf að
nota allar leiðir til að vera
fljótari.“
HELGI JÓHANNESSON LÖGMAÐUR
UM RAFKNÚIN HLAUPAHJÓL SEM
TEKIN HAFA VERIÐ Í NOTKUN Á
LÖGMANNSSTOFUNNI LEX
Fréttablaðið 24. apríl
„Mér fannst báðir
aðilar fara yfir strik-
ið í þessum mót-
mælum og er hálf
gáttaður á þessu.
Ég hafði ákveðna
samúð með mál-
stað vörubílstjóra
þegar þeir hófu
fyrst að mótmæla
en síðustu vikur
hafa þeir gengið
of langt. Ég veit
til þess að þeir hafa stefnt fólki í
hættu með því að teppa sjúkra-
bíla, hægja á starfsemi lögregl-
unnar og fleira og slíkt finnst mér
ekki forsvaranlegt. Að sama skapi
var ég undrandi á vinnubrögðum
lögreglunnar. Það sem ég sá benti
ekki til þess að þarna væri verið
að beita mjög diplómatískum
aðferðum til að leysa málin.
SJÓNARHÓLL
ÁTÖKIN Í NORÐLINGAHOLTI
Báðir aðilar
fóru yfir strikið
ÞORSTEINN
GUÐMUNDS-
SON grínisti