Fréttablaðið - 25.04.2008, Side 74

Fréttablaðið - 25.04.2008, Side 74
42 25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR Iceland Express-deild karla Keflavík-Snæfell 98-74 (42-36) Stig Keflavíkur: Tommy Johnson 24 (7 fráköst), Gunnar Einarsson 20, Magnús Þór Gunnarsson 16 (6 stoðsendingar), Bobby Walker 11 (9 stoðsendingar), Jón Norðdal Hafsteinsson 9, Sigurður Þorsteinsson 8, Anthony Susnjara 6, Vilhjálmur Steinarsson 3, Arnar Jónsson 1. Stig Snæfells: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 16, Sigurður Þorvaldsson 16, Anders Katholm 16, Hlynur Bæringsson 8 (9 fráköst), Slobodan Subasic 8, Justin Shouse 7 (8 fráköst, 6 stoð- sendingar), Guðni Valentínusarson 2, Gunnlaugur Smárason 1. Lengjubikar karla í fótbolta Valur-ÍA 5-2 0-1 Bjarni Guðjónsson (19.), 1-1 Pálmi Rafn Pálmason (51.), 2-1 Pálmi Rafn Pálmason (62.), 2-2 Andri Júlíusson (69.), 3-2 Dennis Bo Mor- tensen (70.), 4-2 Dennis Bo Mortensen (83.), 5-2 Daníel Hjaltason (90.). Rautt spjald: Dario Cingel, ÍA (71.). Fram-Breiðablik (0-0) (2-2) 6-4 0-1 Prince Rajcomar (95.), 1-1 Grímur Björn Grímsson (102.), 1-2 Prince Rajcomar (111.), 2-2 Heiðar Geir Júlíusson (114.). Fram vann leikinn eftir vítaspyrnukeppni þar sem Framarar skoruðu úr fjórum spyrnum á móti tveimur. UEFA-bikarinn undanúrslit Rangers-Fiorentina 0-0 Bayern München-Zenit 1-1 1-0 Franck Ribéry (19.), 1-1 sjálfsmark (60.). Sænska úrvalsdeildin Sundsvall-Trelleborg 2-2 Hannes Þ. Sigurðsson og Sverrir Garðarsson léku allan leikinn fyrir Sundsvall og Ara Frey Skúlasyni var skipt inná á 66. mínútu. Hannes skoraði seinna mark Sundsvall á 19. mínútu. GAIS-Gefle 2-0 Eyjólfur Héðinsson lék allan leikinn og skoraði fyrra mark GAIS á 40. mínútu en Jóhanni B. Guðmundssyni var skipt af velli á 71. mínútu. Malmö-Norrköping 2-1 Garðar Gunnlaugsson sat á varamannabekk Norrköping og kom ekkert við sögu í leiknum og Gunnar Þór Gunnarsson var ekki hópi liðsins. AIK-Djurgården 1-1 Sölvi Geir Ottesen var í byrjunarliði Djurgården en var skipt af velli á 64. mínútu. Danska úrvalsdeildin FC Kaupmannahöfn-AGF 1-1 Kári Árnason lék allan leikinn fyrir AGF. ÚRSLIT FÓTBOLTI Fram komst í gær í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur á Breiðablik í vítaspyrnukeppni. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill en Breiðablik var þó sterkari aðilinn. Seinni hálfleikur var öllu fjörugri og færðist hiti í leikinn eftir því sem líða tók á hálfleikinn. Guðmann Þórisson hlaut rautt spjald þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og Breiðablik því manni færri. Á fimmtu mínútu framlenging- ar dæmdi Kristinn Jakobsson vítaspyrnu þegar Prince Rajkom- ar féll í teignum eftir viðskipti sín við Reyni Leósson. Prince tók spyrnuna sjálfur og skoraði af öryggi framhjá Hannesi í marki Fram. Sex mínútum síðar jafnaði svo Grímur Björn Grímsson metin eftir klafs í teig Blika og spennan í hámarki. Þegar tíu mínútur voru eftir af framleng- ingu fékk Breiðablik aðra vítaspyrnu þegar brotið var á Magnúsi Páli Gunnarssyni og skoraði Prince öðru sinni af punktinum. Fram fékk svo þriðju vítaspyrnu leiksins þremur mínútum síðar. Casper varði spyrnu Ingvars Ólasonar en Heiðar Geir Júlíusson fylgdi á eftir og jafnaði metin, 2-2. Í vítaspyrnukeppninni misnotuðu Casper Jakobsen og Magnús Páll Gunnarsson sínar spyrnur fyrir Breiðablik á meðan Framarar skoruðu úr öllum sínum og unnu samanlagt 6-4. - sjj Lengjubikar karla í fótbolta: Fram í úrslitin BARÁTTA Hart var tekist á þegar Fram og Breiðablik mættust í Egilshöll í gær- kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Keflvíkingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta í níunda sinn eftir öruggan 24 stiga sigur, 98-74, á Snæfelli í þriðja leik liðanna í Toyota-höllinni í Keflavík í gærkvöldi. Keflavík hefur unnið titilinn fjórum sinnum á síðustu sex árum en það er hætt við því að þessi standi upp úr hjá flestum þeirra leikmanna liðsins sem eru enn einu sinni að spila fyrir besta lið landsins. Keflavík var komið hálfa leið í sumarfrí í undanúrslitaeinvíginu á móti ÍR þegar leikmenn liðsins sögðu hingað og ekki lengra og úr varð ein allra flottasta endurkoma sögunnar. Keflavík vann sex síð- ustu leiki sína í úrslitakeppninni og vann fimm af þessum sex leikj- um með stórum mun. „Ef þú fílar Keflavík þá gefðu mér klapp,“ sungu stuðnings- mennirnir eftirminnilega í leiks- lok og ekki að ástæðulausu enda verður afrek liðsins áberandi í sögubókum framtíðarinnar. Gunnar Einarsson átti frábæra úrslitakeppni og kórónaði hana með enn einum stórleiknum í gær. Gunnar var í leikslok bæði kosinn besti leikmaður þriðja leiksins sem og lokaúrslitanna en það var hann sem gaf tóninn þegar á þurfti að halda í vörninni og raðaði síðan niður þriggja stiga körfunum í sókninni. Magnaður endir „Þetta var magnaður endir, sem gerði þetta mikið mikið sætara. Þetta er ómetanleg viðurkenning sem ég er að fá. Ég er búinn að leggja hart að mér og hef æft mörgum sinnum á dag þar sem ég hef fengið góða aðstoð frá kon- unni minni. Ég á henni helling að þakka,“ sagði Gunnar en verð- launin fær hann ekki síst fyrir það sem hann leggur til liðsins en kemur ekki fram í tölfræðinni. „Ég er mjög þakklátur að fá smá kredit fyrir það að berjast í vörn. Ég er ekki skorari sem margir eru þótt ég geti skorað og sé búinn að sýna það í þessum leikjum. Ég lít á mig fyrst og fremst sem varnarmann og sem jaxl í vörninni,“ sagði Gunnar, sem var með 15 stig að meðaltali í úrslitunum þar sem hann hitti úr 11 af 22 þriggja stiga skotum sínum. Magnús Þór Gunnarsson, fyrir- liði Keflavíkur, ætlaði greinilega að bæta fyrir slaka leiki að undan- förnu og þrír þristar hans á aðeins tæpum fjórum mínútum í kring- um leikhlutaskipti 1. og 2. leik- hluta breyttu stöðunni úr 20-21 fyrir Snæfell í 29-23 og eftir það var Keflavíkurliðið komið með frumkvæðið í leiknum. Keflavík var 42-36 yfir í hálfleik og gerði síðan út um leikinn í þriðja leik- hlutanum. Magnús endaði með 16 stig og 6 stoðsendingar en hann hafði verið samtals með 11 stig og 5 stoðsendingar í fyrstu tveimur leikjunum. Spiluðum eins og karlmenn „Þetta var geggjað. Við ákváðum eftir annan leikinn á móti ÍR að þjappa okkur saman og fara að spila eins og karlmenn en ekki eins og kerlingar,“ sagði Magnús, sem minntist spárinnar í haust þegar Keflavík var spáð fimmta sætinu. „Það kom hrikaleg stemmning inn í liðið og við fengum áhorf- endurnar líka með okkur,“ sagði Magnús og hann hrósaði líka Gunnari Einarssyni áður en hann rauk í bikarafhendinguna. „Gunni er maðurinn í vörn og sókn og hann sýndi að það getur enginn vanmetið hann,“ sagði Magnús að lokum. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkurliðsins, varð í gær fyrsti þjálfarinn til þess að vinna úrslitakeppnina fimm sinn- um. „Ég hef gert þetta nokkrum sinnum áður, en þessi er klárlega með þeim skemmtilegri. Við gerð- um nokkuð sem hafði aldrei verið gert áður. Sá tími frá því við lent- um 0-2 undir er búinn að vera mjög áhugaverður og skemmti- legur og ég hef aldrei séð eins ein- beitt lið og Keflavíkurliðið í þess- um sex leikjum,“ sagði Sigurður, sem fagnaði sínum 58 sigri í úrslitakeppninni í gær. „Strákarnir tóku þá sameigin- legu ákvörðun að taka sig á og spila betur og samheldnin í hópn- um síðan er búin að vera ótrúleg. Ég hef ekki séð slíkt áður á þess- um tíma,“ sagði Sigurður, sem var ánægður með Gunnar Einarson en þeir voru að vinna fimmta titil- inn saman í gær. Gunnar Einarsson mikilvægur „Gunni Einars er þvílíkur keppnis- maður. Hann er búinn að vera allan tímann síðan ég byrjaði að þjálfa og ef einhver veit hversu góður hann er þá er það ég. Það rosalega gott að hafa hann í sínu liði, það er ekki bara að hann skori tuttugu stig eins og í dag heldur er það krafturinn í honum og hvernig hann drífur meðspilarana sína áfram,“ segir Sigurður og bætir við: „Styrkur liðsins liggur í þessum mönnum sem eru að gefa mikið af sér til liðsins. Þetta eru strákar sem gætu spilað fjörutíu mínútur í flestum liðum og verið með miklu betri tölur en þeir eru miklir keppnismenn og vilja vinna og eru þess vegna í Keflavík,“ sagði Sigurður að lokum. Skref í rétta átt Snæfellingar gengu aftur á móti niðurlútir af velli í Sláturhúsinu í gærkvöld. „Það er mjög sárt að þetta hafi ekki verið betra hjá okkur en þetta. Annar leikurinn fór með þessa seríu. Við náðum að setja fyrsta leikinn í hörkuleik og hann hefði getað dottið með okkur en klúðrið er þegar við töpuðum heimaleiknum í Stykkishólmi,“ segir Hlynur, sem segir Snæfells- liðið hafa samt stigið skref í að nálgast Keflavíkurliðið í vetur. „Við erum búnir að stíga skref í þá átt að vera sigurvegarar en við erum greinilega ekki komnir þangað sem þeir eru,“ sagði Hlynur að lokum. ooj@frettabladid.is Kláruðu einvígið með miklum stæl Keflavík kláraði úrslitaeinvígið með sannfærandi 24 stiga sigri á Snæfelli í þriðja leiknum í Keflavík í gær. Keflvíkingar unnu sex síðustu leiki sína í úrslitakeppninni og félagið á því bæði Íslandsmeistara karla og kvenna í ár. Gunnar Einarsson var kosinn besti leikmaður úrslitanna. RÍFANDI STEMNING Trommusveitin lét ekki sitt eftir liggja í Sláturhúsinu í Keflavík í gærkvöld og studdi sína menn dyggilega til sigurs. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MAÐUR LEIKSINS Gunnar Einarsson átti enn einn stórleikinn í úrslitakeppninni og var valinn Iceland Express-maður leiksins í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÍSLANDSMEISTARAR 2008 Keflvíkingar fögnuðu vel og innilega í leikslok í gærkvöld eftir frækinn 98-74 sigur gegn Snæfelli í lokaleik úrslitarimmu liðanna. Keflvíkingar sópuðu Snæfellingum 3-0 í úrslitaeinvíginu og eru því vel að Íslandsmeistaratitlinum komnir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.