Fréttablaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 50
díana mist
bland
í gær og á morgun ...
Karl Sigurðsson söngvari
hljómsveitarinnar Baggalúts
„Vatn er mér mjög mikilvægt, ef
ekki bara lífnauðsynlegt. Svo
er það svo margbrotið. Hægt
að drekka það, baða sig í því
– jafnvel slökkva lítinn eld með
því.“
„Síminn er gott verkfæri til að eiga
samskipti við þá sem maður getur
ekki hitt. Eða vill ekki hitta.“
„Ég reyni að ganga sem mest, en
þegar ég þarf að ferðast langar vegalengdir getur
verið gott að fara á bílnum.“
„Baggalútsvefurinn er á internetinu,
svo ég fagna tilvist þess þó mér hafi
verið sagt að það sé bara bóla.“
„Baggalútur hefur aðgang að mjög
vönduðu hljóðveri og reyndum
hljóðmanni og það má glöggt heyra
á hljómgæðunum.“
„Tölvan er mér bráðnauðsynlegt
verkfæri, bæði til að tengjast inter-
netinu og fyrir upptökur í hljóðveri.“
„Hófí hefur verið Baggalúti
innblástur oftar en einu sinni.
Hvar værum við án hennar
Hófí okkar?“
„Baggalútur er mjög mikilvægur
mér. Þetta eru ofboðslega vandaðir
drengir og huggulegir.“
„Fólkið sem hlustar á tónlistina
okkar og fer inn á vefinn er afar
mikilvægt og það
veitir okkur
mikla ánægju
að gleðja
það.“
FÖSTUDAGUR 18. APRIL
Föstudagurinn var hálfskrautleg-
ur og fór vægast sagt ekki vel af
stað. Ég svaf yfir mig af því að ég sat
fram eftir í heimahúsi kvöldið áður
og drakk eðalrauðvín með göml-
um félaga. Á leiðinni í vinnuna sá ég
hryggðarmynd mína í baksýnisspegl-
inum og fékk áfall, ég leit út eins og
vampíra, með dökkrauða tauma í
munnvikinu. Vonaði bara að drykkju-
félagi minn hefði verið jafn skraut-
legur og ekki tekið eftir þessu
ófrýnilega ástandi mínu þegar
ég kvaddi hann undir morg-
un. Mætti í vinnuna og langaði
mest að drekkja mér í verkja-
töflum og setja á mig
hauspoka. Af hverju eru
ekki til myrkraherbegi á
vinnustöðum fyrir fólk í
þessu ástandi. Þegar
vinnudagurinn var
loks á enda, skreið
ég út í bíl og ók bein-
ustu leið heim. Eyddi
kvöldinu ein uppi í sófa
og horfði á Band-
ið hans Bubba
á meðan
sms-skila-
boðunum
rigndi yfir
mig.
LAUG-
ARDAG-
UR 19.
APRÍL
Vaknaði
endurnærð
og fann hinn
sanna helg-
aranda fær-
ast yfir mig
frá toppi til
táar. Það
var stórt
kvöld í
vænd-
um og
því hóf
ég fegrun-
araðgerð-
ir í fyrra fallinu
enda veitti víst
ekki af. Kíkti á opnun á sýningu Birg-
is Andréssonar í i8. Þar var öll menn-
ingarelítan samankomin eins og við
var að búast en þar voru þær Ágústa
Eva Erlendsdóttir leikkona og Birna
Þórðardóttir áberandi. Þaðan héld-
um við vinkonurnar á veitingastaðinn
Santa Maria til þess eins að drepa
tímann og fengum okkur nokkra
drykki, þar var Eva María Jónsdótt-
ir ásamt dóttur sinni. Eftir sjóðheita
upphitun innan um fjölskyldufólk-
ið á Santa María héldum við stöll-
ur í afmæliveislu á veitingastaðnum
Asíu. Þar spilaði tvíeykið Súkkat og
hjartaknúsararnir Los Heartbreakers
en þeir félagarnir lyftu veislunni á all
hressilegt plan. Ég var komin í því-
líkt stuð og ákvað að svara nú sms-
skilaboðum föstudagskvöldsins.Við
vinkonurnar yfirgáfum samkvæm-
ið og gengum niður á Apótek og
mættum á göngu okkar Hrafni Gunn-
laugssyni leikstjóra og forkunnar-
fagri kærustu hans. Ég gat ekki
annað en rifjað upp þegar ég fór
í áheyrnarpróf til hans á sínum
tíma fyrir Hvíta víkinginn og við
stelpurnar hlógum okkur mátt-
lausar. Á Apótekinu var ríf-
andi stemning, fyrrver-
andi sjensar þyrptust
að mér og ég kepptist
við að kynna þá hvern
fyrir öðrum án þess þó
að þeir áttuðu sig á því
að þeir væru allir þján-
ingabræður og kviðmágar.
Eldhuginn Hugi og Auddi
Blöndal úr Strákun-
um virtust vera í miklu
stuði og héldu uppi
stuðinu við barinn
en þar var sömu-
leiðis sigurvegar-
inn í Bandinu hans
Bubba, sjarmatröllið
með lævirkjaröddina,
Eyþór. Þegar líða tók
á nóttina og fyrrver-
andi félagar tóku að
vera óþægilega uppá-
þrengjandi ákvað ég
að láta mig hverfa,
leit samt við á Rex og
mætti þar rauðhærða
goðinu Eiríki Hauks-
syni. Fór heim ein-
sömul, setti Gaggó
Vest á fóninn og dans-
aði frá mér allt vit og
þakkaði fyrir að liggja
ekki í rúminu með karl-
mann mér við hlið.
SUNNUDAGUR 20. APRIL
Vaknaði seint um síðir, alsæl
með kvöldið, sló því ekki á móti því
þegar vinkona mín hringdi og stakk
upp á morgunverði á Vegamótum.
Þar virtust fleiri vera í sömu erinda-
gjörðum og við en þar voru þeir fé-
lagarnir Auddi Blöndal, yfirhnakk-
arnir Ásgeir Kolbeinsson og sjálfur
Gillzenegger og gæddu sér á löðr-
andi sveittum mat eftir væntanlega
skrautlega nótt.
„Hvert sem maður fer
í þessu lífi ætti maður
aldrei að klikka á að
hafa með sér góða
skapið.“
FÖSTUDAGUR 25. APRIL
Hljómsveitin Morðingjarnir fagnar útgáfu nýjustu plötu
sinnar í IÐNÓ í kvöld. Húsið opnar kl. 21 en tónleikarn-
ir hefjast á slaginu tíu. Sérstakir gestir Morðingjanna á
þessum tónleikum verða hljómsveitirnar REYKJAVÍK!
og Sudden Weather Change.
SUNNUDAGUR 27. APRIL
Kammersveitin Ísafold heldur útgáfutónleika í Langholtskirkju
í tilefni af útgáfu plötu sveitarinnar, All sounds to silence
come. Á tónleikunum verða m.a. leikin verk af nýju plötunni
eftir Alfred Schnittke og Daníel Bjarnason. Stjórnandi á tón-
leikunum er Daníel Bjarnason. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
TOPP
10
H
E
L
G
IN
14 • FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008