Fréttablaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 74
42 25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Iceland Express-deild karla
Keflavík-Snæfell 98-74 (42-36)
Stig Keflavíkur: Tommy Johnson 24 (7 fráköst),
Gunnar Einarsson 20, Magnús Þór Gunnarsson
16 (6 stoðsendingar), Bobby Walker 11 (9
stoðsendingar), Jón Norðdal Hafsteinsson 9,
Sigurður Þorsteinsson 8, Anthony Susnjara 6,
Vilhjálmur Steinarsson 3, Arnar Jónsson 1.
Stig Snæfells: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 16,
Sigurður Þorvaldsson 16, Anders Katholm 16,
Hlynur Bæringsson 8 (9 fráköst), Slobodan
Subasic 8, Justin Shouse 7 (8 fráköst, 6 stoð-
sendingar), Guðni Valentínusarson 2, Gunnlaugur
Smárason 1.
Lengjubikar karla í fótbolta
Valur-ÍA 5-2
0-1 Bjarni Guðjónsson (19.), 1-1 Pálmi Rafn
Pálmason (51.), 2-1 Pálmi Rafn Pálmason (62.),
2-2 Andri Júlíusson (69.), 3-2 Dennis Bo Mor-
tensen (70.), 4-2 Dennis Bo Mortensen (83.),
5-2 Daníel Hjaltason (90.). Rautt spjald: Dario
Cingel, ÍA (71.).
Fram-Breiðablik (0-0) (2-2) 6-4
0-1 Prince Rajcomar (95.), 1-1 Grímur Björn
Grímsson (102.), 1-2 Prince Rajcomar (111.), 2-2
Heiðar Geir Júlíusson (114.). Fram vann leikinn
eftir vítaspyrnukeppni þar sem Framarar skoruðu
úr fjórum spyrnum á móti tveimur.
UEFA-bikarinn undanúrslit
Rangers-Fiorentina 0-0
Bayern München-Zenit 1-1
1-0 Franck Ribéry (19.), 1-1 sjálfsmark (60.).
Sænska úrvalsdeildin
Sundsvall-Trelleborg 2-2
Hannes Þ. Sigurðsson og Sverrir Garðarsson léku
allan leikinn fyrir Sundsvall og Ara Frey Skúlasyni
var skipt inná á 66. mínútu. Hannes skoraði
seinna mark Sundsvall á 19. mínútu.
GAIS-Gefle 2-0
Eyjólfur Héðinsson lék allan leikinn og skoraði
fyrra mark GAIS á 40. mínútu en Jóhanni B.
Guðmundssyni var skipt af velli á 71. mínútu.
Malmö-Norrköping 2-1
Garðar Gunnlaugsson sat á varamannabekk
Norrköping og kom ekkert við sögu í leiknum og
Gunnar Þór Gunnarsson var ekki hópi liðsins.
AIK-Djurgården 1-1
Sölvi Geir Ottesen var í byrjunarliði Djurgården
en var skipt af velli á 64. mínútu.
Danska úrvalsdeildin
FC Kaupmannahöfn-AGF 1-1
Kári Árnason lék allan leikinn fyrir AGF.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Fram komst í gær í úrslit
Lengjubikarsins eftir sigur á
Breiðablik í vítaspyrnukeppni.
Fyrri hálfleikur var frekar
tíðindalítill en Breiðablik var þó
sterkari aðilinn. Seinni hálfleikur
var öllu fjörugri og færðist hiti í
leikinn eftir því sem líða tók á
hálfleikinn. Guðmann Þórisson
hlaut rautt spjald þegar tíu
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma og Breiðablik því manni
færri.
Á fimmtu mínútu framlenging-
ar dæmdi Kristinn Jakobsson
vítaspyrnu þegar Prince Rajkom-
ar féll í teignum eftir viðskipti
sín við Reyni Leósson. Prince tók
spyrnuna sjálfur og skoraði af
öryggi framhjá Hannesi í marki
Fram. Sex mínútum síðar jafnaði
svo Grímur Björn Grímsson
metin eftir klafs í teig Blika og
spennan í hámarki. Þegar tíu
mínútur voru eftir af framleng-
ingu fékk Breiðablik aðra
vítaspyrnu þegar brotið var á
Magnúsi Páli Gunnarssyni og
skoraði Prince öðru sinni af
punktinum. Fram fékk svo þriðju
vítaspyrnu leiksins þremur
mínútum síðar. Casper varði
spyrnu Ingvars Ólasonar en
Heiðar Geir Júlíusson fylgdi á
eftir og jafnaði metin, 2-2.
Í vítaspyrnukeppninni misnotuðu
Casper Jakobsen og Magnús Páll
Gunnarsson sínar spyrnur fyrir
Breiðablik á meðan Framarar
skoruðu úr öllum sínum og unnu
samanlagt 6-4. - sjj
Lengjubikar karla í fótbolta:
Fram í úrslitin
BARÁTTA Hart var tekist á þegar Fram
og Breiðablik mættust í Egilshöll í gær-
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar eru
Íslandsmeistarar í körfubolta í
níunda sinn eftir öruggan 24 stiga
sigur, 98-74, á Snæfelli í þriðja
leik liðanna í Toyota-höllinni í
Keflavík í gærkvöldi.
Keflavík hefur unnið titilinn
fjórum sinnum á síðustu sex árum
en það er hætt við því að þessi
standi upp úr hjá flestum þeirra
leikmanna liðsins sem eru enn
einu sinni að spila fyrir besta lið
landsins.
Keflavík var komið hálfa leið í
sumarfrí í undanúrslitaeinvíginu
á móti ÍR þegar leikmenn liðsins
sögðu hingað og ekki lengra og úr
varð ein allra flottasta endurkoma
sögunnar. Keflavík vann sex síð-
ustu leiki sína í úrslitakeppninni
og vann fimm af þessum sex leikj-
um með stórum mun.
„Ef þú fílar Keflavík þá gefðu
mér klapp,“ sungu stuðnings-
mennirnir eftirminnilega í leiks-
lok og ekki að ástæðulausu enda
verður afrek liðsins áberandi í
sögubókum framtíðarinnar.
Gunnar Einarsson átti frábæra
úrslitakeppni og kórónaði hana
með enn einum stórleiknum í gær.
Gunnar var í leikslok bæði kosinn
besti leikmaður þriðja leiksins
sem og lokaúrslitanna en það var
hann sem gaf tóninn þegar á þurfti
að halda í vörninni og raðaði síðan
niður þriggja stiga körfunum í
sókninni.
Magnaður endir
„Þetta var magnaður endir, sem
gerði þetta mikið mikið sætara.
Þetta er ómetanleg viðurkenning
sem ég er að fá. Ég er búinn að
leggja hart að mér og hef æft
mörgum sinnum á dag þar sem ég
hef fengið góða aðstoð frá kon-
unni minni. Ég á henni helling að
þakka,“ sagði Gunnar en verð-
launin fær hann ekki síst fyrir
það sem hann leggur til liðsins en
kemur ekki fram í tölfræðinni.
„Ég er mjög þakklátur að fá
smá kredit fyrir það að berjast í
vörn. Ég er ekki skorari sem
margir eru þótt ég geti skorað og
sé búinn að sýna það í þessum
leikjum. Ég lít á mig fyrst og
fremst sem varnarmann og sem
jaxl í vörninni,“ sagði Gunnar,
sem var með 15 stig að meðaltali í
úrslitunum þar sem hann hitti úr
11 af 22 þriggja stiga skotum
sínum.
Magnús Þór Gunnarsson, fyrir-
liði Keflavíkur, ætlaði greinilega
að bæta fyrir slaka leiki að undan-
förnu og þrír þristar hans á aðeins
tæpum fjórum mínútum í kring-
um leikhlutaskipti 1. og 2. leik-
hluta breyttu stöðunni úr 20-21
fyrir Snæfell í 29-23 og eftir það
var Keflavíkurliðið komið með
frumkvæðið í leiknum. Keflavík
var 42-36 yfir í hálfleik og gerði
síðan út um leikinn í þriðja leik-
hlutanum. Magnús endaði með 16
stig og 6 stoðsendingar en hann
hafði verið samtals með 11 stig og
5 stoðsendingar í fyrstu tveimur
leikjunum.
Spiluðum eins og karlmenn
„Þetta var geggjað. Við ákváðum
eftir annan leikinn á móti ÍR að
þjappa okkur saman og fara að
spila eins og karlmenn en ekki
eins og kerlingar,“ sagði Magnús,
sem minntist spárinnar í haust
þegar Keflavík var spáð fimmta
sætinu.
„Það kom hrikaleg stemmning
inn í liðið og við fengum áhorf-
endurnar líka með okkur,“ sagði
Magnús og hann hrósaði líka
Gunnari Einarssyni áður en hann
rauk í bikarafhendinguna. „Gunni
er maðurinn í vörn og sókn og
hann sýndi að það getur enginn
vanmetið hann,“ sagði Magnús að
lokum.
Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkurliðsins, varð í
gær fyrsti þjálfarinn til þess að
vinna úrslitakeppnina fimm sinn-
um. „Ég hef gert þetta nokkrum
sinnum áður, en þessi er klárlega
með þeim skemmtilegri. Við gerð-
um nokkuð sem hafði aldrei verið
gert áður. Sá tími frá því við lent-
um 0-2 undir er búinn að vera
mjög áhugaverður og skemmti-
legur og ég hef aldrei séð eins ein-
beitt lið og Keflavíkurliðið í þess-
um sex leikjum,“ sagði Sigurður,
sem fagnaði sínum 58 sigri í
úrslitakeppninni í gær.
„Strákarnir tóku þá sameigin-
legu ákvörðun að taka sig á og
spila betur og samheldnin í hópn-
um síðan er búin að vera ótrúleg.
Ég hef ekki séð slíkt áður á þess-
um tíma,“ sagði Sigurður, sem var
ánægður með Gunnar Einarson
en þeir voru að vinna fimmta titil-
inn saman í gær.
Gunnar Einarsson mikilvægur
„Gunni Einars er þvílíkur keppnis-
maður. Hann er búinn að vera
allan tímann síðan ég byrjaði að
þjálfa og ef einhver veit hversu
góður hann er þá er það ég. Það
rosalega gott að hafa hann í sínu
liði, það er ekki bara að hann skori
tuttugu stig eins og í dag heldur
er það krafturinn í honum og
hvernig hann drífur meðspilarana
sína áfram,“ segir Sigurður og
bætir við:
„Styrkur liðsins liggur í þessum
mönnum sem eru að gefa mikið af
sér til liðsins. Þetta eru strákar
sem gætu spilað fjörutíu mínútur
í flestum liðum og verið með
miklu betri tölur en þeir eru
miklir keppnismenn og vilja vinna
og eru þess vegna í Keflavík,“
sagði Sigurður að lokum.
Skref í rétta átt
Snæfellingar gengu aftur á móti
niðurlútir af velli í Sláturhúsinu í
gærkvöld.
„Það er mjög sárt að þetta hafi
ekki verið betra hjá okkur en
þetta. Annar leikurinn fór með
þessa seríu. Við náðum að setja
fyrsta leikinn í hörkuleik og hann
hefði getað dottið með okkur en
klúðrið er þegar við töpuðum
heimaleiknum í Stykkishólmi,“
segir Hlynur, sem segir Snæfells-
liðið hafa samt stigið skref í að
nálgast Keflavíkurliðið í vetur.
„Við erum búnir að stíga skref í
þá átt að vera sigurvegarar en við
erum greinilega ekki komnir
þangað sem þeir eru,“ sagði
Hlynur að lokum. ooj@frettabladid.is
Kláruðu einvígið með miklum stæl
Keflavík kláraði úrslitaeinvígið með sannfærandi 24 stiga sigri á Snæfelli í þriðja leiknum í Keflavík í gær.
Keflvíkingar unnu sex síðustu leiki sína í úrslitakeppninni og félagið á því bæði Íslandsmeistara karla og
kvenna í ár. Gunnar Einarsson var kosinn besti leikmaður úrslitanna.
RÍFANDI STEMNING Trommusveitin lét ekki sitt eftir liggja í Sláturhúsinu í Keflavík í
gærkvöld og studdi sína menn dyggilega til sigurs. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MAÐUR LEIKSINS Gunnar Einarsson átti enn einn stórleikinn í úrslitakeppninni og
var valinn Iceland Express-maður leiksins í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÍSLANDSMEISTARAR 2008 Keflvíkingar fögnuðu vel og innilega í leikslok í gærkvöld
eftir frækinn 98-74 sigur gegn Snæfelli í lokaleik úrslitarimmu liðanna. Keflvíkingar
sópuðu Snæfellingum 3-0 í úrslitaeinvíginu og eru því vel að Íslandsmeistaratitlinum
komnir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL